Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 3
Draumurinn um veraldarríkið pegar sonur Guðs var hér á jörðunni fyrir hér um bil 2,000 árum, voru margir, sem væntu þess, að hann stofn- setti sitt ríki og drotnaði yfir þeim sem konungur. peir urðu fyrir vonbrigð- um, því að hann vildi aðeins drotna í hjörtum mannanna. Af því að hann ekki tók þátt í veraldlegum stjórnmál- um og stjórnaði Gyðingunum sem kon- ungur og gjörði þá að mikilli þjóð, voru þeir margir, sem kunnu illa við hann. Hann minti þá stöðuglega á að ríki hans var ekki af þessum heimi. Við eitt tækifæri sagði hann þeim skýrum orð- um, að hann ætlaði til baka til föður síns: “Bg fer burt,” sagði hann, “til að tilbúa yður stað, og þegar ég er burt farinn, og hefi tilbúið yður stað, þá mun ég koma aftur og taka yður til mín, svo að þér séuð þar sem ég er.” Dærisveinarnir spurðu hann að ]?ví hvort hægt væri að vita hvenær hann mundi koma aftur. Hann kunngjörði þeim margt þessum atburði viðvíkjandi. Hann sagði þeim ýms teikn, serri mundu koma fram undan endurkomu hans, og að fagnaðarerindið um hans ríki mundi boðað verða um allan heim til vitnis- burðar fyrir öllum þjóðum, og þá, en ekki fyr, mundi endinnn koma, og liann koma aftur. Matt. 24: 14. Vér ættum að gefa gaum að þessum orðum, því að þau eru Jesú orð. End- urkoma hans verður takmark allrar syndar. pá mun öll sorg vera á enda. pá mun ekkert stríð eiga sér stað fram- ar. Hatur, ósamlyndi, veikindi og dauðinn munu ekki framar til vera. Á- standið eins og það er í heiminum í dag, mun þá taka enda. Hið mikla friðarríki verður þá stofnsett. Stjórnmálamenn eru áhyggjufyllri yfir ástandinu í heiminum, en hægt er að lýsa í orðum. En í Krists ríki mun engin áhyggja vera og heldur engin skapraun né plága. pað eru forréttindi vor að vita dálít- ið um þetta ríki. Guð vill að vér skilj- um. Mér er það óskiljanlegast af öllu, að biblían, sem er svo skýr, skyldi vera misskilin. pað kemur ekki Guði á óvart. Miklir og ógurlegir viðburðir eiga sér stað í heiminum á þessum tímum; en þetta kemur ekki Guði á óvart. JRáðagjörðir hans eru nákvæmlega framkvæmdar. Frá hásæti sínu stjórn- ar hann öllum himinhnöttum. peir hreyfa sig allir á réttum tíma. Gegnurn

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.