Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 10

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 10
10 STJARNAN. því að í finita kapitnlanum er oss sagt að hann hafi dáið þegar hann var orð- inn 930 ára gamall. Ef hinir sjö sköpunardagar væru hver svo margar miljónir ára, þá hafa miljónir ára verið endalaus dagsbirta, og jafn lángt tíma- bil í kolníðamyrkri? Vissulega mundi svefn Adams gjöra Rip Van Winldes skamt að hænui dúr. Ilvernig gæti maðurinní, ekki að tala um plöntur, lifað gegnum aðra eins nótt? Vilja ekki einhverjir vísindamenn koma fram og einarðlega segja oss hvenær lengd dagsins var breytt í 24 klukkutíma? Kom þessi breyting alt í einu eða smám sanian? Var hinn sein- asti langi dagur miljón ára og hinn næsti aðeins 24. klukkutímaf ? Hvernig sem því var varið, hlýtur það að hafa verið erfitt að hafa haft réttar klukkur í þá daga. Mundi' sá sem þróunarkenningunni fylgir meðganga, að járnbrautarvél nú- tímans sé dóttir þróunarinnar ? þá hlýtur byrjunin að liafa verið nokkurs- konar gjörð lík þeirri sem strákarnir leika sér við. þessi gjörð hefir þá smám saman þroskast stig eftir stig þangað til að hún varð að hjólböru, þar næst, kerru, svo vagni og strætis- vagni og’ að lokum hinni miklu vél, sem vér nii höfum. Getgátan um að hinn sterkari er sá eini, sem eft.ir verður, er bygð á lögum hatursins. pað er að hinn sterkari eyðileggur hinn óhrausta. Ef þau lög væru í gildi í dag hvar mundu þá •læknarnir, hjúkrunarkonurnar og spít- alarnir, sem sjá um hina sjúku vera? Hvar mundu liælin, sem sjá um hina geðveiku vera? Hvar barnaheimilin og gámalmennahælin ? Vinir, munduð þér vilja lifa í landi þar sem lögum að aðeins hinn sterkari á að lifa yrði frain fylgt? þakkið Guði fyrir áform frelsunar- innar, sem er bygt á kærleika hins heií- aga Guðs. “því svo elskaði Guð heirn- inn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem á hann trúir, ekki glatist lieldur hafi eilíft líf. ” Jói . 3: 16. C. G. B. Sálnarekið, hreinsunareldurinn og helvítið. það er ekki mjög mikill mismunur á sálnareki heiðingjanna, hreinsunareldi kaþólskra og helvíti mótmælendánna. þau eru öll grundvölluð á kenningunni um ódauðleik sálarinnar og meðvitund í dauðanum. Heiðingjarnir halda að sálin sé gædd meðvitund og að hún fari út úr einum líkama í annan. Kaþólskir halda að sálin sé gædd meðvitund og að hún fari ftr líkamanum inn í bál hreins- unareldsins til að losna AÚð allan saur- ugleika. Hinir svokölluðu réttrúuðu mótmæl- endur halda að sálin sé gædd méðvit- und og að hún við dauðann fari til Guðs, eða ef hún sé vond, ofan í eld endalausra kvala. Af þessum þremur Adrðist kenning mótmælendanna Aæra hin óttalegasta hvað hina óguðlegu snertir. Allar þessar kenningar eru villur. Hinir dauðu eru ekki gæddir meðvitund. þeir ‘“vita ekkert.” Eina von þeirra ér upprisa framliðinna. G. B. T.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.