Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 32

Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 32
Miklar hamfarir eiga sér nú stað á jörðinni sem fáir veita athygli og lítið er rætt um opinberlega þó ærið sé tilefnið en það er viðstöðulaus og óvæginn samdráttur á líffræðilegri fjölbreytni á heimsvísu. Samdrátturinn lýsir sér í fækkun lífvera, búsvæði þeirra minnka, stofnar skreppa saman og tegundir deyja út. Í nýútgefinni skýrslu alþjóðlegu dýraverndarsam- takanna WWF eru tölurnar sláandi, 60% af dýralífi jarðar hafa horfið á síðustu 45 árum. Ótal margir dýra- stofnar eru að skreppa saman á óhugnanlegum hraða og stefnir í óafturkræfan tegundaútdauða á stórum skala. Hvað veldur þessu? Jú, orsökin er augljós, stöðug og vaxandi ásókn manna í auðlindir jarðar með til- heyrandi náttúruspjöllum. Sú aukna velmegun, hagvöxtur og neysla sem einkennir líf okkar er dýru verði keypt. Ósjálfbær landnotkun fyrir þéttbýlismyndun, landbúnað, námur eða samgöngu- og orku- mannvirki leiðir af sér gríðarlega búsvæðaeyðingu. Nytjastofnar í sjó og vötnum eru ofnýttir og veiði- þjófnaður ógnar mörgum land- dýrum. Umhverfismengun er enn gríðarlegt vandamál og þrátt fyrir betra regluverk hefur t.d. alltof lítið verið unnið gegn plastmengun í sjó. Framandi ágengar tegundir breiðast út og bola burt öðrum tegundum og þá eru ótaldar afleiðingar loftslags- breytinga á líffræðilega fjölbreytni. Það sorglega í stöðunni er að þrátt fyrir hversu augljóst og alvar- legt vandamálið er, hefur lítið sem ekkert gengið að snúa þessari þróun við. Fyrir 26 árum var undirritaður samstarfssamningur 196 þjóða á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um mikilvægi þess að vernda líf- fræðilega fjölbreytni. Metnaðarfull markmið, áætlanir og skuldbind- ingar þjóða hafa litið dagsins ljós en árangurinn algerlega látið á sér standa. Ástandið versnar bara og áhugi ráðamanna er lítill og mun minni en t.d. áhugi á loftslagsvand- anum. Nú stendur yfir gríðarlega mikilvægur fundur á vegum Sam- einuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni í Egyptalandi og standa vonir til að niðurstaða fundarins verði alþjóðleg samþykkt í anda við Parísarsamkomulagið um loftslags- mál, þar sem þjóðir heims munu standa saman um að snúa þessari þróun við. Óttast er að erfitt verði að ná slíku samkomulagi og er því ekki skrítið að nú heyrist skilaboð um að það „séu síðustu forvöð“ og að „framtíð mannkyns sé ógnað“. Því það er jú málið. Þessi alvarlega umhverfisvá mun á endanum koma niður á okkur mönnunum, og það á mjög afdrifaríkan hátt. Í daglegu amstri gleymist að við erum háð lífríki jarðar á svo ótal vegu. Oft er talað um þjónustu vistkerfa í þessu samhengi. Heilbrigð vistkerfi eru undirstaða þess að margvísleg hrá- efni fyrir fæðu, lyf og ýmiss konar varning séu til staðar. Býflugur og önnur skordýr fræva plöntur í landbúnaði. Heilbrigð votlendis- vistkerfi miðla hreinu drykkjar- vatni og vernda okkur gegn flóðum. Kolefnisbinding, hringrás vatns og steinefna, heilbrigði jarðvegs, hreinsun eiturefna úr umhverfinu að ónefndri sjálfri ljóstillífuninni – allt náttúrulegir ferlar þar sem líf- verur koma við sögu. Þá eru ótalin verðmætin í óspilltri og fjölbreyttri náttúru fyrir líkamlega og andlega heilsu fólks, og sem efniviður lista, menntunar og vísinda. Það er því óhætt að segja að mannkynið sé að skjóta sig í fótinn með framkomu sinni við lífríki jarðar. Hvað getum við gert ? Það er ekki of seint að bregðast við. Á þessum vettvangi er tækifæri fyrir Ísland að vera leiðtogi og kalla ég eftir við- brögðum stjórnvalda. Ísland er aðili að Samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og til er aðgerðaáætlun, en lítið hefur frést af henni undanfarið og málefnið fer ekki hátt hérlendis, ekki frekar en annars staðar. Úr þessu þarf að bæta. Umræðan um áhrif mannsins á lífríki og náttúru jarðar er krefjandi og óvægin, og er mjög mörgum ekki að skapi, enda kallar hún á stórfellda naflaskoðun um hvernig við högum lífsháttum okkar og gerir kröfur um samdrátt og minni umsvif. Það eru ekki óeðlileg við- brögð að loka eyrunum við slíku „bölmóðstali“ um boð og bönn og halda áfram að „liffa og njódda“. En ef við viljum vera ábyrgir jarðarbúar þá verðum við að horfast í augu við þessa alvarlegu stöðu og taka erfiðar ákvarðanir. Það er of mikið í húfi, ekki einungis fyrir þær tegundir líf- vera sem nú berjast fyrir tilverurétti sínum, heldur fyrir farsæla framtíð okkar á jörðinni. Neyðarkall náttúrunnar Snorri Sigurðsson líffræðingur Fyrir liggur og hefur lengi gert að náttúruperlur víða um Ísland eru í eigu einkaaðila, sem jafn- an rækta landið eða ekki. Alla jafna hefur fólk þó getað ferðast um án trafala eða hindrana, og notið þess sem landið hefur upp á að bjóða. Reglulega birtast fréttir af erlendum fjárfestum sem vilja festa kaup á jörðum hér á landi á misjöfnum forsendum: sumir fullyrða að ást þeirra á óspilltri náttúru sé hvatinn að baki kaupunum, aðrir hafa haft uppi áform um uppbyggingu. Það er vissulega ekki hægt að fullyrða um ætlanir erlendra fjárfesta, því hugur fólks er öðrum leyndur, en óttinn við náttúruspjöll er réttmætur. Landið er gersemi sem standa þarf vörð um og vernda. Yfirvöld hafa lengi velt fyrir sér takmörkunum á jarðarkaupum erlendra aðila enda er umræðan um eignarrétt einstaklingsins og getu yfirvalda til að skipta sér af honum ekki ný af nálinni. Líkt og önnur mikilvæg málefni samfélagsins, sem snerta á réttindum og skyldum almennings, er umræðunni aldrei lokið. Réttindi og skyldur þjóðar ná einnig til náttúrunnar og má þar nefna umræðuna um ákvörðunar- vald þjóðarinnar. Það er tilefni til að hugsa um hvar mörkin á milli heilags eignarréttar annars vegar og ákvörðunarvalds þjóðar hins vegar liggja. Hver er réttur náttúrunnar gegn spjöllum og ósjálfbærum fram- kvæmdum? Stóra spurningin er, hver ber ábyrgð á að vernda náttúr- una sem og hagsmuni almennings? Í frumvarpi stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá eru ákvæði sem ekki einungis taka til verndar nátt- úrunnar, heldur einnig réttar þjóð- arinnar til upplýsinga um ástand og framkvæmdir í náttúrunni. Í 33. gr. stjórnarskrár stjórnlagaráðs segir: „… Nýtingu náttúrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur. Með lögum skal tryggja rétt almennings til að fara um landið í lögmætum tilgangi með virðingu fyrir náttúru og umhverfi.“ Að auki segir 35. gr.: „Með lögum skal tryggja almenningi aðgang að undirbúningi ákvarðana sem hafa áhrif á umhverfi og nátt- úru, svo og heimild til að leita til hlutlausra úrskurðaraðilaaðila.“ Að gera ákvarðanaferli yfirvalda aðgengilegt almenningi eflir lýðræði í heild sinni og eru þessi ákvæði ein- ungis tvö af fjöldamörgum dæmum sem unnt væri að taka um hvernig vald efla á almenning með stjórnar- skrá þeirri sem samþykkt var í þjóðar atkvæðagreiðslu árið 2012. Ótti nærist á óvissu, og óvissa almennings liggur í valdleysi hans í ákvörðunartökum um framtíð landsins. Ef niðurstaða þjóðar- innar yrði virt, væri að einhverju leyti hægt að sefa ótta almennings um náttúru landsins og einmitt í því felst svarið. Ný Stjórnarskrá Íslands frá stjórnlagaráði verndar ákvörð- unarrétt þjóðarinnar, hún verndar náttúru Íslands, og hún verndar sjálfbæra framtíð fyrir komandi kynslóðir. Á þjóðin að hafa eitthvað um það að segja þegar náttúruperlur eru seldar erlendum fjárfestum? Katla Hólm Þórhildardóttir starfskraftur Öldu, félags um sjálfbærni og lýðræði Hver er réttur náttúrunnar gegn spjöllum og ósjálf- bærum framkvæmdum? Stóra spurningin er, hver ber ábyrgð á að vernda nátt- úruna sem og hagsmuni almennings? Frægasta eftirpartí Íslandssög-unnar var haldið í Breiðholt-inu. Nánar tiltekið á efstu hæð í fjölbýlishúsinu við Dúfnahóla 10. Þangað hópuðust tugir gesta í mjög einsleitu en þó misjöfnu ástandi eftir tónleika hljómsveitarinnar HAM í miðborg Reykjavíkur. Það fyrsta sem gestirnir gerðu þegar þeir höfðu ruðst inn í íbúðina var að sparka skrautmunum ofan af stássborðum og leggjast svo í símann til þess að redda áfengi. Íbúðin var nefnilega ekki beinlínis búin undir að taka á móti stórum hópi djammþyrstra ungmenna, enda var hún innréttuð eftir smag og behag roskinnar móður sögu- hetjunnar í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík, og yrði seint lýst sem sérlega partívænu húsnæði—jafn- vel eftir að gestirnir voru búnir að kveikja á blysum inni í stofunni og byrjaðir að skjóta flugeldum ofan af svölunum. Hin roskna húsfrú svaf svo fast að hún rankaði ekki við sér í gaura- ganginum og svaf það meira að segja af sér þegar hún var borin út á dýnunni, pakkað saman inn í lyftuna og hlaðið ofan í lítinn bát á bílastæðinu. Það var ekki fyrr en hún var komin á flot niður Elliða- árnar—og eftir að vatni hafði verið hleypt í gegnum stífluna—að hún loksins vaknaði; og þá reyndar með verulegum andfælum. Tilefnislaust partí Flestir muna eflaust tilefni partísins. Það var byggt á algjörum misskilningi. Söguhetjan Alex var í sakleysi sínu að hrópa heim- ilisfang sitt til hins harðsvíraða glæpamanns Mola í síbyljandi hávaða þungarokkstónleika þegar tónlistarmennirnir gerðu skyndi- lega og fullkomlega ófyrirsjáan- lega kúnstpásu. Hrópið hljómaði því ómengað yfir allan skarann. „Dúfnahólar 10,“ hrópaði hann og orðrómurinn barst á augabragði frá manni til manns. Kvöldinu var bjargað. Enginn þurfti að óttast um afdrif sín eftir að klukkan sló þrjú. Það var partí í Dúfnahólum 10. Allt var þetta byggt á misskiln- ingi. Það stóð auðvitað aldrei til að halda neitt partí í Dúfnahólum 10. Það hefði reyndar hverjum manni mátt vera ljóst um leið og komið var þangað inn og veislugestir höfðu tækifæri til þess að kynna sér aðbúnaðinn örlítið nánar. En þá var vitaskuld orðið alltof seint að fara að gera eitthvað í þessu og allsendis óvíst að hægt væri að komast í partí einhvers staðar annars staðar svona seint um kvöldið. Úr því sem komið var gat atburðarásin ekki orðið önnur heldur en sú sem varð, að íbúðinni var rústað í gleðskapnum. Ekkert við því að gera. Partíþyrstir tónleikagestir hefðu aldrei látið bjóða sér annað en að halda þetta blessaða partí. Og því fór sem fór. Eins og gjarnan er með eftirpartí þá féll það í hlut einhverra allt annarra að mæta afleiðingunum daginn eftir, laga til í íbúðinni og borga fyrir skemmdirnar. Þeir brenna sig sjaldnast á eldunum sem fyrstir kveikja þá. Misskilningur Nú hefur þess orðið mjög vart á síðustu vikum að alls konar mis- skilningur hefur grafið um sig um innleiðingu á svokölluðum þriðja orkupakka sem Íslandi ber að innleiða vegna þess að við erum meðlimir í fríverslunarbandalagi Evrópuþjóða—Evrópska efna- hagssvæðinu. Eins og mjög mörg önnur löggjöf sem íslenskir stjórn- málamenn hafa neyðst til að setja í lög á grundvelli þessa samstarfs þá er tilgangur hennar að stuðla að heilbrigðari og betri markaði með afurð sem er mikilvæg fyrir bæði neytendur og framleiðendur—sem sagt raforku. Löggjöfin er vitaskuld sniðin að hinum sameiginlega markaði í Evrópu og mun ekki hafa teljandi áhrif á Íslandi nema hingað verði lagður sæstrengur. Og jafnvel þá er ekki verið að leggja til að einhverjar ömurlega ósanngjarnar sérreglur gildi um Ísland, heldur bara þær nákvæm- lega sömu og um hina 500 milljón íbúa þeirra landa sem við eigum í svo nánu og verðmætu sambandi við. Rangur misskilningur Til eru þeir sem hafa mikinn áhuga á því að gera mikla grýlu úr þessari löggjöf. Og einhvern veginn hefur það gerst að búið er að hvísla ýmsum misskilningi og rangtúlk- unum í eyru þeirra sem langar ákafast í einhvers konar pólitískt upplausnarpartí. Stjórnvöld eiga vitaskuld í verulegum vandræðum með að leiðrétta spunann því það getur nefnilega verið mjög erfitt að afboða í eftirpartí þegar leigu- bílarnir eru lagðir af stað. Alveg eins og partígestirnir í Dúfnahólum 10 þurftu ekki að taka minnstu ábyrgð á afleiðingum veisluhaldsins—þá munu þeir ekki þurfa að þrífa upp eftir sig sem harðast reka áróður gegn frjálsri verslun og evrópskri samvinnu um þessar mundir. Það mun falla í hlut ábyrgara stjórnmálafólks að greiða úr þeim flækjum sem fyrirsjáan- legar eru ef upplausnaröfl fá vilja sínum framgengt. Stolt eða hrædd? Þeir sem segjast hafa mestar áhyggjur af árásum á fullveldi Íslands eru einmitt þeir hinir sömu sem þykjast ná ekki upp í nef sér af reiði út í orkulöggjöfina evrópsku. En er það ekki eitthvað öfugsnúið? Lýsir það sérstöku stolti yfir fullveldi Íslands og getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum, að telja að Ísland þurfi sérstakar undanþágur frá því að hlíta sömu reglum og aðrir á sama markaði? Lýsir það kannski frekar hræðslu? Það má nefnilega teljast frekar ótrúleg vantrú á getu og hæfileika íslensku þjóðarinnar að hamast gegn því að okkar fólk hafi tækifæri til þess að starfa frjálst og opið á risastórum opnum markaði—með þeim kostum og göllum sem því fylgir. En það er ekkert að óttast. Íslendingar geta nefnilega verið mjög stoltir yfir því hvernig okkur hefur tekist að bæta lífskjör okkar á grundvelli frjálsrar verslunar við Evrópu. Áður en við leyfum okkur að fara á taugum yfir illa ígrund- uðum samsæriskenningum ættum við að líta vandlega í kringum okkur og sjá hversu verðmætt það er að heimamarkaður Íslands telur ekki aðeins 350 þúsund sálir, heldur hálfan milljarð. Og þeir sem vilja standa vörð um alla þessa miklu kosti þurfa líka að vera fljótari á fætur heldur en húsfreyjan í Dúfnahólum 10; svo við vöknum ekki ein á báti á náttfötunum einhvers staðar úti á hafi. Þá er lítil huggun í því að vitleysan hafi byggst á eintómum misskilningi. Partí í Dúfnahólum 10 Í dag Þórlindur Kjartansson Þessi alvarlega umhverfisvá mun á endanum koma niður á okkur mönnunum, og það á mjög afdrifaríkan hátt. Í daglegu amstri gleymist að við erum háð lífríki jarðar á svo ótal vegu. 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U d a g U r30 S k o ð U n ∙ F r É T T a b L a ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 D -2 C 5 4 2 1 7 D -2 B 1 8 2 1 7 D -2 9 D C 2 1 7 D -2 8 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.