Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 38
Ef maður hefur gert eitthvað rangt er að sjálfsögðu gott að skammast sín, en það getur
reynst mjög afdrifaríkt fyrir mann
eskjur að finna til óverðskuldaðrar
skammar, eins og algengt er með
fórnarlömb sifjaspella. Óverðskuld
uð skömm eyðileggur sjálfsmynd
barnsins og spillir lífsviðhorfum
þess. Börn sem hafa orðið fyrir kyn
ferðisofbeldi trúa því oft sjálf að þau
eigi það skilið, að Guð sé að refsa
þeim eða að þau hafi valdið því að
það gerðist.“ (Ekki líta undan, bls.
177.)
Sjálfsásökun
Ein algengasta afleiðing kynferðis
ofbeldis er sjálfsásökun og breytir
engu þó að skynsemin, annað fólk,
og meira að segja öll rök, vitni um að
sökin sé aldrei þess sem fyrir ofbeld
inu verður. Margar ástæður liggja þar
að baki. Þolendum kynferðisofbeldis
er oft sagt að þeir hafi viljað ofbeldið.
Þeim er hótað hefndum komist það
upp og jafnvel þó að þeim sé ekki
hótað er skömmin oft yfirsterkari
lönguninni til að segja frá. Sjálfs
ásökunin á sér einnig upphaf í því
að hafa ekki komist undan, að hafa
„látið ofbeldið gerast“, eins fáránlegt
og það hljómar. Sumir ofbeldismenn
gefa fórnarlömbum sínum gjafir,
peninga eða annað og mikil skömm
hlýst af því að hafa þegið gjafir frá
ofbeldismanninum.
Kynferðisofbeldi á sér oftast stað
á milli einstaklinga sem tengjast.
Það fylgir því meiri skömm að faðir,
bróðir, afi eða kærasti sé gerandi
ofbeldisins en ókunnugur maður í
dimmu skuggasundi. Slík áföll trufla
þroska barna á mjög djúpstæðan
hátt, afskræma sjálfsmyndina og
brjóta gegn sjálfsforræði þeirra.
Ráðist er á líkamann, hann særður
og svívirtur og skömmin er svar við
því hjálparleysi sem fylgir slíkri árás
á líkamlegt sjálfræði og niðurlægingu
í viðurvist annarrar manneskju.
Ofmat á því að skila skömminni
Skömmin er lykilþáttur í andlegum
þjáningum og tilfinningavanda
þeirra sem verða fyrir kynferðis
ofbeldi og eitt af einkennum áfalla
streitu. Hún er greypt í hina kynjuðu
menningu þar sem hún er öflugt
verkfæri í vopnabúri karla og elur
á kynferðislegri skömm hjá konum.
Sterkt batamerki þegar unnið er
úr afleiðingum kynferðisofbeldis er
þegar þolandi finnur að skömmin
hefur minnkað. Því miður er sú
goðsögn lífseig að þolendur þurfi
bara „að skila skömminni“ og þá
verði þeir frjálsir og lausir við áfalla
streitu, neyslu eða aðrar afleiðingar
ofbeldisins. Þetta er ótrúlega mikil
einföldun á djúpstæðum tilfinn
ingum. Í fyrsta lagi er með þessu
verið að hvetja þolendur til að skila
skömminni til ofbeldismannsins
sem í langflestum tilvikum er ekk
ert á því að taka á móti skömm sem
hann finnur ekki á nokkurn hátt
fyrir! Í öðru lagi er enn og aftur verið
að koma ábyrgðinni á verknaðinum
yfir á þolandann.
Segðu frá
Öflugasta leiðin til að losna við
skömmina er að tala um ofbeldið.
Skömmin fær þrifist í skjóli leynd
ar. En áríðandi er að frásögnin sé
algjörlega á forsendum þolandans
og að hún fari í upphafi fram þar
sem þolandinn upplifir öryggi,
traust og trúnað. Forsíður dagblaða
og netmiðla bjóða ekki upp á slíkar
aðstæður. Hins vegar þarf að tala
opinskátt um kynferðisofbeldi og
það ber fyrst og fremst að gera af
virðingu við þolendur. Þeir eiga það
skilið af samfélaginu og jafnframt að
talað sé um gerendur á opinskáan
hátt, án allrar meðvirkni.
Skömmin
þrífst í þögninni
Kristín
I. Pálsdóttir
í ráði Rótarinnar
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
í ráði Rótarinnar
Mér ofbýður minnimáttarkennd og undirlægjuháttur þingmanna gagn
vart erlendum auðmönnum, og mér
ofbýður virðingarleysi þingmanna
gagnvart eldri borgurum, öryrkjum
og öðrum þeim sem vart hafa til
hnífs og skeiðar.
Starfandi fiskeldisfélag, sem er að
mestu eða öllu leyti í eigu útlend
inga, eykur starfsemi sína án þess
að hafa öll tilskilin starfsleyfi. Er það
lögbrot eða hvað?
Á 24 tímum rennur í gegn á
Alþingi, mótmælalaust, bráða
birgðafrumvarp sem gerir þessu
fyrirtæki kleift að halda áfram. Á 24
tímum.
Undanfarna áratugi hefur alltaf
í aðdraganda kosninga verið lofað
að bæta kjör þeirra sem verst eru
staddir.
Efndir svikinna kosningaloforða
þekkja allir. Þetta er ekki hægt,
kostar of mikið og áfram bla, bla,
bla. Þær litlu breytingar sem gerðar
hafa verið til að bæta lífsgæði þeirra
verst settu eru ekkert annað en dúsa
ofan á dúsu.
Fyrirhuguð 3,4% hækkun á
greiðslu til eldri borgara frá Trygg
ingastofnun um næstu áramót er
ekkert annað en dúsa og til skamm
ar þingmönnum, sama hvar í flokki
þeir eru.
Hvar er ykkar sómatilfinning?
Ykkur skortir dug og kjark til að
breyta ónýtu kerfi í þá átt að það
virki sem alvöruvelferðarkerfi fyrir
allt þjóðfélagið sem því miður er
orðið þannig í dag að lífsgæðum er
svo misskipt að stór hluti fólks rétt
skrimtir, er undir fátækramörkum
meðan aðrir lifa í vellystingum
praktuglega.
En fyrir fiskeldisfyrirtæki með
mjög umdeilda starfsemi, að mestu
eða öllu leyti í eigu erlendra auð
manna, þá er allt sett á fulla ferð í
Alþingi og málið klárað, leyst 1, 2,
og 3.
Ef þið haldið að svona gjörningur
auki virðingu Alþingis þá eruð þið á
algjörum villigötum. Virðing verður
aðeins áunnin með góðum verkum.
Ég vil taka það fram að ég vil Vest
firðingum allt hið besta, vann um
tíma á Ísafirði, leið vel í þeirra sam
félagi og óska þeim alls hins besta.
Það eru vinnubrögð þingmanna,
forgangsröðun verkefna og van
virðing þeirra gagnvart samlöndum
sínum sem mér ofbýður.
Mér ofbýður
Kjartan
Mogensen
eldri borgari
Fyrir skömmu réðst ég í fyrirbyggjandi viðhald á fasteign minni. Framkvæmdin var
ekki stór í sniðum né tímafrek, ég
keypti efni og vinnu iðnaðarmanns
í fimm tíma. Kostnaður við verkið
með virðisaukaskatti var nokkru
hærri en samanlagðar nettó mán
aðartekjur mínar frá lífeyrissjóði og
Tryggingastofnun, eftir skatt. Ekk
ert eftir til að kaupa mat þennan
mánuðinn! Ég fæ greiðslur úr all
sæmilegum lífeyrissjóði og að auki
lágmarksgreiðslu frá Trygginga
stofnun, skerta vegna tekna frá
lífeyrissjóðnum. Margir eldri borg
arar hafa lægri tekjur en ég. Saman
lagðar eru tekjur mínar kr. 300.000
á mánuði. Ef ég á fé á bankareikn
ingi skerða vaxtatekjurnar greiðslur
frá Tryggingarstofnun. Ef ég á maka
sem á fé á bankareikningi þá eru
vaxtatekjur okkar lagðar saman
og deilt með tveimur, og við skerð
umst jafnt hjá TR. Var einhver að
tala um fjárhagslegt sjálfstæði ein
staklinga?
Nýjustu rannsóknir sýna að
meðallaun launafólks eru um kr.
700.000 á mánuði, fyrir skatt. Hefur
rannsókn verið gerð á launum og
lífeyri eldra fólks? Ekki svo ég viti,
en ég veit að margt eldra fólk býr
við þröngan kost, einkum fólk sem
ekki hefur áunnið sér mikil rétt
indi í lífeyrissjóði. Sumir lífeyris
sjóðir hafa skorið niður greiðslur
af ýmsum orsökum. Lífeyrissjóða
kerfið á Íslandi er dýrt í rekstri. Þar
er hægt að bæta úr til dæmis með
því að sameina sjóði og fækka þeim
og lækka kostnað. Upphaflega áttu
greiðslur frá lífeyrissjóðum að vera
viðbót við lögbundinn lífeyri frá
Almannatryggingum (nú Trygginga
stofnun). Það breyttist. Hverjir sam
þykktu þá breytingu?
Stundum er sagt að eldri borgarar
viti ekkert hvað þeir vilji í kjaramál
um. Nokkrar réttlætiskröfur ættu þó
allir að geta sameinast um:
1. Skerðingar á greiðslum frá
Tryggingastofnun, vegna
atvinnutekna, greiðslna úr líf-
eyrissjóðum og fjármagnstekna
ber að afnema. Svona skerð-
ingar þekkjast ekki í nálægum
löndum. Afnema millifærslur
vegna tekna maka, og banna
alla mismunun á því hvort fólk
búi eitt, eða sé í sambúð eða
hjónabandi. Heimilisuppót verði
færð inn í grunngreiðsluna, sem
verði jöfn til allra sem rétt eiga á
greiðslum frá TR.
2. Tekjur undir kr. 300.000 verði
skattfrjálsar. Þetta eigi jafnt
við eftirlaunafólk og launþega.
Þarna erum við samstiga verka-
lýðshreyfingunni. Hætt verði að
skattleggja fátækt. Þar á að láta
virðisaukaskattinn nægja, sem
allir sem kaupa eitthvað, greiða.
Að mínu mati eru þetta lágmarks
kröfur.
Er þetta ekki dýrt? Svar: Alls ekki.
Stór hluti kostnaðarins við þessar
aðgerðir mun koma aftur til ríkisins
sem virðisaukaskattur af aukinni
veltu. Eldra fólk og láglaunafólk
mun veita sér meira, kaupa meira
af vörum og þjónustu. Það verður
kærkomin innspýting í efnahags
lífið þegar ferðaþjónustan sér fram
á samdrátt.
Þetta kæmi einnig fram sem inn
lánaaukning hjá bönkum, og ekki
síst í lækkandi sjúkrahúskostnaði og
umönnunarkostnaði hjá öldruðum.
Langvarandi fátækt skerðir líkam
lega og andlega heilsu. Er ekki betra
að eldra fólk geti valið þá þjónustu
sjálft sem það þarfnast, og greitt
fyrir hana, en að halda því í fátækt?
Er hægt að ná þessu fram? Svar:
Já. Verkalýðshreyfingin er að fara
af stað með sína kjarabaráttu í
haust. Kjararáð og stjórnvöld hafa
lagt línurnar fyrir kjarabætur. Eldri
borgarar eiga að ganga í lið með
verkalýðshreyfingunni og fá þar
stuðning. Stjórnir Landssambands
eldri borgara, og félaga eldri borgara
eiga að vera í forystu. Þótt við getum
ekki farið í verkfall, þá getum við
mótmælt á Austurvelli og víðar.
Ég þakka Björgvin Guðmundssyni
fyrir allar vel skrifuðu greinarnar
sem hann hefur birt um kjaramál
eldra fólks. Er ekki kominn tími á
breytingar?
Á eldra fólk að vera þurfalingar?
Ólafur
Kristófersson
eftirlauna-
maður
Garðabær var fyrst íslenskra sveitarfélaga til að setja sér lýðræðisstefnu árið 2010.
Alla tíð síðan hefur íbúasamráð
skipað veigamikinn sess í störfum
bæjarins. Síðastliðin fjögur ár voru
til dæmis haldnir 37 opnir íbúa,
samráðs og kynningarfundir.
Nýverið samþykkti bæjarstjórn
tillögu undirritaðra sem miðar að
því að efla enn frekar íbúasamráð
með því að setja það í formfastari
farveg og leita nýrra leiða í samtali
við íbúa.
Sterk tengsl við íbúa eru mikilvæg
Grundvallarskylda sveitarstjórna
er að taka ákvarðanir með hliðsjón
af þörfum og hagsmunum íbúa og
sveitarfélagsins í heild eins og fram
kemur í nýútkominni handbók um
íbúasamráð og þátttöku íbúa sem
Samband íslenskra sveitarfélaga
gefur út. Sterk tengsl við íbúa sem
þekkja eigin nærumhverfi best
skapar forsendur fyrir samráðs
menningu og farsælli ákvarðana
töku. Íbúasamráð á að vera fastur
liður í stjórnkerfi sveitarfélaga.
Rannsóknir bæði hérlendis og
erlendis sýna að sveitarstjórnir sem
koma sér upp samráðsmenningu
njóta meira trausts meðal íbúa og
þar ríkir meiri ánægja með stjórnun
og þjónustu.
Íbúasamráð og bæjarbragur
Undir heitinu „Góður Garðabær“
mun Garðabær með markvissum
hætti skilgreina leiðir til að auka
enn frekar íbúasamráð, m.a. með
því að íbúar skilgreini sjálfir verk
efni og kjósi síðan um hvaða verk
efni eiga að hljóta framgang. Þannig
verður leitað til bæjarbúa varðandi
hugmyndir að nýframkvæmdum
og/eða viðhaldsverkefnum með
áherslu á öryggi bæjarbúa, hreyfi
og leikmöguleika og aukin lífsgæði
í nærumhverfi og hverfum. Einnig
verður lögð áhersla á verkefni sem
efla bæjarbraginn í heild sinni. Til
lagan felur í sér að þegar á næsta ári
verði stigið skref í þessa átt með því
að verja ákveðinni fjárhæð í málið
sem hægt verður að hækka þegar
reynsla er komin á vinnulagið og
árangur verklagsins verður sýni
legur. Markmiðið er að efla með
markvissum hætti lýðræðisleg
vinnubrögð í sveitarfélaginu og
verja fé til framkvæmda eftir for
gangsröðun íbúanna sjálfra.
„Góður Garðabær“ – Íbúalýðræði aukið
Almar
Guðmundsson
Sigríður Hulda
Jónsdóttir
Markmiðið er að efla með
markvissum hætti lýðræðis-
leg vinnubrögð í sveitar-
félaginu og verja fé til fram-
kvæmda eftir forgangsröðun
íbúanna sjálfra.
Framkvæmdin var ekki
stór í sniðum né tímafrek,
ég keypti efni og vinnu
iðnaðarmanns í fimm tíma.
Kostnaður við verkið með
virðisaukaskatti var nokkru
hærri en samanlagðar nettó
mánaðartekjur mínar frá
lífeyrissjóði og Trygginga-
stofnun, eftir skatt. Ekkert
eftir til að kaupa mat þennan
mánuðinn!
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í Garðabæ
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r36 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
C
-F
1
1
4
2
1
7
C
-E
F
D
8
2
1
7
C
-E
E
9
C
2
1
7
C
-E
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K