Breiðfirðingur - 01.04.1942, Síða 46
3ti
BRBIÐKIRÖINGUR
einn af stofnendum Kaupfélags Hvammsfjarðar og for-
maður þess síðustu 23 árin.
Fjölmörg voru þau önnur trúnaðarstörf, er sveitin lians
og sýslan fól lionum, en hér er ekki rúm til þess að telja
þau upp. Skal samt minnzt á eilt starf Bjarna, sem hann
var kunnur fyrir og var lífsstarf hans, næst, eða jafnhliða
búskapnum; var það starf lians við Sparisjóð Dalasýslu.
Þegar séra Kjartan í Hvammi flutti þaðan að Hruna árið
1905, hafði hann haft framkvæmd um Sparisjóðinn, frá þvi
að hann var slofnaður, og lét sér rnjög annt um liag lians.
Gekkst liann fyrir því, að Bjarna í Ásgarði yrði falin
féhirðisstörf og um leið lögð meginráðin yfir sjóðnum
í hans hendur. Taldi hann sjóðnum þar bezt borgið sem
Bjarrii var. Reyndist það líka rétt, því að Bjarni stýrði
sjóðnum með hinni mestu röggsemi, en þó gætni i út-
lánum. Efldist sjóðurinn geysimikið og lét Bjarni sér afar
annt um hann. Gætti hagsmuna sjóðsins framar en sinna
eigin. Lánaði oft úr eigin vasa þeim, sem liann taldi mesta
áhættu að lána úr sparisjóðnum, en leysa vildi liann vand-
ræði iivers mann. Aðeins í eitt skipti i tíð Bjarna var felld
niður nokkur hundruð króna skuld (gömul) lijá eigna-
lausum manni; taldi Bjarni, að sér sæmdi eigi annað
en greiða liana úr sinum eigin vasa. Var þar þó ekki um að
kenna vanrækslu hans, að skuld sú tapaðist.
Mjög vandaði Bjarni öll störf sín. Var hann góður reikn-
ingsmaður og hafði ágæta rithönd. Var frágangur hans á
öllum skýrslum og reikningum hinn prýðilegasti. Sama
var að segja um álitsgjörðir lians. Þótti lionum fátt verra.
en að villur fyndust í skýrslum þeim, er hann liafði samið.
Árið 1930 var Bjarni sæmdur riddarakrossi Fálkaorð-
unna, og þótti þar fara að verðleikum.
IV.
Búskapurinn í Ásgarði var ávallt umsvifamikill. Heim-
ilisfólkið margt. Venjulega fólksflesta heimili í sýslunni.