Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 32
Veitingar og rómantík 7. september 2018KYNNINGARBLAÐ
KÍNAHOFIÐ:
Ferskur kínverskur matur
eins og hann gerist bestur
Kínahofið er til húsa að Nýbýla-vegi 20 og hefur verið starfandi í 35 ár. Eigendaskipti urðu á
þessum gróna stað fyrir sjö árum og
núverandi eigandi heitir Karen Lien
Nguyen. Fyrir tæpum tveimur árum
voru allar innréttingar og eldhús
staðarins endurnýjað og er hann
ákaflega hlýlegur, fallegur og frískleg-
ur í dag.
Kínverskur matur er vinsæll meðal
Vesturlandabúa og eru Íslendingar
þar engin undantekning. Það sem
gerir Kínahofið svo rómaðan og vin-
sælan stað er að þar er ávallt eldað
úr fersku hráefni sem berst daglega
á staðinn. Hér fær fólk kínverskan
mat eins og hann gerist ferskastur og
bestur. Þá spillir ekki fyrir að maturinn
er léttur í maga og fer vel í fólk.
Kínahofið tekur um 80 manns í
sæti. Hádegishlaðborðið, sem er í boði
alla virka daga frá 11 til 14, er mjög vin-
sælt, ekki síst meðal fólks sem vinnur í
nágrenninu. Hádegishlaðborðið kostar
2.100 kr. en hægt er að velja um mjög
marga gómsæta rétti.
Á kvöldin eru borðin dúkuð, fólk
velur sér rétti af matseðli, gefur sér
yfirleitt miklu lengri tíma til að njóta
matarins í þessu fallega og þægilega
umhverfi.
Viðskiptavinahópur Kínahofsins
er mjög fjölbreyttur, Íslendingar eru
í meirihluta en erlendir ferðamenn
sækja staðinn líka talsvert, bæði
einstaklingar og hópar.
Kínahofið er opið virka daga frá 11
til 22 og um helgar frá 16 til 22. Um
helgar er vinsælt að taka matinn með
heim en ávallt eru þó fleiri sem kjósa
að snæða á staðnum. Um helgar er
æskilegt að panta borð fyrirfram og
er það gert í síma 554-5022.
Sjá nánar á vefsíðunni kinahofid.is
og á Facebook-síðunni Kínahofið.