Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 42
Ráðstefna Special Olympics á Íslandi
,,Sigurför fyrir sjálfsmyndina”
Laugardagur 10. nóvember 2018 kl. 10:15 – 13:00 Radisson BLU Saga Hótel, salur HEKLA 2.h.
09:45 – 10:15
Guðmundur Sigurðsson og Daði Þorkelsson fulltrúar LETR á Íslandi og rannsóknarlögreglumenn taka á móti gestum
10:15 – 10:25
Setning ráðstefnu - Jóhann Arnarsson, varaformaður ÍF og í stjórn Special Olympics á Íslandi
10:25 – 10:35
Special Olympics á Íslandi ,,Hlekkur í stórri keðju tækifæra” Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Special Olympics á Íslandi
10:35 –10:50
Ásmundur Einar Daðason, félags og jafnréttismálaráðherra
10:50 – 11:05
Herdís Hreiðarsdóttir, móðir & Jónas Björnsson, knattspyrnumaður
11:05 – 11:20
„Unified golf” Heida Guðnadóttir, systir og Bjarki Guðnason, bróðir
11:20 – 11:35
„Unified badminton” Jónas Sigursteinsson, þjálfari, Þorsteinn Goði Einarsson og Guðmundur K. Jónasson, keppendur
11:-35: 11:50
Ný grein, - Nútímafimleikar, Sigurlín Jóna Baldursdóttir þjálfari, Arna Dís Ólafsdóttir og Hekla B. Hólmarsdóttir, keppendur
11:50 – 12:10 Hlé
12:10 – 12:25
Karlotta J. Finnsdóttir, móðir, Ásgeir Þ.Árnason, faðir, Ásdís Ásgeirsdóttir, keppandi í listhlaupi á skautum
12:25 – 12:45
YAP - Young Athlete Project. Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú (Skólar ehf) Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari og Stefan C
Hardonk, faðir
12:45 – 13:00
Samantekt og spurningar úr sal
Ráðstefnustjórar eru Aron Freyr Heimisson, knattspyrnumaður og Bára Ólafsdóttir, sundkona.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
Við bjuggum í Bandaríkj-unum þegar við gerðum okkur grein fyrir að hann
var eitthvað öðruvísi,“ segir Herdís
um Jónas Inga. „Hann á tveimur
árum eldri systur sem var fljót til
að læra en hann var seinn til og við
fundum strax að það var eitthvað
ekki eins og það átti að vera.“ Jónas
fékk ekki greiningu úti en þegar
hann var fimm ára og fjölskyldan
flutti heim var hann greindur með
ódæmigerða einhverfu. „Hann
talaði mjög lítið og átti erfitt með
skapið en var mjög kraftmikill og
fjörugur svo okkur fannst kjörið að
senda hann í íþróttir hjá Íþrótta-
félaginu Ösp sem er íþróttafélag án
aðgreiningar. Okkur fannst líklegra
að hann myndi spjara sig betur í
einstaklingsíþrótt þar sem hann
þyrfti ekki að taka tillit til annarra
svo hann fór að æfa sund.“
Fljótlega fékk Jónas þó áhuga
á fótbolta og hann byrjaði að æfa
fótbolta með Öspinni um tíu ára
aldur. „Við prófuðum fyrst að
senda hann í almennt félag en það
hentaði honum ekki, hann var
orðinn svo stór og þar eru gerðar
svo miklar kröfur þegar krakkar
eru komnir á þennan aldur,“ segir
Herdís. „Þar snýst allt um sigur og
að keppa og getuskiptingu sem
eru ekki alveg sömu gildin og hjá
Öspinni. Hann hefur spilað þar
síðan undir stjórn þjálfarans Darra
McMahon sem er alveg einstakur.“
Þegar Jónas var fimmtán ára fékk
hann boð um að keppa á Evrópu-
leikum Special Olympics í Belgíu
sem var hans fyrsta stóra mót. „Það
eru ekki margir sem æfa fótbolta
fyrir fatlaða á Íslandi og því eru
ekki mörg tækifæri til að keppa á
Íslandi,“ segir Herdís. „Þess vegna
var það frábært tækifæri og mikill
heiður fyrir 16 ára ungling að vera
valinn í landslið Íslands í fótbolta.
Ekki í A-landsliðið en landslið var
það samt.“
Foreldrar Jónasar fóru með út en
hann dvaldi í sérstöku keppenda-
þorpi leikanna og hitti þau aðeins
kringum leiki. „Það var erfitt að
sleppa hendinni af honum því
hann var með þeim yngstu. En ég
gleymi aldrei hvað ég var stolt. Ég
hefði aldrei trúað að ég myndi sjá
einhverfa strákinn minn taka þátt í
hópíþrótt og vera hluta af liði.“
Hún nefnir einnig hvað það er
dýrmætt fyrir Jónas Inga félagslega
að taka þátt í Special Olympics.
„Þó honum hafi liðið ágætlega í
skóla án aðgreiningar og vel haldið
utan um hann þá er hann þar ekki
á jafnréttisgrundvelli. En á Special
Olympics eru allir á jafningja-
grundvelli þar sem leikarnir eru
þannig uppbyggðir að fyrst eru
æfingaleikir og svo raðað í lið eftir
getu. Þar getur hann látið ljós sitt
skína og skarað fram úr.“
Ári síðar var Jónasi boðið að
taka þátt í heimsleikum Special
Olympics í Los Angeles. „Þá fórum
við systir hans með sem klapplið,“
segir Herdís og bætir við: „Þar var
mikil harka og mömmunni var nóg
um en þeir stóðu sig með prýði og
enduðu í fjórða sæti. Hann var ekki
alveg sáttur við það en stærsti lær-
dómurinn er að þó að þú tapir leik
þá er það bara að halda áfram, eins
og fyrirmyndirnar í A-landsliðinu.“
Í dag er Jónas Ingi á starfsbraut
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og tekur líka almenna áfanga í
skólanum. „Hann vinnur líka sem
aðstoðarmaður á æfingum í boccia
hjá Öspinni. Hann hlakkar til
heimsleikanna í Abú Dabí á næsta
ári og framtíðin er björt.“
Jónas Ingi hefur verið valinn í knattspyrnulið Íslands á Special Olympics þrisvar sinnum og er nú á leið til Abú Dabí í vor.
ÞÁTTTAKAN ER AÐALATRIÐIÐ Á SPECIAL OLYMPICS
Samtökin Special Olympics International (SOI) voru stofnuð af Kennedy-
fjölskyldunni 1968 og forseti SOI er Timothy Kennedy Shriver. Áhrif Kenn-
edy fjölskyldunnar koma fram í öllu starfi samtakanna sem hafa náð
gífurlegri útbreiðslu. Starfsemin byggist upp á því að skapa einstaklingum
með þroskahömlun/sérþarfir tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi þar sem
virðing og jafnræði ríkir og allir eru sigurvegarar.
Allir geta verið með, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Yfir 500
Íslendingar hafa fengið tækifæri til þátttöku á heimsleikum Special
Olympics sem haldnir eru fjórða hvert ár. Auk íþróttastarfs stendur SOI
fyrir alþjóðaverkefnum sem miða að því að bæta heilsufar, menntun
og daglegt líf þessa hóps. Alþjóðaskrifstofa er í Washington og Evrópu-
skrifstofa í Brussel og Dublin. Umfang og glæsileiki heimsleika Special
Olympics líkist helst Ólympíumótum en keppnisform er gjörólíkt. Engin
lágmörk þarf á leikana og jafnt byrjendur sem lengra komnir taka þátt.
Þátttakan er aðalatriðið, allir keppa aðeins við sína jafningja og allir
eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræði Special Olympics
byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis þar sem áhersla er á þátttöku,
ánægju, einstaklingsmiðaða færni og ekki síst vináttu.
Nánar um Special Olympics www.specialolympics.org.
Framhald af forsíðu ➛ Áætlað er að Special
Olympics verði
stærsti íþróttaviðburður
heims árið 2019. Íþrótta-
samband fatlaðra og
Special Olympics á
Íslandi senda 38 kepp-
endur í 10 íþróttagrein-
um.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . N Óv E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-7
5
E
0
2
1
4
6
-7
4
A
4
2
1
4
6
-7
3
6
8
2
1
4
6
-7
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K