Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 50
50
„Bandarískir kaupendur á ferskfiski
óska eftir því að fiskinum sé ekki pakkað
beint í frauðkassa, heldur fyrst í plast.
Ástæðan er sú að markaðurinn þar úti
er hræddur við mögulegan flutning á
styrene inn í fiskinn, en styrene er á
lista yfir mögulega krabbameinsvald-
andi efni hjá bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitinu, FDA,“ segir Björn Mar-
geirsson, lektor við Háskóla Íslands og
rannsóknastjóri hjá Sæplasti og Tempru.
Hann segir þetta aukaskref hafa verið
til ama fyrir fiskframleiðendur enda
bæði tímafrekt og kostnaðarsamt og feli
í sér óþarfa sóun. Evrópskir kaupendur
setja almennt ekki fram þessa kröfu.
Möguleg styrene mengun
rannsökuð
Tempra er stærsti framleiðandi frauð-
plasts á Íslandi og hefur fyrirtækið unn-
ið að þróun umbúða fyrir ferska mat-
vöru í samstarfi við viðskiptavini, há-
skóla og rannsóknastofnanir. „Við sett-
um okkur það markmið að komast til
botns í þessu máli, hvort styrene geti
flust yfir í fiskinn og þá í hvaða mæli.
Við fórum að leita að heimildum um
þetta, hvort eitthvað væri hæft í þessum
áhyggjum og fundum ekkert sem gæti
stutt það. Helst væri þetta mögulegt ef
heitur vökvi væri geymdur í marga daga
í frauðumbúðum, t.d. bolla, en ekki ef
varan væri köld,“ segir Björn.
„Í gegnum störf mín við Háskóla Ís-
lands komst ég svo í kynni við franskan
matvælaverkfræðinema, Erwan Quegu-
iner, sem er í starfsnámi í sumar undir
minni handleiðslu og Sigurjóns Arasonar
hjá Matís og HÍ. Hann er með aðstöðu
hjá Matís og saman gerðum við smá til-
raun með hjálp starfsmanna Matís. Við
keyptum fiskflök, bæði þorsk og karfa,
og geymdum þau í fjóra, sjö og þrettán
daga í frauðkössum með óvarið fiskhold í
beinni snertingu við frauðið, þ.e. án
bæði roðs og plastpoka. Fiskurinn var
geymdur við annars vegar -1 gráðu og
hins vegar 2 gráður. Lægri mörkin er
heppilegasta hitastigið við flutning í
gámum en það getur þó farið upp í 2
gráður. Að þessu loknu tókum við sýni
úr þeim flökum sem lágu á botni kass-
anna og sendum til þýsku rannsóknar-
stofunnar EUROFINS og báðum þau um
að rannsaka hvort og þá hve mikið magn
styrene væri að finna í þeim.“
Þyrftir að borða 9 tonn á dag
Björn segir niðurstöður rannsóknarinn-
ar vera ánægjulegar. „Rannsóknar-
skýrslurnar 12 gefa allar til kynna að
magn styrens sé undir 0.01 mg í hverju
kílói af fiski, en sú tala getur ekki verið
lægri því mæliaðferðin þeirra býður ekki
upp á meiri nákvæmni. Mælingaraðilan-
um er því ekki stætt á að gefa upp lægri
tölu þó svo mögulega sé um enn minna
magn að ræða. Samkvæmt viðmiðum
FDA ættu neytendur að þola allt að 90
mg af styrene á dag svo að við erum alla
vega undir 1/9000 af hámarksdag-
skammti – ef þeir borða heilt kílógramm
af fiski á dag! Amerískur kaupandi á því
ekki að hafa áhyggjur; hann þyrfti að
borða að minnsta kosti 9 tonn af fersk-
fiski á dag til að ná upp í hámarkið sem
FDA setur!“
tempra.is
Algjör óþarfi
að pakka fyrst í
plastpoka
Björn Margeirsson segir ótta bandarískra kaupenda við að efnið styrene berist í
ferskan fisk úr frauðkössum ástæðulausan.
10, 13 og 15 kg línan er þannig
hönnuð að hún viðheldur ferskleika
matvöru lengur en sambærilegar umbúðir.
Allt fyrir ferskleikann
60 x 40 kassalínan frá Tempru er hagkvæmari,
sterkari og tryggir lengra geymsluþol
Temprukassarnir sjá til þess að íslenskur fiskur
kemst ferskari til neytenda um allan heim.
Kostir kassanna eru eftirtaldir:
aukin lengd og rúmtak leiða til betri meðferðar á afurðum
lengri fiskflök raðast betur innan kassa
meira rými er fyrir ís eða kælimottur
rúnnuð hornin auka einangrun og lengja geymsluþol
breytt hönnun á hornum gerir kassana sterkari en áður
stærð kassanna er 60 x 40 sm og staflast þeir betur á vörubrettin
vegna aukins styrks er hægt að stafla í hærri stæður en áður
betri einangrun næst með þéttari stöflun á bretti
Hitastig (°C) 5 mm fyrir ofan botn 60x40 cm 10 kg
kassans eftir 6 klst. við 20 °C umhverfishita.
Fiskur
EPS
21
20
19
18
17
16
15
14
13
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
TEMPRA EHF • Íshella 8 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 520 5400 • tempra@tempra.is • www.tempra.is
einangrun – umbúðir
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands