Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 39
39
Heildstæðar lausnir
Árið 1936 smíðuðu sérfræðingar Vél-
smiðjunnar Héðins fyrstu íslensku lýsis-
og fiskimjölsverksmiðjuna. Síðan þá hef-
ur fyrirtækið unnið að fjölmörgum heild-
arlausnum af því tagi fyrir sjávarútveg-
inn, bæði hér heima og erlendis, m.a. síló
undir fiskimjöl, útskipunarkrana fyrir
fiskifóður og smíði og uppsetningu mjöl-
kerfis við fiskimjölsverksmiðjur Síldar-
vinnslunnar, Eskju og Loðnuvinnslunn-
ar. Í dag er unnið að uppsetningu 750
tonna fiskimjölsverksmiðju í Egersund í
Noregi þar sem Héðinn sér um heildar-
hönnun, smíði og uppsetningu.
„Hvað íslenska skipaflotann varðar er
þar að finna margvíslegan búnað frá
Rolls-Royce Marine, m.a. vélar, spilkerfi,
gíra og skrúfubúnað, stýrivélar og ann-
an stjórnbúnað. Það má finna búnað frá
okkur í um 92 skipum við landið en í
heildina erum við að sinna 154 skipum
með búnaði frá Rolls-Royce Marine. Mik-
ið er um uppfærslur á eldri kerfum, s.s
spilkerfum, og þegar við tökum slík
verkefni að okkur þá sjáum við um þau
frá A til Ö. Í þeim verkefnum skiptir
sköpum það góða bakland sem fyrirtæk-
ið byggir á með samstarfi véladeildar,
renniverkstæðis, tæknideildar og plötu-
smiðju. Okkar áhersla er á heildarlausnir
frá þessum heimsþekkta framleiðanda í
hönnun og vélbúnaði skipa,“ segir Eð-
varð Ingi að lokum.
Eðvarð Ingi Björgvinsson, deildarstjóri Rolls-Royce Marine deildar Héðins hf. „Það má finna búnað frá okkur í um 92 skipum
við landið en í heildina erum við að sinna 154 skipum með búnaði frá Rolls-Royce Marine.“
Héðinn Protein Plant (HPP) mætir þörf fyrir vinnslu próteins og fiskolíu í litlu en
hagkvæmu framleiðsluferli. HPP fullnýtir öll lífræn hráefni úr fiski og gerir verð-
mætavinnslu mögulega þar sem hún hefur ekki áður komið til greina.
Helstu eiginleikar Héðinn Protein Plant
Hentar jafnt fyrir landvinnslu, fiskeldi og um borð í fiskiskipum.
Framleiðslan er að öllu leyti sjálfvirk.
Fullvinnur úr öllu hráefni, þar á meðal heilum fiski, slógi og lifur.
Nálægð við fiskframleiðslu með fersku hráefni skapar möguleika á fram-
leiðslu hágæða afurða með góðri próteinheimtu.
Ný gerð próteinverksmiðju
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands