Fréttablaðið - 03.11.2018, Síða 80
Ross Barkley hefur sýnt það í upphafi tímabilsins að það er kannski eitthvað til í því að hann sé góður í fótbolta. Barkley var
talinn einn efnilegasti leikmaður
Englands samkvæmt fjölmiðlum og
var mikið látið með unga guttann
frá Liverpool. Meistarinn frá Kata-
lóníu, Xavi, sagði árið 2014 að hann
gæti vel spilað fyrir Barcelona. Svo
góður væri hann. Barkley gekk í
raðir Chelsea frá Everton í janúar
og fann sig ekki undir
stjórn Antonio Conte.
Ferill hans byrjaði
ekki sérstaklega vel hjá
Chelsea því fyrsti leikur
hans var gegn Arsenal
25. janúar og Barkley komst
á bekkinn. Brassinn magnaði,
Willian, meiddist eftir hálftíma
leik. Barkley var settur inn á og
strögglaði enda hafði hann verið
meiddur í rúmar átta vikur á undan.
Eftir leikinn sagði Conte: „Það er
ekki auðvelt þegar einn besti leik-
maðurinn þinn meiðist og það eina
sem ég hafði á bekknum var Ross
Barkley.“
Fjölmiðlar tóku einnig eftir því
að Barkley var lengi að koma inn
á. Þegar Willian meiddist og lagð-
ist í grasið byrjaði Barkley að hita
upp. Conte vildi setja hann strax
inn á en Barkley tók sinn tíma í
upphitunina. Alls öskraði Conte á
hann tíu sinnum að gera sig kláran.
Conte er ekki sá þolinmóðasti og
blaðamaðurinn Paul Brown, sem
sat nálægt, tísti um að Conte hefði
tekið hárþurrkuna á Barkley. Aðrir
fjölmiðlamenn á leiknum tístu um
að Barkley hefði tekist hið ótrúlega.
Að fá skömm í hattinn áður en hann
snerti boltann.
Þar með var ferill Barkleys nánast
búinn hjá Chelsea áður en hann
byrjaði. Vissulega spiluðu meiðsli
einnig inn í.
En Barkley þraukaði og Conte var
rekinn. Annar Ítali, Maurizio Sarri,
var ráðinn og Barkley var staðráð-
inn í að sanna að það væru enskir
töfrar í skónum. Eðlilega var hann
ekki valinn í HM-hóp Englands
en nýtti sumarið til vinnu. Hann
slakaði lítið á heldur fékk þrek-
þjálfara Chelsea til að vera með sig
í prógrammi og horfði á leiki með
Napoli.
Hann hefur nefnilega aldrei verið
þekktur fyrir sitt vinnuframlag inni
Upprisa
Ross Barkley
„Barkley hefur spilað mjög vel að undanförnu,“ sagði Sarri eftir leik-
inn gegn Burnley, væntanlega enn að tyggja sígarettuna. „Hann hefur
bætt varnarleik sinn mikið sem og líkamlegt ástand. Hvað tæknilega
hlutann varðar er hann mjög góður leikmaður en núna er frammi-
staða Barkleys heilsteyptari,“ bætti sá ítalski við.
Barkley skartaði
eitt sinn fjöl-
mörgum húð-
flúrum en hefur
unnið að því að
láta fjarlægja
þau.
Barkley er kominn aftur í enska landsliðið eftir fjarveru. Hann lék sinn fyrsta
landsleik haustið 2013 og var í enska hópnum sem fór á HM 2014.
Leikvangurinn
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
á vellinum en glöggir áhorf-
endur tóku eftir því eftir
leikinn gegn Burnley að
hann hljóp rétt undir 12
kílómetrum og var nánast
jafn N’Golo Kante. Þegar
tölfræði hans er skoðuð
kemur í ljós að hann er
að hlaupa um einum og
hálfum kílómetra lengra í
hverjum leik með Chelsea
á þessu tímabili en hann
gerði hjá Everton.
Með betra formi virð-
ist Barkley líka taka betri
ákvarðanir inni á vellinum.
Það er ekki langt, rúmt eitt
og hálft ár, síðan knattspyrnu-
spekingurinn Graeme Souness
sagði hann vera eins og barn
á leikvelli. Í raun væri allt sem
hann gerði rangt. „Hann rekur
boltann þegar hann á að senda
boltann og sendir hann þegar
hann á að rekja boltann. Ákvörð-
unartaka hans er átakanleg,“ sagði
Souness og dró hvergi undan, ekki
frekar en fyrri daginn.
Þótt hann sé ekki alltaf í byrj-
unarliðinu hefur Barkley komið
við sögu í flestum leikjum Chelsea
á tímabilinu. Og hann spilar allt-
af betur og betur. Barkley hefur
skorað í síðustu þremur leikjum
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, síð-
asti enski leikmaðurinn sem gerði
það í búningi Chelsea var sjálfur
Frank Lampard. Barkley er eins og
flestir vita með gamla númerið hans
Lampards og hver veit nema hann
gæti orðið jafn stórt nafn og Lamp-
ard á Stamford Bridge. Það eru nefni-
lega ekki mörg mörkin sem aðrir
miðjumenn Chelsea munu skora í
vetur. Það er staðfest.
Kante mun ekki skora mörg og
Íslandsvinurinn Jorginho er ekki
mikið að pota inn mörkum. Mateo
Kovačić hefur skorað 13 mörk í
deildarkeppnum á ferlinum og þá
eru ekki margir eftir. Barkley þarf
því að skora og helst komast yfir 15
mörk ef Chelsea ætlar að eiga raun-
hæfan möguleika á titlinum. Því
ekki eru framherjarnir heldur að
skora. Barkley hefur skorað mest
átta mörk á tímabili. Það var tíma-
bilið 2015/2016.
Boltinn sem Sarri vill spila virð-
ist henta Barkley ágætlega. Þó að
Sarri eigi vissulega einhvern hlut að
máli þá var það Barkley sjálfur sem
ákvað að taka örlögin í sínar hendur
og lagði eitthvað á sig. Kom í góðu
standi á undirbúningstímabilið og
vissi hvað Sarri væri að meina. Það
er því honum sjálfum að þakka að
það gengur betur núna en áður.
Ross Barkley hefur blómstrað und-
ir stjórn nýs stjóra Chelsea, Ítalans
Maurizio Sarri. Barkley lagði örlítið
extra á sig í sumar og undirbjó sig
fyrir komu Sarri því sá ítalski vill
spila ákveðna tegund af fótbolta.
Barkley horfði því á hvernig Napoli,
liðið sem Sarri stýrði áður, spilaði
og fékk þrekþjálfara Chelsea til að
koma sér í gott form.
Ross Barkley
Fæddur: 5. desember 1993
Hæð: 189 cm
Leikir í ensku úrvalsdeildinni: 161
Mörk: 24
Stoðsendingar: 21
Tímabilið 2018/2019
Leikir: 9
Mörk: 3
Mörk með hægri: 2
Mörk með vinstri: 1
Skot á mark: 5
Stoðsendingar: 3
Sendingar: 327
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-6
2
2
0
2
1
4
6
-6
0
E
4
2
1
4
6
-5
F
A
8
2
1
4
6
-5
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K