Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Qupperneq 26
Veitingar og rómantík 7. september 2018KYNNINGARBLAÐ Þegar sest er niður á veitinga-staðnum O’Learys í Smáralind þá líður manni ekki eins og maður sé staddur í verslunarmiðstöð heldur notalegri stofu. Innréttingar eru afar smekklegar og hlýlegar. Fyrir- myndin er veitingastaðir í Boston en þaðan er O’Learys-keðjan upprunnin. „Boston er mikil íþróttaborg sem státar af afrekum í til dæmis körfu- bolta og hafnarbolta og veitinga- staðirnir bera þess merki. Auk þess er mikil áhersla lögð á að taka vel á móti fjölskyldum. Áherslan í matargerðinni er síðan á hefðbundinn amerískan mat, hamborgara, svínarif, kjúklinga- vængi og steikur,“ segir Laurence Kell- ermann, svæðisstjóri fyrir O’Learys í Evrópu. Við hittum Laurence og Elís Árnason, eiganda staðarins á Íslandi. Andrúmsloftið í rúmgóðum veitinga- salnum er afskaplega þægilegt og það er gott að eiga hér gæðastund. Alls eru 32 flatskjáir á veggjunum með alls konar efni, bæði íþróttum og öðru sjón- varpsefni, en hljóðstýring er svæðis- bundin og hljóð berst ekki á milli svæða eða ónáðar þá sem hafa ekki áhuga á sjónvarpsdagskránni. Veggina prýða einnig fjölmargar myndir sem ýmist tengjast íþróttum eða sögu Boston- -borgar. Á staðnum eru einnig stórskemmti- leg leiktæki sem höfða til bæði barna og fullorðinna og henta því fjölskyldu- fólki vel. Raunar höfðar O’Learys til margs konar hópa því þarna er gott að tylla sér niður með fartölvu og vinna enda gott þráðlaust net og innstungur úti um allt. Einnig er gott fundarborð sem hentar vel fyrir smærri vinnufundi. Ferskir hamborgarar Hamborgararnir hjá O’Learys eru ferskir 170 gramma borgarar sem koma frá Norðlenska. Góð blanda kjöts og fitu gerir þá einstaklega safaríka. Við prófuðum hamborgara sem var afskaplega ljúffengur, ferskur og safa- ríkur. Kjúklingavængir O’Learys, sem eru sérframleiddir fyrir keðjuna og að Boston-sið, eru hreint lostæti og ekki spillti fyrir gráðaostasósa sem gott er að dýfa þeim í. Við fengum okkur líka djúpsteiktan, íslenskan þorsk í orly með kaldri tartar- -sósu. Afbragðsgóður matur. Gestirnir voru að verða saddir en það var ekki hægt að standa upp frá veisluborðinu án þess að bragða á svínarifjunum sem voru nákvæmlega eins og maður vill hafa slíkan mat. Afar bitastæður og bragðgóður matur. Hlaðborð og kótelettur Hlaðborð er í hádeginu alla miðviku- daga, fimmtudaga og föstudaga. Á miðvikudögum eru lambakótelettur sem eru vægast sagt vinsælar og til að toppa vinnuvikuna þá er tilvalið að skella sér á naut og bearnaise hlað- borðið sem er alla föstudaga. Eins og áður segir er vel gert við fjölskyldur og á sunnudögum kemur blöðrulistamaður og þá fá allir krakkar fría blöðru milli kl. 17 og 20.w Bíótilboðin eru síðan alveg einstök, sunnudaga til fimmtudaga er hægt að fá máltíð og bíómiða í Smárabíó á flottu verði. Alveg kjörið að tvinna saman bíóferð og málsverð á O’Learys. O’LEARYS Í SMÁRALIND: Huggulegt eins og í stofunni heima Laurence (t.v.) og Elís

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.