Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 20

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 20
20 STJARNAN. I HÁSKA Á SJÓ OG LANDI (Eftirfylgjandi grein er rituð af séra D. C. Babeock, sem hefir verið trúboði í Vestur Afriku. Með því að lesa þessa grein getur maður fengið glögga hugmynd um það sem fór fram á far- þegja skipum, sem pjóðverjar sökktu. —Ritstj.) “Sökum bilaðrar lieilsu ákváðum vér í september mánuðu, .1917, að yfirgefa mið Afriku og fara til landsins Oshogbo, þar sem er járnbrautarstöð, og’ hvar vér væntum að finna sendingu af nauð- synjavörum frá Ameríltu. Eftir tveggja daga ferð gegnum óbygðir komum vér þangað. par héldum vér kyrru fyrir í þrjár vikur. En mér skánaði ekki, svo vér ákváðum að leggja af stað til Lagos (hafnarbæjar á Nigeríu ströndinni), til þess að leita læknis þar. pegar vér komum þangað fór ég strax til Dr. Grey, sem stendiir fyrir spítalanum. Hann skoðaði blóð mitt og faiin að eg hafði ekki ei.nungis Brights veikina, eins og eg sjálfur hafði hugsað, heldur og veikindamerki hinnar óttalegu svefnsótt, sem oft og' tíðum geysar meðal svertingjanna. Hann sagði mér að ef eg vildi ná heils- unni aftur yrði eg tafarlaust að fara til Lundúnaborgar og leggjast inn á sjúkrahæli, þar sem þeir lækna alskonar sóttir, sem hvítir menn taka í heitu löndunum. Svefnveikin færist mann frá manni af Tsetse-flugunni, eins og loftslags- og gulaveikin drefist út af mýflugum. * Mér var hjúkrað á spítalanum þang- að til að gufuskipið “Apapa” sigldi til Englands. Eftir sjö daga siglingu komum vér inn á höfnina Sierra Leone. par urðum vér að bíða fimm daga eftir lierskipafylgd frá Suður Afriku. 14. nóvember kom herskipið, sem átti áð fylgja tíu skipum yfir hafið án þess að vita hvaða örlög mundu rnæta þeim. Hraði skipanna mátti ekki vera meiri en tíu mílur á vökunni til þess að her- skipið gæti haft tækifæri til ýmist að sigla til hægri og vinstri handar og leita að neðansjávarbátum. Á nótt- unni sigldum vér ljósalaust til þess að ekkert óvinaskip yrði vart við oss. pegar vér morgunin 26. nóvember komum upp á þilfarið, sáurn vér mörg bresk herskip kringum oss. Sum voru í tveggja til þiúggja rnílná fjarlægð til þess að engin kafbátur gæti nálgast oss. Næsta dag skiftust skipin í tvo hópa, því sum ætluðu til Liverpool og sum til Plymouth. Skipinu Sökkt. priðjudaginn, 27. nóvember, fói 'im vér öll' að hátta í þeirri von að vér

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.