Fréttablaðið - 03.11.2018, Side 112
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Sirrýjar
Hallgrímsdóttur
BAkþAnkAR
Það er ótrúlegt að fylgjast með verkalýðshreyfingunni. Munnsöfnuðurinn er þannig
að venjulegu fólki svelgist á, ítrek-
að. Það er eins og nýja forystan ætli
alls ekki að láta það spyrjast um
sig að hún lúti einhverjum siðalög-
málum þreyttrar borgarastéttar. Í
byltingu er allt leyfilegt, öllu skal
kollvarpað og engin ástæða til að
binda sig við úrkynjaða siði eins
og almenna kurteisi. Andlegur
leiðtogi þessarar hreyfingar virðist
vera Gunnar Smári Egilsson sem
áður hafði nokkuð óhindraðan
aðgang að sjóðum auðmanna. Nú
er Gunnar Smári búinn að finna
nýjan sjóð, verkalýðsfélagið Efling
situr á 12 milljörðum sem nýta má
til ýmissa verka. Það þurfti bara að
senda gjaldkerann í veikindaleyfi,
hún virtist ekki skilja fínni blæ-
brigði byltingarinnar.
Kröfur nýju forystunnar eru
þannig að hún treystir sér ekki í að
reikna kostnaðinn af þeim. Þegar
bent er á að við höfum áratuga
reynslu af því að krónutöluhækk-
anir breytast í prósentuhækkanir
sem hlaupa upp allan launastig-
ann með tilheyrandi verðbólgu,
hækkun lána og kaupmáttar-
rýrnun, þá er gripið til fúkyrða.
Einhver fréttamaður ætti
að spyrja t.d. ljósmæður hvort
þær myndu sætta sig við það að
menntun þeirra verði nánast í
engu metin til launa? Þær munu
auðvitað krefjast sambærilegrar
hækkunar.
En hverjir tapa á verðbólgu? Það
er ekki ríka fólkið sem á húsin sín
skuldlaust og býr að eignum sem
hækka í verði með verðbólgunni.
En fólkið sem skuldar verðtryggt í
húsunum sínum, ver stórum hluta
tekna sinna til kaupa á nauðsynja-
varningi og vinnur á töxtum, það
er fólkið sem tapar mestu í verð-
bólgu. Það er fólkið í verkalýðs-
hreyfingunni.
Bylting étur
Bátur
mánaðarins
499kr.
Ítalskur BMT
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-1
3
2
0
2
1
4
6
-1
1
E
4
2
1
4
6
-1
0
A
8
2
1
4
6
-0
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K