Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 2
►■(>■—>-o o-mim-o-m^-rn^m- »■<)•—-o-^»-(n pegar vér sendum út þetta fyrsta tölublað hyggjum vér að það sé rétt að segja fáein orð um tilgang þessa tímarits. Mörg góð tímarit og blöð eru gefin xit á íslenzku ,sum eru vísinda- lcg'; efnis, önnur fjalla um trúarbrögð eða pólitík. Vér erum ekki í sam- keppni við nein þeirra. petta tímarit er ckki gefið út til að græða fé, heldur ekki til að styrkja neinn pólitískan flokk eða þjóðfélagshreyfingu. Vér leggjum áherzlu á að kunngjöra liinn eilífa rannleika Guðs eins og hann er opinberaður í meginreglum kristin- dómrins og hins sanna safnaðar. Vér berum spádóma ritningarinnar saman við frása'gnir mannkynssögunnar og lofum kærleika og fegurð hinnar dag- legu og persónulegu trúar. Vér trú- um að vér nálgumst endir þessa tíma- bils. Ilvaða dag eða ár dómurinn mun verða uppkveðinn vita engir, en rás viðburðanna gefir til kynna að vér nálgumst hið hæsta stig í mannkyns- sögunni. Ef það sé rétt, þá er það einnig vilji Drottins að þessi sannleik- ur verður kunngjörður um allan heim. Á liðnum öldum hefir Guð sent heinr inum boðskap, sem átti sérstaklega við þann tíma þegar hann var kunngjörð- ur. Nói aðvaraði heiminn á undan flóðinu. Jóhannes skírari var sendur af Guði til að búa Gyðinga undir komu hins fyrirheitna Messías. Spámaður- inn Jónas var skipaður af Drottni til að kunngjöra hinum óguðlegu innbú- um Niniveborgar viðvörun Guðs. Á sama hátt erum vér sannfærðir um að Guð hefir náðarboðskap til þessarar seinustu kynslóðar. pessi boðskapur verður að vera fagnaðarboðskapur. Jóhannes postuli sá “engil fljúga um miðhimininn, og hélt hann á eilífum fagnaðarboðskap til að boða þeim sem á jörðunni búa, og sérhverri þjóð og kynkvísl og tungu og lýð.” Og boð- skapur hans var “að komin er stund dóms hans” (Guðs). Opinb. 14: 6, 7. Vér trúum að þessi boðskapur á við þennan tíma. Vér trúum allri biblí- unni, bæði gamla og nýja testamentinu. Hið nýja skýrir hið gamla. Vér skoð- um lögmál Drottins, tíu boðorðin, sem mælikyarða og fyrirmynd lífernis og breytni. Vér trúum á Jesúm Krist, son hins eilífa Guðs, frelsara frá synd. pó að vér í þessu tímariti munum ekki skifta oss af pólitík, ætlum vér að leggja mikla áherzlu á bindindi og kristilega mentun, drykkjuskapurinn hefir verið bölvun vors lands. Van- þekking og vantrú eru orsök margs ills. Guð hefir gefið oss heila og skynsemi til þess að vér getum skynjað hans vilja. Sannleikur heilagrar ritningar er ljós mannsins. L. H. Christian. ►<n

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.