Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 6
(.) STJARNAN. ríki skal engu öðru fólki í hendur feng- ið verða; það mun knosa og að engu gjöra öll þessi ríki, en sjálft skal það standa að eilífu; fyrst, að þii sást, að steinn nokkur iosnaði við fjallið án handa tilverknaðar, og mölvaði járnið, leirinn, eirinn, silfrið og gullið. Sá hinn mikli Guð hefir kunngjört kon- unginum hvað hér eftir muni verða. Draumurinn er sannur, og þýðing hans áreiðanleg. ” 44, 45 versin. Draumur þeirra um veraldarríki verður að engu. Hvað mun hið næsta verða? Vér bíð- um eftir að sjá steininn falla. Hin 2,522 spádómsár eru nú orðin 2,522 söguár. Og vér lifum á dögum þessara venzluðu konunga. Guð sagði þessi ríki mundu aldrei sameinast aftur. Sumir hafa reynt að hnita þau saman með hjóna- böndum, aðrir með styrjöldum. þeir hafa reynt það núna. En Drottinn sagði að þau mundu ekki sameinast frekar en járn og leir samlagast.- Tnn an skamms munu þeir líða undir lok og aldrei í'ísa á legg aftur. Hvers vegna? Af því að Guð himnanna ætlar að hefja sitt eilífa ríki. það er einmitt þar sem vér erum í sögu þessa heims. ITvers vegna fellur ekki steinninn? Lesið texta vorn aftur: “Kenningin um Guðs ríki mun um gjörvallan heim boðuð verða til vitnisburðar fyrir öll- um þjóðum, og þá mun endirinn koma.” Matt. 24: 14. Kenningin um Guðs ríki er fagnaðar- boðskapúrinn um endurkomu Krists. þessi boðskapur er nú kunngjörður um allan heim. Verkið mun innan skamms verða bfxið. Vinir, vér höfum engan tíma að missa. Styrjaldar vindarnir blása og þeir munu aldrei til fulls verða stöðvaðir. Guð sagði að svo mundi verða fyrir 2,522 árum. Hann sá endalokin frá öndverðix. Hann nefndi Sýrus við nafn 113 árum áður en hann fæddisr., sem þann mann, er mundi leggja ]>a!r elsborg að velli. Guð getur horft inn í framtíðina og kunngjört hið ókomna. Áður en Jesxxs yfirgaf þessa jörð kendi hann oss að biðja: “Tilkomi þitt ríki; vei'ði þinn vilji svo á jörðu, sem á himni.” í hér um bil 1900 ár hafa menn beðið þessa bæn. það mun enginn verulegur friður verða fyr en friðarhöfðinginn kemur til að sækja þegna sína. I því ríki munu ekki vera nein veikindi, sorg eða dauði. Allir munxx verða hraxxstir, auðugir og ham- ingjusamir. Enginn, sem ekki hefir krýnt Jesxun konung síns hjarta mxxn koma inn þar. þetta er pei'sónulegt atriði. Hver maðxxr verðxxr að sjá_xim það fyrir sjálfan sig' að hann öðlist þegnrétt þar. það er ekkert, sem er svo áríðandi, sem þetta. Eilífðin breiðir sig út, framundan oss. Hvernig ert þú að hugsa um að nota hana. það eru aðeins tveir staðir. Öðx’U megin er eilíft líf, fögnuður og hamingja; hinu megin er eilífur dauði, eilíf gleymska. L.W. Hinir miklu landskjálftar á íslandi, Suður Ameríku, Porto Rico, Italíu og Kína eru vissulega tákn tínxanna. Svo ex’u einnig drepsóttirnar sem geysa og hallærið í hinum ýmsu löndum. Alt þetta ér uppfylling spádóma frelsarans og sýnir glögglega að vér lifunx á hin- um síðustu tímum. Orð Krists eru þessi: “Miklir landskjálftar munu verða og á ýmsum stöðum hallæri og drepsóttir; og verða munu xmða fyrir- burðir. ” Lixk. 21: 11. 1 I

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.