Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 60

Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 60
www.stjornugris.is Stjörnugrís er eini íslenski framleiðandinn sem framleiðir eingöngu úr íslensku grísakjöti. Þú finnur vörurnar frá Stjörnugrís í öllum betri matvöruverslunum um land allt. Þessi eru líklegust til þess að taka við Hildur var aðstoðarþjálfari Ívars og er enn í dag leikjahæst hjá íslenska kvennalandsliðinu. Fréttablaðið/ernir Körfubolti Ívar Ásgrímsson til- kynnti það eftir lokaleik íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta í undankeppni EM 2019 á miðviku- dagskvöldið að hann væri hættur störfum sem þjálfari liðsins. Körfu- knattleikssambands Íslands bíður því það verkefni að finna arftaka hans á næstunni. Fréttablaðið tínir hér til nokkra mögulega eftirmenn hans. Hildur Sigurðardóttir hefur verið aðstoðarþjálfari Ívars með liðið síðan í október árið 2017 og liggur því nokkuð beint við að hækka hana í tign. Hún er leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 79 leiki, margfaldur meistari með félagsliðum sínum og hefur að loknum leikmannsferli einbeitt sér að þjálfun með góðum árangri. Hildur stýrði Breiðabliki upp í efstu deild í frumraun sinni sem þjálf- ari í meistaraflokki og liðið varð spútnik lið sem nýliði í efstu deild undir hennar stjórn tímabilið eftir. Ágúst Björgvinsson sem nú held- ur um stjórnartaumana hjá karla- liði Vals hefur áður þjálfað bæði félagslið í kvennaflokki og íslenska kvennalandsliðið með góðum árangri. Hann stýrði Haukum til bikarmeistaratitils vorin 2005 og 2007 og Íslandsmeistaratitils árin 2006 og 2007 og var ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í kjöl- farið og stýrði liðinu í tvö ár. Hann gæti stýrt kvennalandsliðinu sam- hliða því að halda áfram störfum hjá Val líkt og Ívar hefur gert hjá Haukum. Ágúst er sérfræðingur Stöðvar 2 Sport um Domino’s- deild kvenna og þekkir því vel til leikmannahópsins sem kemur til greina í liðið. Benedikt Guðmundsson hefur staðið sig feikilega vel í starfi hvert sem hann hefur farið. Nú síðast þegar hann kom KR á nýjan leik upp í efstu deild og í toppbaráttu efstu deildar. Hann er taktískt góður þjálfari sem er einkar fær í því að ná því besta út úr þeim leik- mönnum sem hann þjálfar. Auk þess að vera góður meistaraflokks- þjálfari er hann frábær yngri flokka þjálfari. Reynsla hans sem fær kenn- ari í þjálfarafræðum gæti komið sér vel fyrir ungt og efnilegt lið sem er í vissri endurnýjun. Darri Freyr Atlason skaust upp á stjörnuhimininn sem þjálfari í meistaraflokki þegar hann fór með Val í úrslitaeinvígið í Domino’s- deild kvenna á fyrsta ári sínu sem þjálfari meistaraflokksliðs. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann sann- að sig sem þjálfari í hæsta gæða- flokki. Eldmóður hans smitast til leikmanna og nær vel til þeirra leik- manna sem hann þjálfar. Ef hann getur stýrt leikmönnum á borð við Helenu Sverrisdóttur, Guðbjörgu Sverrisdóttur og Hallveigu Jóns- dóttur hjá félagsliði getur hann vel gert það hjá landsliðinu. Friðrik Ingi Rúnarsson lagði þjálfaraflautuna á hilluna síðasta vor, en gæti freistast til þess að kippa henni þaðan fyrir starf sem ekki krefst daglegs amsturs. Hann er margreyndur þjálfari sem hefur marga fjöruna sopið og gæti hentað mjög vel fyrir leikmannahóp þar sem stór hluti hefur ekki mikla reynslu af alþjóðlegum leikjum. Friðrik hefur þjálfað félagslið í bæði karla- og kvennaflokki með góðum árangri sem og íslenska karlalandsliðið. Þetta er eini vett- vangurinn sem hann hefur ekki verið á á þjálfaraferli sínum og gæti verið hentugur lokakafli á farsælum ferli hans. – hó Friðrik ingi rúnarsson. Darri Freyr atlason. Ágúst björgvinsson. benedikt Guðmundsson. Golf Klukkan 20.00 í kvöld munu Phil Mickelson og Tiger Woods, gömlu erkifjendurnir, brjóta blað í sögu golfíþróttarinnar. Þeir munu leika átján holur fyrir sérvalda gesti í Las Vegas og tekur sigurvegarinn heim með sér níu milljónir doll- ara að leikslokum. Er það meira en kylfingur fær fyrir að vinna öll fjögur risamót ársins og daðrar við upp- hæðina sem stigahæsti kylfingur ársins á PGA-mótaröðinni, FedEx- meistarinn, hlýtur í lok tímabilsins. Þá ætti þó ekki að vanta fyrir salti í grautinn enda eru þeir í efstu sætum peningalista PGA-mótaraðarinnar og hafa þeir unnið yfir tvö hundruð milljónir dollara undanfarin 25 ár. Þetta er í fyrsta sinn sem kylfingar í fremstu röð setja upp slíkt einvígi og hafa þeir tilkynnt að þeir muni hafa hljóðnema á sér til að áhorf- andinn heima í stofu geti hlustað á hliðarveðmál þeirra á milli. Það hófst strax á fyrsta blaðamannafundi, Phil lagði hundrað þúsund dollara eða rúmlega 12 milljónir íslenskra króna undir að hann myndi fá fugl á fyrstu holu dagsins og Tiger var fljótur að tvöfalda það. Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, segir að það sé ekki einsdæmi að kylfingar mætist í einvígjum en að aðdráttaraflið sem þessi leikur hafi sé þó einsdæmi. „Það er ekki hægt að segja að þetta sé í fyrsta sinn sem kylfingar mætast í einvígi. Shell stóð fyrir einvígjum fyrir eitthvað um þrjátíu árum en það var ekkert í líkingu við þetta. Það er óhætt að segja að það sé einsdæmi í golfi að þetta sé gert með þessum hætti og með þessu verðlaunafé,“ segir Haukur og heldur áfram: „Verðlaunaféð er nálægt FedEx- stigameistaratitlinum sem þótti svakalegt á sínum tíma. Annar hvor kylfingurinn labbar heim með níu milljónir eftir átján holur. Þetta er skemmtileg leið til að vekja athygli á golfinu þó að þetta sé auðvitað litað af peningunum.“ Phil og Tiger hafa barist um stærstu titla heimsins í yfir tuttugu ár. „Þeir eru búnir að vera að berjast um titla síðan 1996 og það er mikil saga þarna að baki. Þó að það sé hægt að segja að þeir séu komnir af sínu besta skeiði þá unnu þeir báðir mót nýlega og þeir eru báðir ótrú- lega góðir enn. Ef þetta tekst vel þá er aldrei að vita nema fremstu kylf- ingar heims fari að mætast í slíkum einvígjum á næstu árum.“ Sjálfur segist Haukur gera ráð fyrir að fylgjast með. „Ég fylgist eitthvað með þessu en get ekki verið alveg límdur yfir þessu enda ársþing GSÍ snemma daginn eftir,“ segir Haukur sem er ekki lengi að svara hver muni vinna mótið. „Tiger tekur þetta örugglega,“ sagði hann léttur að lokum. kristinnpall@frettabladid.is Golfíþróttin fetar nýjar slóðir Það var létt yfir tiger og Phil á blaðamannafundi í las Vegas þar sem þeir svöruðu spurningum blaðamanna í aðdraganda hringsins. norDicPHotos/Getty Samtals hafa þeir unnið 123 mót á PGA-mótaröðinni á ferlinum. Fyrrverandi erkifjendurn- ir Tiger Woods og Phil Mickelson brjóta blað í sögu golfíþróttarinnar í dag. Þeir leika átján hola einvígi upp á níu millj- ónir dollara í Vegas. 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 f ö S t u D A G u r42 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 7 C -F 6 0 4 2 1 7 C -F 4 C 8 2 1 7 C -F 3 8 C 2 1 7 C -F 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.