Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 40
40
„Þjónustusvið Samhentra í sjávarútvegi
er í dag mjög víðfeðmt og spannar allt
frá umbúðum yfir í vélbúnað fyrir pökk-
un og frágang á framleiðsluvörum. Fyrst
og fremst sérhæfum við okkur í umbúð-
um og veitum viðskiptavinum þjónustu í
öllum greinum sjávarútvegsins,“ segir
Brynjar Viggósson, framkvæmdastjóri
sölusviðs Samhentra. Hann kom til
starfa hjá fyrirtækinu í september síð-
astliðnum eftir að hafa verið 18 ár í
starfi hjá Eimskip bæði erlendis og á Ís-
landi og síðustu þrjú ár sem forstöðu-
maður söludeildar áætlanaflutninga.
Brynjar starfaði áður hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna en hann er sjávarút-
vegsfræðingur frá Háskólanum á Akur-
eyri og með MBA gráðu frá háskólanum
í Haag í Hollandi.
Umhverfisumræðan ýtir undir
grósku og þróun
Brynjar segir umræðu og auknar áhersl-
ur á umhverfismál birtast í daglegu
starfi Samhentra. Þær sjáist í vali á hrá-
efnum til umbúðaframleiðslu og mögu-
leikum til að endurvinna umbúðir. Einn-
ig geti stjórnvaldsaðgerðir haft mikið að
segja í umbúðaþróun almennt og nefnir
hann bann við notkun einnota umbúða
sem dæmi um slíkt.
„Heilt yfir þá er mikið að gerast í um-
búðaframleiðslu, gróska og þróun. Það
skapar okkur tækifæri til þróunar og að-
lögunar í takti við áherslur okkar við-
skiptavina og þróun markaða. En því má
heldur ekki gleyma að umbúðir gegna
líka gríðarlega mikilvægu hlutverki í því
að varðveita gæði afurða og á þann hátt
að vinna gegn matarsóun. Okkar við-
skiptavinir eru að framleiða hágæðaaf-
urðir og því er okkar hlutverk stórt í því
að varðveita gæði vörunnar með góðum
umbúðum og vernda hana sem best fyrir
því langa ferðalagi sem getur verið frá
framleiðanda til neytanda. Í umbúða-
framleiðslu þurfum við því að horfa til
marga þátta í senn,“ segir Brynjar.
Bjóða umhverfisvæna lausn í stað
frauðplastkassanna
Dæmi eru um að fylki og borgir í Banda-
ríkjunum hafi bannað frauðplastumbúð-
ir en þær hafa t.d. verið mikið notaðar í
útflutning á ferskum fiski frá Íslandi.
„Við höfum verið að leggja áherslu á
nýja lausn, CoolSeal kassann, í stað
frauðplastsins, sem er kassi úr 100%
endurvinnanlegu efni sem hægt er að
nýta fyrir ferskan fisk. Þetta teljum við
vera mjög góða lausn í staðinn fyrir
frauðplastið og um þessar mundir eru
útflytjendur hér á landi að vinna með
okkur í þessari þróun og gera prófanir
með kassann í sínum útflutningi. Við
finnum að margir útflytjendur fylgjast
grannt með þessari lausn, sem er skilj-
anlegt þar sem viðskiptavinirnir erlendis
verða sífellt áhugasamari um að umbúð-
irnar séu endurvinnanlegar. Þeir horfa í
vaxandi mæli á alla þætti vörukaupanna,
þ.e. gæði og framleiðslu vörunnar sjálfr-
ar, flutninginn og umbúðirnar. Allt er
þetta ein heild og hver hlekkur í henni
þarf að vera sterkur. Við viljum því
rækja okkar hlutverk á umbúðasviðinu
sem best í þágu okkar viðskiptavina,“
segir Brynjar en auk lausna Samhentra
á umbúðasviðinu rekur fyrirtækið dótt-
urfélagið Vörumerkingu sem sérhæfir
sig í framleiðslu límmiða, stafrænni
prentun, áprentuðum plastfilum, állokum
og álfilmum hvort sem heldur fyrir sjáv-
arútveg og annan matvælaiðnað, sem og
aðrar atvinnugreinar.
samhentir.is
Samhentir ehf.
Umhverfisáherslan
skapar tækifæri
í umbúðaframleiðslu
Brynjar Viggósson, framkvæmdastjóri sölusviðs Samhentra, með Cool Seal kass-
ann sem er lausn fyrir útflutning á ferskum fiski. Kassinn er úr 100% endurvinn-
anlegu efni.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands