Breiðfirðingur - 01.04.1942, Síða 45
breiðfirðingur
H5
ingu gjörði hann um túnið. Húsaði hann jörðina mjög vei.
Rdsti fvrst timburhús, sem honum síðar þótti of iítið, og
hyggði j)á annað i stað hins eldra, er var miklu stærra.
Hlöður miklar og fénaðarliús liefir liann gjört af stein-
stjeypu. Engar skuldir eða kvaðir vildi liann, að hvíldu
á jörð sinni Asgarði. Þegar kvaðir áttu að fylgja jarðrækt-
arstyrknum, neitaði iiann að taka á móti lionum.
III.
Þegar á ungum aldri var borið meira traust til Bjarna
en flestra annarra. Fór þar saman atorka, hyggni og trú-
mennska. Virtist það vera tians æðsta mark um ævina,
að bregðast þeini aldrei, er treystu honum. Torfi i Ólafs-
dal sá þegar, hvað í lionum hjó, og lét hann tvítugan ung-
linginn liafa verkstjóni á sumrum i Belgsdal, en þar liafðí
Torfi heyskap mikinn og menn, sem kunnu vel til verka,
l)óll hezt trevsti hann Bjarna. Fórst lionum j)að prýðilega
úr liendi. Tókst j)á vinátta með j)eim. Hafði Torfi mikið
álit á Bjarna, en Bjarni taldi Torfa þann mann, er liann
setti mest upp að inna, og næstan lionum séra Kjartan
Helgason í Hvammi (síðar í Hruna). Voru þeir honum
mjög hollráðir, og fylgdust þeir þrír mjög að í liéraðs-
málum, meðan þeir voru samtímis í sýslunni. Þakkaði
Bjarni jafnan hamingjunni fyrir liina nánu og honum
nytsömu kynningu, er hann Iiafði af þeim.
Bráðlega eftir að Bjarni Iióf búskap, varð hann hrepps-
nefndarmaður og mun liafa verið j)að um 50 ára skeið,
en nú í vor neitaði hann að taka á móti kosningu. Sýslu-
nefndarmaður var liann í 33 ár. Hreppstjóri sama tíma.
Tók við lireppstjórn af föður sínum. Heima í sveit sinni
var liann fremsti maður í búnaðarfélagi. Hann var einn
af stofnendum Búnaðarsambands Dala- og Snæfellsness.
Var ávallt endurskoðandi samhandsins og' sótli alla fundi
þess sem fulltrúi Hvammssveitunga. Formaður fasteigna-
matsnefndar Dalasýslu var hann frá upphafi. Ilann var
jafnan framarla í verzlunarsamtökum bænda. Var liann
3*