Breiðfirðingur - 01.04.1942, Page 88
78
BREIÐFIRÐIN GUR
Breiðf i rði ngafélag ið
Þegar „Breiðfirðingur" kemur fyrir almenningssjónii
fyrsta skipti, ber að sjálfsögðu að gera grein fyrir félag:
því, er stendur að útgáfu hans, stofnun þess og störfum.
Breiðfirðingafélagið stofnuðu 67 Breiðfirðingar, 17.
nóv. 1939. Var stofnfundur haldinn í Oddfellowhúsinu í
Reykjavík.
Má segja, að liin reglulega félagsstofnun eigi rót sina að
rekjá til skemmtifunda, er hófust fyrir tilstilli nokkurra
Breiðfirðinga um 1930. Þessir fundir voru haldnir um
miðsvetrarleyti ár livert, við sívaxandi þátttöku þeirra
Breiðfirðinga er búsettir voru í Reykjavík.
Þegar augljóst var orðið, að sú kynning hafði skapazt
með fólki, að heiman, úr breiðfirzku byggðunum og áhugi
á að sýna í orði og á borði átthagakennd, þótti timabært
að stofna félag, er kenndi sig við fornu átthagana, með þá
stefnuskrá, er staðfest er með lögum félagsins.
Góð fordæmi voru þá einnig fyrir hendi frá öðrum hér-
aðafélögum, er lyftu undir stofnun Breiðfirðingafélagsins:
Enn sem komið er, hefur Breiðfirðingafélagið ekki
rnarkað djúp spor með ytri athöfnum sínum. Ber tvennt
til þess; Fjárhagur félagsins er veikur og í öðru lagi hefur
þessum stutta starfstíma mestmegnis verið varið til þess,
að treysta sem bezt félagslegan grundvöll þess. Má þó
nefna tvö mál,er Breiðfirðingafélagið liefur tekið áStarfs-
skrá sína, en mættu verða tii liags og menningabóta, fyrst
Að Ólafi látnum var Gustur i eigu Eyjólfs tengdasonar
lians; var þá jafnan haldið til hákarlaveiða, og ávallt sama
happafleytan. Ólafur Eyjólfsson flutti hann siðast til x\k-
ureyrar. Afdrif lians eru mér ekki kunn.
Sveinbjörn Guðmundsson.