Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 64
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Okkar innilegustu þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts föður okkar, tengdaföður,
bróður, afa og langafa,
Jóns Hafsteins Jónssonar
stærðfræðings.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og
íbúum á Droplaugarstöðum fyrir samfylgdina síðustu ár.
Guðmundur Karl Jónsson
Olga Björg Jónsdóttir
Nanna Ingibjörg Jónsdóttir
Jón Ingvar Jónsson
Brigitte M. Jónsson
Ingvar Gýgjar Jónsson
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
Birkir Skarphéðinsson
Skálateigi 1, Akureyri,
lést 19. nóvember. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
29. nóvember kl. 13.30.
María Einarsdóttir
Hildur Birkisdóttir
Laufey Birkisdóttir Friðrik Karlsson
Guðrún M. Birkisdóttir Jóhannes R. Jóhannesson
Skarphéðinn Birkisson
afa- og langafabörn.
1589 Jakob 6. Skotakonungur gengur að eiga Önnu af Dan-
mörku.
1648 Krýning Friðriks 3. fer fram í Danmörku.
1654 Blaise Pascal lendir í slysi sem leiðir til þess að hann
fær opinberun og gerist trúaður.
1688 1.500 fylgjendur gamla siðar brenna sig lifandi til
að komast hjá handtöku þegar her Rússakeisara sest um
klaustur þeirra við Onegavatn.
1700 Giovanni Francesco Albani verður Klemens 11. páfi.
1838 Vígður nýr kirkjugarður í Reykjavík, Hólavallagarður
við Suðurgötu.
1912 Kólumbíska knattspyrnufélagið Deportivo Cali er
stofnað.
1916 Karlakór KFUM stofnaður. Síðar var nafni hans breytt í
Karlakórinn Fóstbræður.
1939 Suðaustur af Íslandi er háð fyrsta sjóorrusta í heims-
styrjöldinni síðari er þýsku herskipin Gneisenau og Scharn-
horst sökkva breska skipinu HMS Rawalpindi. Þar fórust um
270 menn en 23 var bjargað.
1947 Tyrone Power kvikmyndaleikari kemur við á Íslandi
og vekur heimsóknin mikla athygli.
1953 Félag íslenskra teiknara stofnað.
1971 Alþýðulýðveldið Kína tekur sæti Lýðveldisins Kína í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
1976 Flugvél frá Olympic Airways ferst á Ólympsfjalli með
þeim afleiðingum að fimmtíu láta lífið.
1976 Jacques Mayol setur met í fríköfun þegar hann kafar
niður á 100 metra á 3:39 við eyjuna Elbu.
1980 Nær 3.000 manns farast og 300.000 missa heimili sín í
Irpiníujarðskjálftanum á Ítalíu.
1981 Íran-Kontrahneykslið: Ronald Reagan gefur leyniþjón-
ustunni leyfi til að styðja Kontraskæruliða í Níkaragva.
1985 EgyptAir flugi 648 rænt af meðlimum hryðjuverka-
hóps Abu Nidal og flogið til Möltu þar sem egypska sér-
sveitin ræðst á flugvélina með þeim afleiðingum að 60
láta lífið.
Merkisatburðir
Þennan dag fyrir 26 árum fæddist bandaríska
tónlistar- og leikkonan Miley Cyrus í Nashville í
Tennessee-ríki Bandaríkjanna. Við fæðingu hlaut
hún nafnið Destiny Hope Cyrus en breytti síðar
eiginnafni sínu í Miley. Faðir hennar er bandaríski
kántrísöngvarinn Billie Ray Cyrus, móðir hennar
heitir Leticia Cyrus og guðmóðir hennar er engin
önnur en kántrí stjarnan Dolly Parton.
Miley öðlaðist frægð þegar hún lék hlutverk
Hönnuh Montana í samnefndum sjónvarps-
þáttum. Í kjölfarið lék hún í kvikmyndum sem
byggðar voru á þáttunum auk kvikmynda á
borð við LOL, So Undercover og The Night
Before.
Þá hefur Miley átt farsælan tónlistarferil.
Hún hefur gefið út plöturnar Breakout, Can’t
Be Tamed og Bangerz. Sú síðastnefnda hefur
hingað til selst í rúmlega milljón eintökum í
Bandaríkjunum.
Undanfarið hefur ungstirnið verið kynnir á
tónlistarverðlaunahátíð sjónvarpsstöðvarinnar
MTV, þjálfað í The Voiceog er að vinna að
plötunni Younger Now.
Þ etta g e r ð i st : 2 3 . n óv e m b e r 1 9 9 2
Miley Cyrus fæðist
breytingin var náttúrlega mjög mikil því á svipuðum tíma og skaftafell varð að þjóð-garði voru Öræfin að komast í vegasamband og umferðin
að hellast yfir,“ segir guðlaugur Heiðar
Jakobsson þegar hann rifjar upp stofnun
þjóðgarðsins í skaftafelli fyrir 50 árum.
Þeirra tímamóta verður minnst á morg-
un með hátíðarsamkomu á staðnum
milli klukkan 13 og 15.
guðlaugur Heiðar er uppalinn í bölt-
anum í skaftafelli, sonur hjónanna guð-
veigar bjarnadóttur og Jakobs guðlaugs-
sonar sem þar voru með hefðbundinn
búskap. „Foreldrar mínir vissu ekki
hvaða breytingar þjóðgarðsstofnunin
hefði í för með sér fyrir þau, kannski
var smá uggur í þeim en á sama tíma
fannst þeim hún spennandi. skólabróðir
mömmu úr gagnfræðaskóla hafði sam-
band við hana þetta sumar, hann var að
vinna fyrir Flugfélag Íslands að markaðs-
málum og spurði hvort hún gæti ekki
sett upp gistiþjónustu. taldi ómögulegt
að hafa engan stað til að benda fólki á ef
það þyrfti að gista. Hún sló til. Það varð
upphafið að áratuga ferðaþjónustu í
böltanum.“
Heiðar upplifði gríðarlegar breytingar
á umferðinni, sem er kapítuli út af fyrir
sig. „Fyrst þegar ég man eftir voru bara
þessi fáu farartæki sem Öræfingar áttu,
sem sáust endrum og eins í skaftafelli,
sveitungarnir áttu svo sem ekki oft leið
þangað. maður þekkti munstrin eftir
dekkin þegar maður sá bílförin. Það
hefur dálítið breyst!“
gun@frettabladid.is
Þekkti öll dekkjamunstrin
Afmælishátíð verður í Skaftafelli á morgun í tilefni þess að 50 ár eru frá stofnun
þjóðgarðs þar. Meðal gesta er Skaftafellsstrákurinn Guðlaugur Heiðar Jakobsson.
Landslagið í Skaftafelli heillar marga og dregur að þúsundir ferðamanna á degi hverjum. nordicphotoS/getty
Í tilefni dagsins koma góðir gestir í heimsókn
í Skaftafell á morgun. Á mælendaskrá eru:
helga Árnadóttir, þjóðgarðsvörður á suðursvæði.
Anna María ragnarsdóttir hótelstjóri, sem ólst upp í Hæðum í Skaftafelli.
guðlaugur heiðar Jakobsson, sem mælir fyrir hönd systkinanna sem ólust upp
í Bölta í Skaftafelli.
Þóra ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands og helgi
Björnsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands, segja frá þekkingu sinni og
rannsóknum í Skaftafelli og nágrenni.
Sara hrund Signýjardóttir og Urður Ýrr Brynjólfsdóttir, landverðir segja frá fjöl-
breyttum störfum og áskorunum landvarða í Skaftafelli.
Um tónlistaratriði sjá Jón Bjarnason á harmóníku og Sara hrund Signýjardóttir á
gítar. Boðið verður upp á kaffi og aðrar veitingar.
Gott væri að fólk tilkynnti þátttöku sína með því að senda póst á netfangið
sigrun@vjp.is. Í afmælisveislunni geta gestir skráð bílnúmerin til að hægt sé að
fella niður þjónustugjald fyrir ökutækin.
guðlaugur
heiðar er mættur
á svæðið.
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r46 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
D
-1
D
8
4
2
1
7
D
-1
C
4
8
2
1
7
D
-1
B
0
C
2
1
7
D
-1
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K