Breiðfirðingur - 01.04.1983, Síða 92
Magnús Friðriksson frá Staðarfelli:
Hvammur í Dölum
Úr árbók Hins ísl Fornleifafélags 1940
Það mun vera of lítið gjört að því, að skrásetja ör-
nefni í landi jarða, sérstaklega merkra landnámsjarða.
Mörg örnefnanna munu vera mjög gömul, jafnvel frá
landnámstíð, eða litlu eftir það tímabil. Fyrri kynslóðar
fólk hafði gott minni, þuldi sögur og ljóð utanbókar,
jafnvel heilar bækur. Margir fyrri tíðar menn æfðu svo
vel hugareikning, að þeir jöfnuðust á við beztu stærð-
fræðinga nú á tímum. Því miður mun fátt af nútíðar-
fólki komast í nokkurn samanjöfnuð við eldri kynslóðar
fólk í því efni, þó að menntun þess væri engin, nema
sjálfsmenntun. Minni nútíðarfólks virðist vera að
þverra, þrátt fyrir allan lærdóm og menntun, sem það
nýtur. Hvernig sem á þessu stendur, er það, sem margt
fleira, eftirtektarvert, og ætti að gefa því meiri gaum en
gjört hefir verið. Mun vera oflítið gjört að því að glæða
hugsunarhátt og minni unglinganna á hinu fagra og
góða.
Það virðist ekki neinn óþarfi, þó að settar væru ein-
hverjar skorður við, að örnefni týndust með öllu, og
það væri gjört sem allra fyrst. Ein af hinum merkari
landnámsjörðum er Hvammur í Dalasýslu, og þar er
mikið og stórt land fullt af örnefnum. Þeir, sem fróð-
astir hafa verið um örnefni þar, munu nú óðum vera
að týna tölunni. Svo mun og víðar eiga sjer stað. Þess
vegna er jeg að skrifa þessar línur.
Þá er jeg var barn, átti jeg heima í Hvammi í fimm