Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 136
136
„FAJ býður margs konar siglinga-, fiski-
leitar- og rafeindatæki sem gott skip
þarf að búa yfir, raunar flestan þann
tæknibúnað sem nauðsynlegur er fyrir
brúna. Helsta merkið okkar í þessu er
Simrad en sá framleiðandi er leiðandi í
ratsjám, fiskileitartækjum og plotterum
sem raunar má fremur kalla fjölnotatæki
enda nýting þeirra og hæfni margvís-
leg,“ segir Ásgeir Örn Rúnarsson, sölu-
stjóri hjá Friðrik A. Jónssyni ehf. en fyr-
irtækið hefur þjónustað íslensk útgerð-
arfyrirtæki í 78 ár.
Simrad er með breiða línu ratsjáa, allt
frá litlum breiðbandsratsjám sem er
komið fyrir í lokuðum hatti á stýrishúsi
báts eða í mastri til IMO samþykktu
ratsjáa fyrir stærri skip. Þar er Argus
ratsjáin öflugust og fáanleg bæði X band
og S band en nýjar útgáfur af IMO vott-
uðu ratsjánum frá Simrad hafa núna
viðmót sem er mun auðveldara að nota
fyrir skipstjóra og stýrimenn. Nýjasta
ratsjáin frá Simrad er byggð á púls- og
breiðbandstækni en hún gerir mönnum
t.d. auðvelt að greina hvort skip er að
nálgast eða fjarlægjast með rauðum eða
grænum lit á skjá. Þessi ratsjá er mjög
einföld í notkun og geislun frá henni því
sem næst engin eða svipuð og frá venju-
legum farsíma.
Sjókort í rauntíma
„Tækja- og hugbúnaður þróast mjög
hratt þessi árin og þurfa starfsmenn FAJ
að vera sífellt á tánum til að tileinka sér
nýja tækni til að geta kynnt hana fyrir
viðskiptavinum sínum. Við förum mikið
á sýningar og alltaf sjáum við nýjungar
og framþróun í tækninni sem kemur okk-
ar viðskiptavinum til góða. Öll þessi
stjórntæki í brúnni eru mikilvæg vegna
veiðanna en ekki síður sem öryggistæki
sem allt veltur á að skip og áhöfn komist
í heila höfn. Menn mega ekki gleyma því
að ratsjáin er og á að vera siglingatæki
númer eitt,“ segir Ásgeir.
Simrad býður m.a. fjölnotatæki sem
geta tekið upp eigin ferla og dýpisgögn
yfir siglingar sínar og vistað gögnin í
gegnum veflæga þjónustu sem heitir In-
sight Genesis. Þannig er hægt að setja
inn á netið ferla hvers og eins og í stað-
inn fæst kort sem sýnir dýptarprófíla,
ekki bara þar sem sjást grynningar og
sker, heldur sést botnharkan líka, hvort
sem um harðan eða mjúkan botn er að
ræða. Þannig er dýptarupptöku- og sigl-
ingaferlinu steypt saman og úr verður
sjókort með dýptarlínum. Til viðbótar þá
mun þessi tækni verða til notkunar í
rauntíma. Þannig verður hægt að sjá
sjókort með dýpislínum verða til á skján-
um á sama tíma og verið er að sigla.
„Verðmætar upplýsingar verða til með
ýmsum hætti við fiskileit og mikilvægt er
að safna sögunni saman og eiga hana til
skoðunar seinna, ýmist til að auðvelda
fiskileit, byggða á fyrri reynslu eða til að
tryggja örugga siglingaleið í gegnum lít-
ið þekkt svæði, svo dæmi séu tekin.“
Í gegnum árin hafa starfsmenn FAJ
lagt upp því að íslenska notendaviðmót
tækja sinna til að auðvelda notkun
þeirra. Þessari vinnu er haldið áfram
með góðum stuðningi frá birgjum FAJ
eins og SIMRAD, Lowrance, B&G og OLEX.
„Já, þetta fyrirtæki hefur alltaf haft
metnað til þess að auðvelda aðgengi
manna að nýrri tækni og þess vegna er
íslenskun alls kyns hugtaka mikilvæg.
Við þurfum hins vegar að hafa okkar
alla við í þessu því þróunin er gríðarlega
hröð og ef við pælum of lengi í því
hvernig best sé að útskýra virkni tækis-
ins á íslensku er hætt við að ný tækni sé
tekin við þegar þeirri vinnu lýkur!“ bæt-
ir Ásgeir Örn við.
Úrval ískastara
Meðal þess búnaðar sem FAJ býður eru
ískastarar frá Norselight sem hefur í
gegnum árin hannað kastara fyrir
norskar aðstæður sem eru svipaðar og
hér við Ísland. „Við höfum selt mikið af
ljóskösturum undanfarna áratugi og eig-
um yfirleitt alla varahluti á lager. Þessir
kastarar eru úr seltuvörðu áli sem gerir
þá mun léttari en hefðbundnir stálkast-
arar. Norselight valdi einnig álið því það
hefur betri kælingu en stál þannig að
hiti á perunni er lægri og endingartím-
inn þar af leiðandi lengri,“ segir Ásgeir
Örn.
faj.is
Allur tæknibúnaður
í brúna
Ásgeir Örn Rúnarsson sölustjóri hjá FAJ: „Öll þessi stjórntæki brúnni eru mikilvæg
vegna veiðanna en ekki síður sem öryggistæki þar sem allt veltur á skip og áhöfn
komist í heila höfn.“
Fiskileitartæki safna saman verðmæt-
um upplýsingum við fiskveiðar.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands