Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 9

Stjarnan - 01.03.1919, Blaðsíða 9
STJARNAN. 9 T. f •? Hvorn þessara tveggja viljið þér fyrir föðisr ? SPURNINGAR TIL pEIRRA SEM HALDA AÐ MENNIRNIR SÉU KOMNIR FRA ÖPUM. Var aldingarðurinn heimili vorra fyrstu foreldra eða var dýragarðurinn ? Var Cluð eða apinn hinn fyrsti faðir mannkynsins? pessar spurningar mundu vera þýðingarlausar, væri það ekki að margir af hinum svokölluðu lærðu mönnum trúa fastlega á þróunar- kenninguna. Aðrir geta haldið því fram, ef þeir óska þess, að apinn, en ekki Adam sé forfaðir þeirra; en persónulega neita ég að prýða þá ætt. Biblían segir skýr- um orðum um Evu, að hún sé “móðir allra, sem lifa, ” þess vegna hlýtur Adam að vera faðirinn. Vér ætlum að standa á þeim fasta grundvelli að forfeður vorir voru virkilegar mann- legar verur frá sköpun heimsins. peir, sem fylgja þróunarkenningunni halda því fram að apinn ,sé að minsta kosti einni miljón ára eldri en maður- inn. Samkvæmt þess konar skynsem- isályktun, ætti þess vegna apinn að vera kominn á hærra stig en maðurinn; en hann er api enn og mun ætíð verða. Munu menn verða innilokaðir í búr? Hvað mun verða um þess konar menn, sem nú lifa á jörðinni eftir mil- jón áraf Munu hinir miklu framtíðar menn setja verur sem oss í búr og gefa þeim alskonar sælgæti og hnetur eins og vér gefum öpunum núna? Hvers vegna ekki ef þessi getgáta sé rétt? Hversvegna hafa vísindamennirnir í allri þeirra vizku ekki verið færir um að sýna oss “hinn týnda hlekk?” þeir hefðu átt að útskýra fyrir oss hvernig apinn varð fyrst siðferðislega ábyrgð- arfull vera og öðlaðist “ódauðlega sál.” Hvernig leit hann út í augum bræðra sinna, sem ekki voru svo hepnir sem hann ? Voru þeir ekki afbryðis- samir, eða litu þeir á hann, sem veru, cr hafði fallið frá sinni liáu stöðu? pað getur vel skeð að þegar þeir reyndu að “apa” eftir honum að þeir einnig yrðu rnenn. S.amt sem áður ef einn api varð maður, livers vegna- urðu ekki allir apar menn ? Heilög ritning segir: “1 upphafi skapaði Guð himin og jörð.” Hvernig getur nökkur maður gengið lengra til baka en til þessa upphafs. Biblían segir einnig, að “Guð skapaði mannin eftir sinni mynd. ” Eru þeir, sem segj- ast. vera komnir frá öpum fúsir til að yiðurkenna að þeir séu líkir honum pabba sínum? Lifði Adam aðeins einn dag? Sumir revna að teija oss trú um að dagarnir, sem nefndir eru í fyrsta kapi- tulanum í fyrstu Mósebók, séu miljónir ára. pá hefir Adam aðeins verið lítið sveinbarn, sem ekki varð dags gamalt;

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.