Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 74

Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 74
Hjörleifur Hjartarson ólst upp á menning-arheimilinu Tjörn í Svarfaðardal og því er fyrsta spurning til hans: Eru allir skáld sem koma frá Tjörn? „Neeei, þetta er meira spurning um að það sé möguleiki að stunda ritstörf án þess að það sé eitthvað upphafið. Þegar fólk í kringum mann er að skrifa er hætta á að maður fari að líta á það sem eðlilega vinnu.“ Þar sem söguhetjan í nýrri bók Hjörleifs er fluga giska ég á að hann hafi ekki setið við skrifborð þegar hann var að yrkja um Skarphéðin Dungal. Hvernig varð sú bók til? Var hann bara úti í móa að skoða flug- urnar? „Já, það má segja. Ég held að hug- myndin hafi kviknað í reiðtúr. Þegar hestur skítur þá líða ekki nema nokkrar sekúndur áður en orðið er til heilt vistkerfi í hrossaskítnum. Dell- an verður strax þakin gulum flugum en það undarlega er að maður sér þessar gulu flugur hvergi á sveimi í grenndinni. Það er eins og þær bara kvikni á staðnum. Þetta varð til þess að ég fór að velta fyrir mér þessu lífríki. Hvað veit svona fluga um heiminn? Skyldi hana gruna hvaðan haugurinn er kominn? Og hvað vitum við þá, svona agnarsmá í alheiminum? Vitum við eitthvað meira en tað- flugan um eðli alheimsins? Í fyrra gaf Hjörleifur út bók um fugla himinsins, sú var sambland fróðleiks og skemmtunar. Þessi er það líka. Þó ekki á sama hátt. Það er létt yfir henni en alvaran kraumar undir. „Sagan um Skarphéðin Dungal er ekki beint náttúrufræði heldur meiri heimspeki. Hún fjallar meðal annars um hvað við erum öll agnarsmá og höfum takmarkaða möguleika á að gera okkur grein fyrir heildarmyndinni. Það þarf að minnsta kosti að hafa mikið fyrir því. Maður verður að fljúga. „Því sá sem láréttur liggur á grúfu sér ekki neitt nema næstu þúfu.“ Það veit Skarp- héðinn.“ Hjörleifur segir söguna um Skarp- héðin Dungal hafa verið lengi í smíðum. Mörg ár. „Ég hef verið að hlaupa í þetta verkefni til hliðar við ýmislegt annað. Þetta er eins og krossgáta sem maður sökkvir sér í öðru hvoru þegar stundir gefast. Ég kláraði þuluna suður í Marokkó þar sem við dvöldum yfir jól og áramót í hitteðfyrra. Ég hef lítið lesið upp úr bókinni nema bara fyrir konuna mína. En þetta er eins og með fleira sem ég hef fengist við, ég held að ég sé að skrifa fyrir fullorðna en svo reynist það vera barnabók. Fuglar er þó fyrir allan aldur og þessi er sams konar. Hún er fyrir fullorðna og börnin þeirra.“ Eins og í fuglabókinni er það Rán Flygenring sem á heiðurinn af mynd- skreytingum. „Ég var svo heppinn að kynnast henni Rán, hef átt með henni gott samstarf og ekki síður stelpunum í Angústúru og þeim í Stúdíó stúdíó sem annast bókar- hönnunina. Þau eru öll frábærlega flink eins og sést á bókinni,“ segir Hjörleifur sem er staddur í Reykja- víkurakademíunni við Þórunnartún þegar viðtalið fer fram, þó lögheimil- ið sé að Laugasteini í Svarfaðardal þar sem hann gefur út héraðsfréttablaðið Norðurslóð. „Við hjónin búum fyrir norðan til jafns við Reykjavík núna,“ segir Hjörleifur „Við erum farfuglar.“ Sá sem láréttur liggur á grúfu … Sagan um Skarphéðin Dungal – sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins – er bók í bundnu máli eftir Hjörleif Hjartarson, skemmtikraft og skáld. Hann segir hana skrifaða fyrir fullorðna og börn þeirra. Hjörleifur segir hugmyndina að þulunni um Skarphéðin Dungal hafa kviknað í reiðtúr. Fréttablaðið/anton brink Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r56 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 7 C -F 1 1 4 2 1 7 C -E F D 8 2 1 7 C -E E 9 C 2 1 7 C -E D 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.