Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 2
2 7. september 2018FRÉTTIR M atreiðslumeistarinn þekkti, Sturla Birgisson, sagði sig úr Klúbbi mat- reiðslumeistara í kjölfar samstarfssamnings klúbbsins við laxeldisfyrirtækið Arnarlax. Í sam- tali við DV sagði Sturla að það væri grátlegt að hugsa til þess að á sama tíma og mörg af helstu veitinga- húsum landsins hafa tekið saman höndum til varnar umhverfi og líf- ríki Íslands með því að lýsa yfir að þau bjóði aðeins lax úr landeldi, hafi klúbburinn látið glepjast af fé og sé að auglýsa norskan eldis- lax sem alinn er í opnum sjókví- um við landið. Kaldhæðni örlag- anna er sú að á dögunum veiddist eldislax í Vatnsdalsá, einni bestu laxveiðiá landsins. Sá sem hélt þar á stönginni var enginn annar en Sturla sjálfur. Sturla hefur ekki eingöngu keppt fyrir hönd kokka- landsliðsins heldur einnig þjálfað það. Hann var einnig fyrstur Íslendinga til að keppa fyrir hönd landsins í kokkakeppninni Bocuse d’Or. „Þessi samningur er út í hött,“ sagði Sturla. Nokkur veitingahús á landinu hafa tekið höndum saman og kaupa ekki lax af Arnarlaxi þar sem þau telja að starfsemi fyrirtækisins gæti skaðað villta laxastofna á Íslandi. Fyrirtækinu var nýverið synjað um alþjóðlega vottun, svokallaða ASC-vottun, sem fylgir ítarlegum stöðlum um sjálfbæra samfélags- og umhverfi- svæna sjávarvöruframleiðslu. Er- lendir kaupendur eldislaxins gera margir strangar gæðakröfur og meðal annars krefjast þeir ASC- -vottunar. Svo virðist sem það skapi engin vandamál fyrir Klúbb matreiðslumeistara að gera sam- starfssamning við fyrirtæki sem uppfyllir ekki þessar gæðakröfur. DV hafði samband við Björn Braga Bragason, formann Klúbbs matreiðslumeistara, vegna máls- ins og spurði hvort eðlilegt væri að klúbburinn gerði samning við fyrir tæki sem uppfyllti ekki al- þjóðlegar gæðakröfur. „Þetta er mjög áhugaverð spurning. Arnar- lax er náttúrlega bara fyrirtæki sem starfar í íslenskri lögsögu og er með starfsleyfi á Íslandi og fylgir lögum landsins. Klúbbur mat- reiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, er ópólitískur fé- lagsskapur og við getum ekki tek- ið afstöðu til þess hvaða ræktun- arleiðir eru notaðar svo lengi sem þær standast lög og reglur lands- ins,“ sagði Björn Bragi. Þegar hann var aftur spurður frekar út í af hverju klúbburinn væri að semja við fyrirtæki sem væri ekki með alþjóðlega vottun á framleiðslu sinni sagði hann: „Ég get eiginlega ekki svarað þessari spurningu betur.“ Blaðamaður spurði einnig hvort kokkalands- liðið myndi nota lax frá Arnarlaxi þegar það keppti erlendis fyrir hönd Íslands. „Ég geri ekki ráð fyrir því. Eins og staðan er núna erum við ekki skuldbundnir að nota þennan lax.“ n A gnes Sigurðardóttir biskup hefur beðið séra Þóri Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprest, að taka hvorki að sér athafnir eða þjón- ustu á vegum kirkjunnar framar. Eins og DV hefur áður greint frá játaði séra Þórir á sáttafundi árið 2015 að hafa brotið kynferðislega á ungri stúlku á sjötta áratug síðustu aldar. Að sögn Agnesar ætlar Þórir að verða við bón hennar. Þetta kemur fram í stuttu bréfi sem Agnes sendi til presta í vik- unni en hún hefur legið undir töluverðri pressu eftir umfjöllun DV og annarra miðla í ágúst. Áður hafði Stundin greint frá málinu en séra Þórir var þá ekki nafngreind- ur. Prestum gert viðvart Samkvæmt heimildum DV eru margir prestar afar ósáttir við það hvernig Agnes hefur tekið á mál- inu. Þolandi leitaði til fagráðs kirkjunnar árið 2010 og árið 2015 fór hinn umdeildi sáttafundur fram á Biskupsstofu, þar sem séra Þórir játaði brot sín. Prestum var þá ekki gert viðvart og hefur séra Þórir komið fram fyrir kirkj- unnar hönd, meðal annars hefur hann predikað í útvarpaðri mes- su í Breiðholtskirkju og verið við- staddur vígslu Skálholtsbiskups. Eftir að DV birti viðtal við Agnesi, þar sem blaðamanni var vísað á dyr, fjölluðu aðrir miðlar um málið en Agnes veitti þeim engin svör. Bréf Agnesar er eftirfarandi: Góðan daginn kæru prestar Ég hef óskað eftir því við séra Þóri Stephensen að hann taki ekki að sér athafnir eða þjónustu á vettvangi kirkjunnar. Viðbrögð hans voru þau að hann ætlar að verða við þeirri beiðni. Þar sem emerítar framkvæma slíkt í um- boði starfandi presta þykir mér mikilvægt að koma þeim upplýs- ingum til ykkar. Kv. Agnes M Sigurðardóttir Biskup Íslands Sagði að gerandinn ætti að bera ábyrgð á sjálfum sér Brot séra Þóris áttu sér stað snemma á sjötta áratug síðustu aldar þegar hann var nemi í guð- fræði við Háskóla Íslands. Þol- andinn, dóttir forstjóra sem Þórir fékk herbergi hjá, opnaði sig fyrst um brotin á efri árum og leitaði þá til Stígamóta. Málið var aldrei rannsakað af lögreglu og auk þess löngu fyrnt samkvæmt lögum. Leitaði hún því til fagráðsins til að fá úrlausn sinna mála en bisk- upi höfðu einnig borist bréf og ábendingar frá ættingja þolanda og presti. Séra Þórir vildi lítið segja um málið þegar DV ræddi við hann í ágúst. Sagði hann þó að þetta mál væri bull og vitleysa og löngu af- greitt. Þeir starfsmenn fagráðs sem DV hafði samband við, nú- verandi og fyrrverandi, vildu ekki tjá sig um málið. Í viðtali við DV sagði Agnes að gerandinn ætti að bera ábyrgð á sjálfum sér um hvað honum fyndist við hæfi og hvað ekki. For- tíðin yrði ekki tekin til baka. n Á þessum degi, 7. september 70 – Rómverskur her undir stjórn Titusar hertekur og fer ránshendi um Jerúsalem. 1571 – Thomas Howard, 4. hertogi af Norfolk, er handtekinn fyrir hlutverk sitt í samsæri um að ráða Elísabetu I. Englandsdrottningu af dögum og koma Maríu Stúart Skotlandsdrottningu til valda. 1818 – Karl III. er krýndur konungur yfir Noregi. Athöfnin fer fram í Þrándheimi. 1876 – Jesse James og James-Youn- ger-gengið gera tilraun til bankaráns í Northfield í Minnesota. Þeir eru hraktir – tómhentir – á brott af vopnuðum bæjarbúum. 1923 – Interpol – Alþjóðalögreglan er stofnuð. 1940 – Þýski flugherinn, Luftwaffe, hefur leifturstríð og varpar sprengjum á London og fleiri breskar borgir, sam- fleytt í 50 nætur. 1986 – Desmond Tutu verður fyrsti blökkumaðurinn til að leiða Ensku biskupakirkjuna í Suður-Afríku. Síðustu orðin „Mér mundi ekki hugnast að deyja tvisvar. Það er svo leiðigjarnt.“ – Bandaríski eðlisfræðingurinn Richard Feynman (11. maí 1918–15. febrúar 1988) n Bað hann að láta af störfum fyrir kirkjunnar hönd n Sendi prestum tilkynningu Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is AGNES BISKUP VILL AÐ SÉRA ÞÓRIR DRAGI SIG Í HLÉ Sturla hættir í Klúbbi matreiðslumeistara vegna samnings við Arnarlax Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.