Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 27
Veitingar og rómantík 7. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
SUGARBEARHAIR:
Vítamín-bangsarnir sem
elska hárið þitt og eru í
uppáhaldi hjá stjörnunum
Gúmmíbangsar á sælgætis-börum eru, með fullri virðingu, nokkuð gagnslaus fyrirbæri.
Bragðast mörgum vel en eru ekki hollir.
Um hárvítamínbangsana frá SugarBe-
arHair gildir hins vegar allt annað: Þeir
bragðast eins og góðir hlaupbangs-
ar en jafnframt örva þeir hárvöxt og
gljáa hársins, en minnka slit og fækka
brotnum endum. SugarBearHair henta
öllum hárgerðum en taka skal inn
tvo bangsa á dag. Mælt er með 3–6
mánaða skammti ef þess er óskað að
hárið síkki en flestir sjá strax mikinn
mun á fyrsta mánuðinum. Ef hárið
skortir ekki vítamín sést árangur fyrr en
ella.
SugarBearHair-bangsarnir eru
settir saman úr vísindalega prófuðum
efnum og þeir eru framleiddir í verk-
smiðjum í Bandaríkjunum eftir stöðlum
bandaríska lyfja- og matvælaeftirlits-
ins. Aðeins er notast við bestu fáanlegu
innihaldsefni sem tryggja að varan er
örugg og hún virkar.
Helstu innihaldsefni: Virku inni-
haldsefnin í jurtavítamíninu eru A-, C-,
D- og E-vítamín, B6-vítamín, fólinsýra,
B12-vítamín, biotin, pantótensýra, joð,
sink, kólín og inositol. Þessi efni valda
því að heilbrigt hár tekur að vaxa inni í
líkamanum. Hlaupbangsarnir eru síðan
framleiddir úr náttúrulegum berja-
bragðefnum.
Þessir hárvænu bláu gúmmíbangsar
hafa slegið rækilega í gegn um allan
heim og njóta mikilla vinsælda hjá
frægu fólki á borð við Kim Kardashian,
Kylie Jenner og Courtney-systrum
sem hrósa þeim óspart á samfélags-
miðlum.
Það er fyrirtækið Regalo sem flytur
inn SugarBearHair. Fríða Rut Heim-
isdóttir, eigandi Reglao, segir reglulega
vítamíninntöku vera nauðsynlega fyrir
fallegt og heilrbigt hár: „Bangsarnir
eru svo bragðgóðir að þú hlakkar til
að taka þá inn. Auk þess lykta þeir vel
og innihalda bara heilsusamleg efni.
Ef hárið skortir engin vítamín þá sérðu
árangur fyrr,“ segir Fríða.
Útsölustaðir SugarBearHair-
-bangsanna eru fjölmargir og yfirlit yfir
þá er á vefsíðunni regalo.is.