Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 13

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 13
STJARNAN. 13 “Eg endurtek, herra dómari, að eg er ekki sá eini, sem sekur er um morð konu minnar. Dómarinn á sæti sínu, dómnefndin, lögfræðingarnir, sem sitja innan þessara grinda, flestir vottanna, og þar á meðal presturinn, frá hinni gömlu kirkju, eru einnig sekir frammi fyrir almáttugum Guði, og verða þeir allir að mæta ásamt mér frammi fyrir hans dómstóli og þar munum vér allir verða dæmdir með réttvísi. “ tíeföi það ekki verið fyrir vínsölu- liúsunum í þessum bæ, hefði eg aldrei orðið drykkjumaður; konan mín hefði ekki verið myrt; eg myndi ekki hafa verið hérna núna, á þröskuldi dauðans, sem þeir innan skamms munu fleygja mér yfir og inn í eilífðina. Hefði það ekki verið fyrir þessum mannagildrum myndi eg hafa verið bindindissamur maður, iðjusamur verkamaður, brjóst- góður faðir og ástríkur heimilis maður. En í dag er heimili mitt eyðilagt, konan mín myrt, og Guð blessi litlu börnin mín, sem nú er fleygt út á náð þessa lieims, meðan eg verð hengdur af hin- um sterka armleggi yfirvaldanna. "Guð veit að eg reyndi að breyta betur, en eins lengi og hið opna vínsölu- hús var á vegi mínum, var ekki minn veiklaði viljakraftur nógu.sterkur til að veita hinni óttalegu, eyðandi og brennadi lyst eftir víni neina mótstöðu. "Eitt ár var þessi bær án vínsölu- luisa. Eitt ár var eg bindindissamur maður. Eitt ár voru konan mín og börnin hamingjusöm og heimil'i okkar sem Paradís. "Eg var einn þeirra, sem voru með til að undirskrifa mótmælin móti því að vínsöluhúsin yrðu opnuð á ný. Helmingurinn af þessari dómnefnd, hinn sakaráberandi málaflutningsmað- ur og dómarinn, sem situr í s'æti sínu, greiddu allir atkvæði með því að end- uropna vínsöluhúsin og þau hafa gjörfe mig þann mann, sem eg nú er. ’ ’ Hin ástríðufullu orð fangans féllu sem logandi eldur í hjörtu þeirra, sem viðstaddir voru og margir áheyrend- anna og jafnvel lögfræðingarnir gátu ekki tára bundist. Dómarinn hreyfði sig eins og hann ætlaði að banna fang- anum að tala lengur, en þessi flýtti sér að segja: "Nei! nei! Loka þú ekki vörumi mínum enn; eg er bráðum búinn. ‘‘Eg byrjaði að fara ofan brekku í vínsöluhúsunum, sem voru löghelguS« og vernduð af kjósendum þessa bæjar.. Og eftir að vínsöluhúsin, er þér leyfð- uð, hafa gjört mig að drykkjumanni og morðingja, er eg dreginn fyrir dóm rétt.vísinnar, og nú ætlar lögvaldið að leiða mig til aftökustaðarins og senda sál mína inn í eilífðina. þar mun eg mæta frammi fyrir öðrum dómara, fyr- ir hinum réttláta Guði. Og þar mun- uð þér, sem hafið löghelgað vínverzl- unina, einnig rnæta með mér. Haldið« þér að hinn mikli dómari muni dæma mig einn—liina aumu, veikluðu,' ósjálf- bjarga bráð verzlunar yðar—sekan um morð konu minnar. Nei, eg í mínu drukkna, vitskerta, ábyrgðarlausa ástandi hefi myrt eina manneskju; en þér hafið af ásettu ráði greitt atkvæði með vínsöluhúsunum, sem hafa myrt þúsundir. J)ér vitið allir að eg tala ekki óráð, heldur heilagan sannleika. ‘ ‘ pér löghelguðuð vínsöluhúsin og gjörðuð mig að drykkjumanni og morð- ingja, og þér eruð meðsekir frammi fyr- ir Grrði almáttugum og mönnum um morð konu minnar. ‘ ‘Herra dómari, eg er búinn. Nú er eg reiðubúinn til að hlusta á að dauða- dómur minn verði uppkveðinn yfir mér og að verða leiddur til aftÖkustaðarins. pér endið með að biðja Guð að vera

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.