Fréttablaðið - 03.11.2018, Side 38
Það er orðið ansi
langt síðan ég hef
sjálfur haldið tónleika
hér á landi.
Eins og flestir, ef ekki allir, íslenskir tónlistarmenn hlakkar Ólafur Arnalds mjög
til að koma fram á Iceland Airwaves
í næstu viku enda þá orðin þrjú
ár síðan hann spilaði síðast undir
eigin nafni hér á landi. „Ég held að
ég geti nokkurn veginn fullyrt að
Iceland Airwaves eigi sérstakan
stað í hjarta allra íslenskra tónlist-
armanna. Tíminn til undirbúnings
er hins vegar knappari en á öðrum
tónleikum, svo það þarf að passa sig
að reyna ekki að gera of mikið. Það
er orðið ansi langt síðan ég hef sjálf-
ur haldið tónleika hér á landi en
það var einmitt á Iceland Airwaves
árið 2015. Reyndar spilaði ég með
techno-bandinu mínu Kiasmos rétt
eftir áramótin hér heima en óhætt
er að segja að tónleikarnir í næstu
viku verði öðruvísi.“
Tvennir tónleikar
Ólafur kemur fram á tvennum
tónleikum á hátíðinni, á fimmtu-
dag og föstudag, og eru þeir hvorir
tveggja í Þjóðleikhúsinu og hefjast
á miðnætti. „Meginuppistaðan í
dagskránni verða lög af nýjustu
plötu minni, re:member, sem kom
út í lok sumars en ég mun líka flytja
nokkur eldri lög í bland við þau
nýju.“ Re:member hefur fengið
mjög góðar viðtökur heima og
erlendis, bæði hjá aðdáendum og
gagnrýnendum.
Hlaðinn verkefnum
Ólafur hefur svo sannarlega ekki
setið auðum höndum síðan 2015.
Árið 2016 gaf hann út plötuna
Island Songs en við gerð hennar
ferðuðust hann og Baldvin Z leik-
stjóri til sjö mismunandi staða á
Íslandi þar sem Ólafur vann með
sjö ólíkum listamönnum og Baldvin
tók upp myndbönd við lögin sjö.
Einnig samdi hann tónlist við
sjónvarpsþættina Broadchurch
eins og frægt er orðið en fyrir hana
hlaut hann hin virtu BAFTA-sjón-
varpsverðlaun. Ólafur kom einnig
að tónlistinni í þáttunum Electric
Dreams sem byggðir eru á verkum
rithöfundarins Philips K. Dick.
Langur túr fram undan
Fyrri hluti árs fór í gerð og upp-
töku re:member og segist Ólafur
hafa eytt stærstum hluta þess tíma
einn í stúdíóinu. „Núna er ég hins
vegar að byrja tónleikaferðalag sem
klárast einhvern tímann í lok næsta
árs. Fyrsta hlutanum er að ljúka
núna í þessum töluðu orðum og
við komum beint á Airwaves. Eftir
tónleikana í næstu viku förum við
beint til Bandaríkjanna á stuttan
túr og þaðan til Ástralíu. Svo endum
við árið á að flytja stóru útgáfuna af
„sjóvinu“ heim til Íslands og stillum
upp fyrir tónleika í stóra salnum í
Hörpu.“
Vegna mikilla anna undanfarið
segist Ólafur ekki hafa gefið sér tíma
til að kynna sér nægilega vel dagskrá
hátíðarinnar. „Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn þá hef ég ekki náð að
skoða dagskrána nógu vel enda er
ég búinn að vera á tónleikaferðalagi
síðan um miðjan september. En
ég er þó mjög hrifinn af Aurora og
Blood Orange svo ég nefni nokkra
sem koma fram á Airwaves í ár.“
Airwaves á sér
sérstakan stað
Nýjasta plata Ólafs Arnalds kom út í ágúst og hefur feng-
ið góðar viðtökur. Lögin á henni verða í forgrunni tón-
leika hans í Þjóðleikhúsinu á fimmtudag og föstudag.
„Eftir tónleikana í næstu viku förum við beint til Bandaríkjanna á stuttan túr
og þaðan til Ástralíu,“ segir Ólafur Arnalds. myND/ÓLAFUR ARNALDS
#CENTERHOTELS
centerhotels.com/airwaves
Happy Hour &
freistandi tilboð!
16:00 ARON BIRKIR
17:00 VIO
18:00 STAFRÆNN HÁKON
mmtudag
8. nóvember
ÍSAFOLD //
CENTERHOTEL ÞINGHOLT
Þingholtsstræti 5
101 Rvk. - 595 8535
16:30 MILL
17:30 ARI ÁRELÍUS
18:30 VAR
föstudag
9. nóvember
JÖRGENSEN //
CENTERHOTEL MIÐGARÐUR
Laugavegur 120
105 Rvk. - 595 8565
16:00 FEBRÚAR
17:00 MIMRA
18:00 INGUNN HULD
laugardag
10. nóvember
SKÝ //
CENTERHOTEL ARNARHVOLL
Ingólfsstræti 1
101 Rvk. - 595 8545
BÝÐUR UPP Á ICELAND AIRWAVES OFF-VENUE TÓNLEIKA
STOLTUR STYRKTARAÐILI
4 IcELAND AIRwAvES 3 . N Óv E m B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-8
E
9
0
2
1
4
6
-8
D
5
4
2
1
4
6
-8
C
1
8
2
1
4
6
-8
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K