Ægir - 01.10.2018, Blaðsíða 66
66
„Scanmar hefur allt frá stofnun fyrir
tæpum 40 árum átt náið og árangursríkt
samstarf með íslenskum sjávarútvegi. Á
þeim tíma var togaravæðingin að fara á
fulla ferð á Íslandi og þótti mikill fengur
í því tækniundri sem aflanemar Scan-
mar voru og hvaða not skipstjórnar-
menn gátu haft af þeim búnaði. Þessa
braut ruddi Scanmar á sínum tíma og
síðan þá hefur fyrirtækið komið fram
með hverja nýjungina á fætur annarri í
nemum og kerfum til að miðla þeim fjöl-
þættu upplýsingum sem nemarnir senda
frá sér,“ segir Þórir Matthíasson hjá
Scanmar.
Fylgst með veiðarfærinu í
rauntíma
Scanmar er norskt fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í framleiðslu á veiðarfæranemum
og kerfum sem miðla upplýsingum frá
þeim til skipstjórnenda. Gamli góði afla-
neminn var einn af þeim fyrstu á mark-
aðinn á sínum tíma er enn í fullu gildi en
er að sjálfsögðu búinn þeirri tækni sem
framleiðslan byggir á í dag. Af öðrum
nemum í framleiðslu Scanmar má nefna
hleranema, dýpisnema, trollaugu,
belgsjá, flæðinema, hæðarnema á hlera
hitanema og fleira. Auk þess botnstykki
og fjölbreytt úrval aukahluta sem nema-
búnaðinum tengjast. Síðast en ekki síst
er svo sjálft Scanbas 365 brúarkerfið sem
er skjámynda- og upplýsingakerfi sem
birtir skipstjóranum í myndrænni fram-
setningu þær upplýsingar sem nemarnir
safna og senda frá sér. Skipstjórinn get-
ur þannig fylgst í rauntíma með öllum
lykilþáttum sem hafa áhrif á veiðarfærið
og brugðist við ef á þarf að halda.
Hjálpar útgerðum að stunda
skilvirkar veiðar
„Nemarnir frá Scanmar voru á sínum
tíma algjörlega ný tækni sem hafði strax
mikil áhrif á þróun togaraútgerðar á Ís-
landi. Markmið Scanmar hefur alla tíð
verið að hjálpa útgerðum við að stunda
skilvirkar togveiðar og það snýr að
mörgum þáttum, t.d. veiðihæfni veiðar-
færisins í drætti og að ekki verði of mik-
ill afli í hverju togi, að toghraði sé réttur
miðað við straum og þannig má áfram
telja. Öll þessi atriði eru afar mikilvæg í
nútíma togveiðum þar sem gæði aflans
skipta meira máli en magnið. Og loks er í
mínum huga ekkert vafamál að nema-
búnaðurinn hefur stórlega minnkað slit
og tjón á veiðarfærum eftir því sem
kerfið hefur orðið þróaðra og fullkomn-
ara. Sú tæknibylting sem nemabúnaður-
inn er hefur því verið eitt af þeim stóru
framfaraskrefum sem orðið hafa í útgerð
á Íslandi síðustu áratugina,“ segir Þórir
en í þróun sinni þessi misserin leggur
Scanmar mikla áherslu á brúarkerfið og
framsetningu upplýsinga fyrir skip-
stjórnendur.
„Okkar nýjungar í dag ganga út á að
það sé ennþá auðveldara fyrir skip-
stjórnendur en áður að kalla fram þær
upplýsingar sem búnaðurinn hefur að
geyma. Nýja Scanbas 365 brúarkerfið er
bæði einfalt og auðvelt í notkun og í
kerfinu getur skipstjórinn raðað sínum
upplýsingaskjám saman með þeim hætti
sem honum hentar best hverju sinni.
Þær miklu upplýsingar sem nemakerfið
sýnir nýtast þannig skipstjóranum til
fulls til að ná hámarks árangri í hverju
holi og hverri veiðiferð.“
scanmar.is
Scanmar á Ísland
Tilkoma veiðarfæranem-
anna breytti togveiðunum
Þórir Matthíasson í verslun Scanmar á
Grandagarði í Reykjavík.
Tilkoma veiðarfæranemanna frá Scanmar fyrir hátt í 40 árum var ein af stórum
tæknibyltingum í fiskveiðum á síðustu öld.
Sjávarútvegur
á 100 ára afmæli fullveldis Íslands