Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Síða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 7. september 2018 að Þrisvar í viku yrði svona vinsælt. Ég var búinn að ráða mig upp í Kerl- ingarfjöll en gat ekki verið þar nema í örfáar vikur því mér var kippt burt og svo var túrað um landið.“ Hvernig kom það til að þið spil- uðuð fyrir Framsóknarflokkinn árið 1987? „Þetta var einhver hugmynd sem að framkvæmdastjóri flokks- ins fékk og þetta fékk heitið „Denni og Bítlavinafélagið.“ Steingrímur Hermannsson var kallaður Denni,“ segir Eyjólfur og hlær. „Ég man ekki hvort það voru margir Fram- sóknarmenn í Bítlavinafélaginu en þetta var tilboð sem við feng- um og við slógum til og þetta var fjör. Steingrímur sjálfur var hrika- lega skemmtilegur maður. Hann var settur í rúllukragapeysu eins og Bítlarnir og það voru teknar myndir af okkur saman. Það var kosninga- barátta í gangi og við spiluðum á sveitaböllum þar sem Framsóknar- flokkurinn var með framboðsfundi en auðvitað voru allir velkomnir, ekki bara Framsóknarmenn. Í eitt skiptið kom Denni upp á svið og tók lagið. Steingrímur gat alveg sungið og var oft uppi í Kerlingarfjöllum.“ Eftir þessar miklu vinsældir tók Bítlavinafélagið frí í næstum því heilt ár og Eyjólfur var þá farinn að huga að sólóferli. Árið 1988 var stórt á ferli hans en þá komu út tvær vinsælar plötur, 12 íslensk bítla- lög með Bítlavinafélaginu og Dagar með honum sem sólólistamanni. Þetta sama ár var ekki síður við- burðaríkt á ferli annarra meðlima Bítlavinafélagsins því það ár stofn- uðu þeir hljómsveitina Sálina hans Jóns míns. „Það var eins og við gæt- um ekki gert neitt rangt,“ segir Eyfi. Sér eftir kvennafarinu Á þessum tíma voru Íslendingar ný- byrjaðir að taka þátt í Eurovision og flestir lagahöfundar sendu inn lög á hverju ári. Eyjólfur lét ekki sitt eftir liggja og sendi inn, bæði í Söngva- keppni Sjónvarpsins og Landslag- ið, keppni sem Stöð 2 og Bylgjan stóðu fyrir. Mörg af þekktustu lög- um Eyjólfs voru framlög í þessar keppnir eins og til dæmis lagið Álf- heiður Björk sem sigraði í Lands- laginu árið 1990. Eyjólfur segist vera mikill keppnismaður en fer- illinn hafi þó ekki snúist um þessar keppnir. Þetta var eitthvað sem all- ir gerðu til að koma sér á framfæri. Árið 1990 hætti Bítlavinafélagið, um sama leyti og frægð Eyjólfs var sem mest. Hvernig átti frægðin við þig? „Þetta var skrýtið til að byrja með, að eiga lög sem verða vinsæl og vera sífellt í sjónvarpinu. Ég átti mjög erfitt með það þegar stelpur voru farnar að koma upp að mér úti á götu og biðja um eiginhandarárit- anir. Ég hef alltaf verið frekar alþýð- legur maður og var ekki að meðtaka þetta. En þetta steig mér líka til höf- uðs og ég fór út af þessum gullna meðalvegi. Ég kom ekki vel fram við alla og gerði hluti sem ég sá síð- ar eftir.“ Hvernig þá? „Ég var aldrei fyllibytta eða dópisti eða neitt svoleiðis en ég var allt of mikill kvennabósi og það finnst mér alveg skelfilega leiðin- legt að hugsa um í dag. Þá hélt ég að þetta líf ætti að vera svona.“ Misstir þú tökin? „Svona hálfpartinn. Það versta við þetta var að maður var að svíkja aðra og það situr enn þá í manni.“ Jón rauk af sviðinu Eyjólfur á margar minningar frá þessum tíma og kann sögur af skrautlegum uppákomum. Ein sú minnisstæðasta gerðist á balli hjá Bítlavinafélaginu. Hann segir: „Á fyrstu verslunarmanna- helginni sem Bítlavinafélagið spilaði vorum við í Skeljavík á Ströndum. Þá var brunagadd- ur og hafís í Steingrímsfirðinum. Við urðum að spila í dúnúlpum og gátum varla hreyft fingurna á gítarhálsinum.“ Annað ball hljómsveitarinnar var ekki síður eftirminnilegt. „Við vorum allir með kærusturnar með okkur á einu ballinu. Þegar við vorum að flytja eitt lagið taldi Jón sig sjá kærustuna sína vera að kyssa ein- hvern gæja á dansgólfinu. Hann varð helvíti fúll en hélt áfram að spila. Þegar lagið var búið gekk hann frá hljómborðinu, rauk út á gólf og óð í parið en þá var þetta allt önnur kona sem svo óheppi- lega vildi til að var í alveg eins fatnaði og kærasta Jóns. Kærastan hans beið bak við sviðið í róleg- heitunum,“ segir Eyjólfur og hlær. „Við hinir horfðum gáttaður á þetta gerast.“ LOWE ALPINE BAKPOKI 18L 14.995 kr. Faxafen 12 108 Reykjavík Sími 534 2727 alparnir.is HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA Erum f utt í Faxafen 12 PROVIDUS PRIMUS 4.995 kr. SALOMON XA ENDURO HERRA OG DÖMU SKÓR 23.995 kr. „Ég hefði getað haldið áfram að borga en vildi það ekki því að þetta var eins og að vera í fangelsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.