Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 58
Nýjast
Fótbolti Freyr Alexandersson hefur
haft í nógu að snúast í haust. Þessa
dagana er hann að leikgreina alla
leiki íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu á þessu ári og búa til
skýrslu yfir leikfræði liðsins. Hann
segir jákvæða hluti hafa fengist út úr
leikjunum í Þjóðadeild UEFA þrátt
fyrir að uppskeran hvað stigasöfnun
varðar hafi verið rýr.
„Það tók auðvitað sinn tíma fyrir
mig og Hamrén að kynnast. Eftir
þessa törn í haust þekkjumst við
betur og það er komin skýr mynd
á verkskipulagið hjá okkur. Það var
ekki svo að Hamrén hafi ætlað að
kollsteypa öllu og hafi orðið aftur-
reka með sína hugmyndafræði þrátt
fyrir skellinn gegn Sviss. Það var
bara slys og það sást best á leikjun-
um þar á eftir að það var einsdæmi
hjá þessu liði.
Eitt af því sem við höfum lært á
leiðinni er að það er heillavænlegra
að spila með blöndu af svæðisvörn
og dekkun í föstum leikatriðum.
Við höfum náð betri tökum á því
hvernig við viljum verjast á þeim
vettvangi og gert bragarbót þar á
í síðustu leikjum,“ segir Freyr um
fyrstu leikina sem Hamrén og Freyr
stýrðu.
„Við sáum það einnig í þeim leik
að þrátt fyrir að breiddin í leik-
mannahópnum hafi aukist þá má
íslenska liðið ekki við því að missa
jafn marga lykilleikmenn og raun
bar vitni í leiknum gegn Sviss ytra.
Þeir leikmenn sem komu inn í stað
þeirra sem hafa verið fjarverandi
hafa hins vegar vaxið hratt í þau
hlutverk sem þeim eru ætluð og
bætt sig leik frá leik. Leikmenn á
borð við Arnór Sigurðsson og Albert
Guðmundsson eru komnir langt í
sínu þróunarferli og þeir banka fast
á dyrnar annaðhvort í byrjunarliðið
eða að koma inn sem varamenn sem
breyta gangi leikja,“ segir hann enn
fremur.
„Við fengum að kynnast mörgum
leikmönnum í þessum leikjum. Það
má í raun segja að sá leikmanna-
hópur sem við höfðum í þessum
leikjum hafi innihaldið marga leik-
menn sem ætlunin var að skoða í
þeim verkefnum sem eru áformuð
í janúar.
Þannig höfum við skýra mynd af
því hversu langt ákveðnir leikmenn
eru komnir og hvernig þeir passa
inn í þá hugmyndafræði sem við
komum til með að spila eftir.
Það kom líka skemmtilega á óvart
hversu vel tókst til að spila í þriggja
miðvarða leikkerfi. Það er gott að
hafa náð að bæta vopnum í vopna-
búrið hvað leikkerfi varðar,“ segir
Breiðhyltingurinn um þá jákvæðu
punkta sem taka má úr undan-
förnum leikjum.
„Ég er núna í þeirri vinnu að leik-
greina alla leiki ársins og gefa leik-
mönnum endurgjöf á þá leiki sem
við vorum að spila við Belgíu og
Katar. Við vorum ánægðir með viss
atriði í þeim leikjum og mér finnst
hafa verið stígandi í spilamennsku
liðsins undir okkar stjórn.
Ég sé það hins vegar betur þegar
ég er búinn að leikgreina leikina á
nánari hátt en mögulegt er á milli
leikja hvaða lærdóm við getum
dregið af leikjunum. Við þurfum að
huga vel að smáatriðunum í okkar
leik og við verðum að halda áfram
að leika á eins taktískt fullkominn
hátt og mögulegt er til þess að ná í
hagstæð úrslit," segir hann um verk-
efni sín þessa dagana.
„Ég hef þó nokkuð verið að velta
vöngum yfir því eftir að ég tók við
þessu starfi hvers vegna þeir leik-
menn sem eru að koma upp í A-
liðið þessa stundina og á næstunni
hafa allir svipaða eiginleika. Það er
ósamræmi milli þess hversu marga
leikmenn við eigum í hæsta gæða-
flokki í U-21 árs liðinu aftarlega og
framarlega á vellinum. Hugsanlegt
er að yfirmaður knattspyrnumála
geti gripið inn í svona þróun á fyrri
stigum.
Ég er hins vegar ekki viss um hvert
hlutverk hans verður, mér finnst
það svolítið óljóst. Það verður svo
bara að koma í ljós hvernig sá aðili
getur nýst okkur landsliðsþjálfur-
unum,“ segir aðstoðarlandsliðs-
þjálfarinn um þróun mála í íslenska
knattspyrnusamfélaginu.
hjorvaro@frettabladid.is
Yngri leikmenn skrefinu nær
Handbolti Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta lék síðasta æfinga-
leik sinn fyrir undankeppni HM
2019 í gær þegar liðið tapaði með
sex mörkum, 29-23 gegn B-liði Nor-
egs. Íslenska liðið lék tvo æfingaleiki
í Noregi, vann sex marka sigur á
Kína en átti kaflaskiptan dag gegn
Noregi í gær.
„Þetta var kaflaskipt hjá okkur,
það var mikill stígandi í leiknum
gegn Kína. Þær eru með öðruvísi lið
sem það tók tíma að læra inn á en
við gerðum vel í að klára þann leik.
Gegn Noregi fórum við illa með
færin okkar framan af og eftir það
vorum við alltaf að eltast við þær
þótt mér hafi fundist sigurinn full
stór.“
Þrátt fyrir að þetta hafi verið B-lið
Noregs var þetta gríðarlega sterkur
mótherji.
„Þetta voru frábærir leikmenn
sem við vorum að mæta, leikmenn
úr toppliðum í Danmörku sem
eru reglulega í Meistaradeildinni.
Markvörðurinn þeirra er í fremstu
röð og hún var okkur erfið, tók þrjú
hraðaupphlaup og eitt vítaskot í
fyrri hálfleik. “
Að mati Axels var hægt að byggja
margt á þessum leikjum fyrir und-
ankeppnina sem hefst eftir viku.
„Breiddin í liðinu er að aukast
sem er ánægjulegt og sóknarleikur-
inn gekk lengst af vel. Við gerðum
ekki mörg mistök en fórum illa með
færin okkar. Við erum að byggja upp
nýtt lið í rólegheitunum og erum að
reyna að taka næsta skref.“ – kpt
Sóknarleikurinn hefur tekið framförum
Aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Freyr slær hér á létta strengi á æfingu á Laugardalsvelli í haust. FréttAbLAðið/ernir
Breiddin í liðinu er
að aukast og sóknar-
leikurinn er að taka fram-
förum sem er jákvætt.
Leikurinn gegn Sviss
ytra var slys eins og
sást best í næstu leikjum
liðsins. Þetta var einsdæmi.
Landsliðsþjálfarinn Axel Stefánsson var ánægður með sóknarleik liðsins í
æfingaleikjunum gegn Kína og noregi í vikunni. FréttAbLAðið/ernir
Skipt var um menn
í brúnni hjá íslenska
karlalandsliðinu í knatt-
spyrnu í haust. Hveiti-
brauðsdagarnir hjá
Erik Hamrén og Frey
Alex anderssyni hafa
verið þyrnum stráðir.
Freyr Alexendarsson,
aðstoðarþjálfari íslenska
liðsins, ræddi við Frétta-
blaðið um fyrstu leiki
hans við stjórnvölinn og
framhaldið.
noregur - Ísland 29-23
Ísland: Arna Sif Pálsdóttir 5, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 4, Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir 4, Lovísa Thompson 4, Thea Imani
Sturludóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 2, Ragn-
heiður Júlíusdóttir 1, Díana Dögg Magnús-
dóttir 1, Eva Björk Davíðsdóttir 1.
Vináttulandsleikur
Þór Þ. - Skallagrímur 87-74
Þór Þorlákshöfn: Halldór Garðar Her-
mannsson 27, Nikolas Tomsick 19/11
stoðsendingar, Jaka Brodnik 19, Kinu Roch-
ford 13, Ragnar Örn Bragason 6, Emil Karel
Einarsson 2,Magnús Breki Þórðarson 1.
Skallagrímur: Aundre Jackson 16, Eyjólfur
Ásberg Halldórsson 14/10 fráköst, Matej
Buovac 13, Domagoj Samac 10, Bergþór
Ægir Ríkharðsson 7, Bjarni Guðmann
Jónsson 7, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5,
Guðbjartur Máni Gíslason 2.
tindastóll - Ír 92-51
tindastóll: Pétur Rúnar Birgisson 22,
Brynjar Þór Björnsson 20, Dino Butorac 16,
Philip B. Alawoya 13/13 fráköst, Danero
Thomas 12/11 fráköst, Helgi Freyr Margeirs-
son 3, Helgi Rafn Viggósson 2, Hannes Ingi
Másson 2,Friðrik Þór Stefánsson 2.
Ír: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15, Hákon
Örn Hjálmarsson 11,Gerald Robinson 8,
Justin Martin 5, Sæþór Elmar Kristjánsson
5, Einar Gísli Gíslason 3, Trausti Eiríksson 2.
Kr - Grindavík 85-95
Kr: Julian Boyd 20/15 fráköst, Jón Arnór
Stefánsson 19, Dino Stipcic 13, Björn Krist-
jánsson 12, Kristófer Acox 10, Orri Hilmars-
son 7, Finnur Atli Magnússon 2, Vilhjálmur
Kári Jensson 2.
Grindavík: Lewis Clinch Jr. 25, Jordy Kuiper
22, Tiegbe Bamba 16, Ólafur Ólafsson 15,
Sigtryggur Arnar Björnsson 11, Hilmir Krist-
jánsson 3, Hlynur Hreinsson 3
efri
Tindastóll 14
Njarðvík 12
Keflavík 12
KR 10
Stjarnan 8
ÍR 8
Domino’s-deild karla
neðri
Þór Þ. 6
Haukar 6
Grindavík 6
Skallagrímur 4
Breiðablik 2
Valur 2
Fótbolti Tilkynnt var í gær að sam-
starf Þórs/KA í kvennknattspyrnu
myndi halda áfram næstu fimm árin
eftir undirritun samning þess efnis.
Sameiginlegt lið Þórs og KA hefur
unnið tvo Íslandsmeistaratitla, fyrst
árið 2012 og síðar árið 2017. Þá
hefur liðið þrisvar leikið í Meistara-
deild Evrópu og komst í 32-liða
úrslitin í ár.
KA vildi slíta samstarfinu árið
2017 en hætt var við það um vorið.
Var þess í stað undirritaður nýr
tveggja ára samstarfssamningur sem
var í dag framlengdur til ársins 2023.
Kemur fram í tilkynningunni á
heimasíðu Þórs að áhersla verði
lögð á að samstarfið nái til meistara-
flokks, annars flokks og varaliðs
meistaraflokks. – kpt
Samstarf Þórs/
KA heldur
áfram til 2023
Sandra María hefur leikið 140 leiki í
fyrir Þór/KA. FréttAbLAðið/SteFán
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S t U d a G U r40 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
Sport
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
C
-E
2
4
4
2
1
7
C
-E
1
0
8
2
1
7
C
-D
F
C
C
2
1
7
C
-D
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K