Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 69
69
„iTUB hóf árið 2010 að byggja upp út-
leigukerfi á kerum í Noregi og hefur síð-
an vaxið jafnt og þétt, bæði í Noregi, á
meginlandi Evrópu og á Íslandi. Við er-
um í dag með tæplega 40.000 ker í út-
leigu og fyrr á þessu ári náðum við þeim
áfanga að íslenski markaðurinn var
kominn yfir 50% af heildinni. Vöxturinn
hjá okkur hefur því verið mjög mikill á
Íslandi að undanförnu,“ segir Reimar
Viðarsson, sölu- og þjónustustjóri kera-
leigufyrirtækisins iTUB sem staðsett er
á Dalvík. Fyrirtækið er með starfsstöðv-
ar í Noregi, Danmörku og á Íslandi en
það er dótturfyrirtæki Sæplasts og leigir
út ker til fyrirtækja í matvælavinnslu.
Að stærstum hluta eru kerin í útleigu í
sjávarútvegi.
Styrkur keranna aðalatriðið
„Við notum alfarið PE ker frá Sæplasti í
okkar kerfi og fyrir því eru margar
ástæður. Viðskiptavinir sjá kosti í að
einangrun þeirra er polyethylene í föstu
formi sem ekki dregur í sig vökva, kerin
eru því gegnheil, sterk og endingargóð
auk þess að vera endurvinnanleg að
notkunartíma liðnum,“ segir Reimar.
Á sínum tíma byggði iTUB sitt út-
leigukerfi upp í Noregi en margir við-
skiptavina þar í landi nýta þau til að
senda fisk til vinnslustöðva á megin-
landi Evrópu og því ferðast kerin um
langan veg. iTUB kaupir þvottaþjónustu
fyrir kerin í Noregi, Danmörku, Frakk-
landi, Hollandi og nýtir einnig þvotta-
þjónustu í Bretlandi. Snar þáttur í þessu
kerfi er gott samstarf við flutningsaðila
sem sjá til þess að hjá viðskiptavinum
fyrirtækisins séu alltaf tiltæk þau ker
sem um er samið.
Hraðasta uppbyggingin á Íslandi
„Eftir að hafa þróað og byggt leigukerfi
iTUB upp í Noregi og Evrópu hófum við
útleigu hér á Íslandi árið 2014. Sú upp-
bygging hefur gengið afar vel síðustu
árin, sem sést best á því að í dag erum
við með tæplega 40.000 ker í útleigu í
heild og þar af um 23.000 ker í útleigu á
hér á landi,“ segir Reimar.
Í vaxandi mæli velja útgerðir að leigja
alfarið ker í sína starfsemi frá iTUB og
hætta þannig að reka eigin kerakerfi.
Mörg dæmi eru einnig um að fyrirtæki
leigi hluta af þeim kerum sem þau þurfa
á að halda en kerin fara þannig á leið
sinni frá fiskiskipum til vinnslna víða á
landinu, á fiskmarkaði innanlands eða til
fiskkaupenda erlendis.
„Svokölluðum lyftarafærslum með
hvert ker hefur því fjölgað frá því sem
áður var og þá skiptir höfuðmáli að vera
með í þessu kerfi ker sem hafa styrk til
að þola þau miklu ferðalög sem geta ver-
ið með fiskinn á leiðarenda. Við höfum
séð dæmi um allt upp undir 30 viðtak-
endur á afla úr einu fiskiskipi og það
segir sig sjálft að það er mikið hagræði
af því að nýta leigukerfi okkar til að sjá
um kerin í slíkum tilvikum,“ segir Reim-
ar.
itub-rental.com
Reimar Viðarsson, sölu- og þjónustustjóri iTUB á Íslandi. Sá áfangi náðist á þessu ári að yfir helmingur heildarfjölda útleigu-
kera fyrirtækisins er á Íslandi.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands
Keraleiga iTUB
vex hratt á Íslandi