Fréttablaðið - 03.11.2018, Qupperneq 36
Þú ert
kannski
inni á ein-
hverjum
stað og
allt í einu
byrjar
einhver
að spila
sem getur
breytt lífi
þínu.
Við ætlum að spila
flest lögin af nýju
plötunni sem kemur út
snemma á næsta ári.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429
Ásgeir Trausti var eitt aðal-númerið á Iceland Airwaves á síðasta ári en þá hélt hann
eftirminnilega tónleika í Eldborgar-
sal Hörpu við góðar undirtektir.
Í ár heldur hann öllu minni og
persónulegri tónleika sem fara
fram í Fríkirkjunni í Reykjavík
dagana 9. og 10. nóvember en þar
fá áhorfendur m.a. að heyra mörg
ný lög af væntanlegri plötu hans.
„Ég mun koma þar fram ásamt
Júlíusi Róbertssyni en við ætlum
að spila flest lögin af nýju plötunni
sem kemur út snemma á næsta ári.
Tónleikarnir verða í stíl við Hring-
sólstúrinn sem ég fór í sumar, lág-
stemmdir og þægilegir, með okkur
tvo ásamt tveimur gítörum. Senni-
lega hendir maður einhverjum
eldri lögum inn á lagalistann líka en
aðalfókusinn er nýju lögin.“
Annasamt ár
Undanfarið ár hefur verið anna-
samt hjá Ásgeiri Trausta. Í upphafi
árs kláraði hann tónleikaferðalag
í tengslum við plötuna Afterglow
sem kom út í fyrra og hóf strax í
kjölfarið að semja efni fyrir næstu
plötu. „Ég lokaði mig af í sumar-
bústað í nokkrar vikur til að semja
og þegar því ferli lauk þá fór ég
í skíðaferðalag til Austurríkis í
nokkra daga. Eftir heimkomuna
hófust upptökur í stúdíóinu þannig
að árið hefur mestmegnis farið í
gerð nýju plötunnar.“
Sérstakur viðburður
Utan tónleikanna í Fríkirkjunni
stendur hann fyrir viðburði í
stúdíóinu Hljóðrita sem ber heitið
Straight to Vinyl. Þar munu átta
ólíkir listamenn halda stutta óform-
lega tónleika, eða taka upp 1-2 lög,
sem verða gefin strax út á einni
vínylplötu. Einn heppinn gestur fær
plötuna að gjöf eftir hverja tónleika
sem mun innihalda eitt lag á hvorri
hlið. „Það sem gerir þetta sérstakt er
að það verður þá aðeins eitt eintak
til af hverjum tónleikum og einhver
heppinn áhorfandi fær svo að taka
það með sér heim. Þetta verða því
ekki hefðbundnir tónleikar sem
slíkir heldur býðst þeim að halda
hér stutta tónleika eða taka bara
upp eitt eða tvö lög, það fer bara
eftir fílingnum.“
Ekkert sérstakt þema
Eins og fyrr segir kemur ný plata út
snemma á næsta ári en hann segir
hljóðheimi hennar svipa til þess
sem hann var að gera á fyrstu plötu
sinni, Dýrð í dauðaþögn, sem kom
út árið 2012. „Flest lögin eru drifin
af kassagítar og píanói, minna af
synthum og elektróník. Pælingin
í byrjun var að gera lágstemmda
kassagítarplötu en það var bara
ekki nógu skemmtilegt þannig að
platan endaði á að fara í margar
áttir. Textarnir eru bæði á íslensku
og ensku og verða því gefnar út tvær
útgáfur, önnur á íslensku en hin á
ensku. Það er því ekki víst að það
verði nákvæmlega sömu lögin á
báðum útgáfum. Textana vann ég
með pabba mínum, Einari Georg,
og Júlíusi Róbertssyni en umfjöll-
unarefni þeirra fara líka í margar
áttir eins og lögin. Því er erfitt að
segja að það sé eitthvert sérstakt
þema í gangi. Stefnan er sett á
útgáfu snemma á næsta ári en ekki
er enn kominn útgáfudagur.“
Lágstemmdur og þægilegur
Ásgeir Trausti
Ásgeir Trausti heldur tvenna tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. MYND/ERNIR
Í ár heldur Ásgeir
Trausti tvenna
tónleika í Frí
kirkjunni í Reykja
vík þar sem nýju
lögin verða í for
grunni. Auk þess
stendur hann
fyrir skemmtileg
um viðburðum í
Hljóðrita þar sem
heppnir gestir fá
einstaka vínyl
plötur að gjöf.
Bríet verður mjög upptekin á Airwaves. „Ég verð á fimmtu-daginn í Stúdentakjallaranum
og svo um kvöldið á Listasafninu og
svo verð ég á laugardeginum bæði
í Landsbankanum og Sundhöll
Reykjavíkur,“ segir hún og lofar
sjónrænni ekki síður en hljóðrænni
upplifun, sérstaklega í Listasafninu.
„Þar verð ég með flottar mynd-
skreytingar sem verða svolítið
aðalatriðið og þar verða spiluð ný
lög sem eru ekki komin út svo ég er
spennt fyrir því. Ég verð bara ein,
það verður engin hljómsveit eða
þannig.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Bríet
kemur fram á Airwaves en í fyrra
fór hún á nokkra tónleika. „Ég var
nýbúin að kynnast kærastanum
mínum og hann náði að redda mér
miða með því að klippa armband af
bróður sínum sem hafði keypt arm-
band en komst ekki. Og við límdum
það á mig sem er auðvitað harð-
bannað,“ segir Bríet, en mælir ekki
með þessari aðferð. „Við náðum að
sjá eitthvað áður en armbandið var
tekið af mér og ég komst ekki lengra
og náði ekki að sjá það sem mig
langaði mest að sjá. Svo ég var frekar
fúl. Ég mæli ekki með þessu, betra
bara að kaupa miða.“
Hún er mjög spennt fyrir því að
koma fram á Airwaves. „Mér hefur
alltaf fundist þetta mjög flott og allt
í kringum það. Þú ert kannski inni á
einhverjum stað og allt í einu byrjar
einhver að spila sem getur breytt lífi
þínu. Og það er bara geggjað því þú
ert kannski ekki með allt skipulagt
heldur bara nokkrir sem þig langar
að sjá en svo er kannski einhver á
undan eða eftir sem þú hafðir aldrei
séð áður. Ég man til dæmis að ég fór
í fyrra inn á bókasafn og bjóst við
rólegheitum en þá var þungarokks-
hljómsveit þar og geðveik læti og
mér brá svolítið en svo var það mjög
gaman.“
Hún er ánægð með fleira á
Airwaves í ár. „Mér finnst merkilegt
og frábært að þetta er í fyrsta skipti
sem er jafnt kynjahlutfall þó það
sé sorglegt að það sé að gerast fyrst
núna.“
Bríet sendi frá sér nýtt lag í gær.
„Þetta lag hefur verið til í svolítinn
tíma og ég er ótrúlega spennt að
gefa það út því þetta er lag sem
hefur persónulega merkingu fyrir
mig,“ segir hún. „Þetta er dúett með
Steinari og ég er mjög spennt að fá
viðbrögð því það er svolítið öðruvísi
en það sem ég hef gert áður.“ Nýja
lagið er hægt að finna á Spotify og
auðvitað er líka hægt að heyra Bríeti
sjálfa flytja það á Airwaves.
Frábært að það sé loksins
jafnt kynjahlutfall á Airwaves
Bríet er átján ára söngkona og rísandi stjarna á íslenskum tónlistarhimni. Hún gaf út sitt fyrsta lag,
In Too Deep, í janúar síðastliðnum en lagið hlaut feykilega góðar viðtökur bæði hérlendis og er
lendis. Bríet hlakkar til að taka þátt í Airwaves en hún kemur nú fram þar í fyrsta sinn.
Bríet leggur mikið upp úr því sjónræna þegar hún kemur fram og mega áhorfendur búast við
skrautlegu sjónarspili þegar hún kemur fram í Listasafninu á fimmtudaginn.
2 IcELAND AIRwAVES 3 . N óV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-7
A
D
0
2
1
4
6
-7
9
9
4
2
1
4
6
-7
8
5
8
2
1
4
6
-7
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K