Breiðfirðingur - 01.04.1942, Síða 62
52
BREIÐFIRÐINGUB
Sagnir úr Breiðafirði I.
1.
Þórdísarstaðir.
(Eftir handr. sr. Helga Sigurðssonar á Setbergi).
Norður með hlíðinni, skammt fná Þórdísarstöðum í
Eyrarsveit, eru að sögn seinni manna rústir bæjar þessa,
niður fallnar, og girðingar túnsins þar. Hefir bærinn Þór-
dísarstaðir verið þar að öllum líkindum reistur fyrst á
landnámstið; en sökum grjótrennslis úr hlíðinni og snjó-
þunga og aðfennis, verið seinna fluttur á hól suður með
hliðinni þar sem hann stendur nú. En frá þessu segir liin
gamla sögusögn allt á aðra leið, og það þannig:
Þar sem rústirnar nú sjást norður með greindri hlíð,
byggði kona ein, er Þórdís Iiét, bæinn Þórdísarstaði, og
befir hann verið síðan við hana kenndur. Hún var auðug
af gangandi peningi og lét smala sinn lialda fénu hinum-
megin fjallsins við Kolgrafa- og Hvala-fjörð, í austur frá
bæ sínum, og liafði fjárliúsin á þeim stað austur við fjall-
ið Klakk og Bárarháls, er nefnist Hjarðarból. Var þar þá
enginn bær; en seinna þegar hann var reistur þar, nefnd-
ist hann því nafni og heitir svo nú.
Smali Þórdísar gætti þar lengi vel fjár hennar. En loks-
ins vildi það óhapp til að allt féð flæddi austan til við
Eyraroddann á skerjum þeim þar sem Klumbur er nefnd-
ur. Við skaða þennan gerðist Þórdís svo stygg við smal-
ann, að honum þótti ekki við vært. Varð honum það þá til
úrræða, að hann hengdi sig í fjárhúsinu á Hjarðarbóli.
En jafnskjótt sem þetta varð gerðust miklir reimleikar
á Þórdísarstöðum af völdum smalans. Gekk hann þar um
öll hús og gerði alla menn hrædda, en dag og nótt ásótti
hann Þórdísi, svo að nærri lá að hún missti vitið. Til þess
að flýja þennan ófögnuð, stökk Þórdís og allir heima-
menn af hænum og féll hann í eyði, en var fluttur á hól