Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Side 52
52 FÓLK - VIÐTAL 7. september 2018
T
ónlistarmaðurinn Karl Ol-
geirsson gefur föstudaginn
14. september út Mitt bláa
hjarta, 14 nýir jazzsöngvar
í nótnabók og heldur sama kvöld
útgáfutónleika í Hannesarholti,
þar sem hann syngur lögin upp
úr bókinni og segir sögur tengdar
þeim. Í lok október kemur síðan út
tvöföld vínylplata og geisladiskur
sem Karl er að safna fyrir á hóp-
fjármögnunarvefnum Karolina
Fund. Mitt bláa hjarta er fyrsta
sólóplata Karls, sem hefur lifað og
hrærst í tónlist frá barnsaldri.
„Ég hef alltaf verið djassari og
mér finnst gaman að hlusta á djass
þegar ég er heima og þó ég sé að
vinna í söngleikjum og alls konar
poppi þá hef ég verið að færa mig
í djassinn,“ segir Karl, aðspurður
um af hverju djassplata varð fyrir
valinu sem fyrsta sólóplatan.
„Ég byrjaði á því að ákveða að
gefa út nótnabók. Síðan hugsaði
ég að það þyrftu að vera til upptök-
ur fyrir fólk til að heyra lögin, fór
að ræða við tónlistarfólk hvort það
væri ekki til í að taka upp með mér
og varð þá mun spenntari fyrir
plötunni en nótnabókinni. En það
styttist í útgáfu bókarinnar og ég er
eðlilega líka spenntur fyrir henni.“
Í fyrra gaf Karl út Happy Hour
með Ragga Bjarna ásamt Karl
Orgeltríó og sólóplötu Helenu
Eyjólfsdóttur sem kom út árið
áður. Karl segir að það sé í raun
algert rugl að gefa út plötu í dag,
en markhópurinn sé kannski
hópur sem kaupir ennþá plötur.
Mitt bláa hjarta
kemur út bæði
á geisladiski og
á tvöfaldri vín-
ylplötu. „Þetta
eru svo mörg lög
að það verður
að vera tvöföld
plata,“ segir Karl,
„og það var sama
við hvern ég
talaði það voru
allir til í að vera með. Góðviljað-
asta fólk sem ég veit um er tónlist-
arfólk, það er til í að vera með í alls
konar söfnunum til að hjálpa öðr-
um og að hjálpa öðru tónlistar-
fólki. Ég bjó í Svíþjóð um tíma og
þar er algengt að fólk sé að vinna
saman í teymum, svona samstarf,
þetta þekkist ekki mikið hér á Ís-
landi.“
Mitt bláa hjarta fjallar um ástir,
söknuð, borgarlíf og fleira
Karl semur öll lög og alla texta
fyrir utan einn og tveir eru samd-
ir í samstarfi við aðra. „Það er líka
svo skemmtilegt, ég hef samið
hundruð laga í gegnum tíðina en
aldrei áður gert heila plötu með
lögum.“
Á plötunni,
sem tekin var upp í júlí síðastliðn-
um, syngja tólf söngvarar en auk
þeirra koma átta hljóðfæraleikar-
ar við sögu. Ragnheiður Gröndal,
Bogomil Font, KK og Helgi Hrafn
Jónsson ásamt fleirum syngja lög-
in sem fjalla um ástir, söknuð,
borgarlíf, veðrið og athyglisbrest
svo eitthvað sé nefnt. Kona Karls,
Sigga Eyrún, syngur eitt lag. „Það
er auðvelt fyrir okkur að vinna
saman þar sem við búum saman.
Það er sagt að tónlistin sé hjákona
en stundum er hún konan mín
og Sigga hjákonan,“ segir Karl og
bætir við, aðspurður hvort það sé
gott að eiga maka sem er líka í tón-
list og skilji það sem í því felst, að
hann haldi að það sé eina leiðin.
„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir
að gera það sem ég elska“
Karl byrjaði að spila á hljóðfæri og
semja þegar hann var fjögurra ára,
var í hljómsveitum í grunnskóla og
farinn að spila með hljómsveitum
og fá greitt fyrir það þegar hann
var kominn í MH. „Ég fann það í
náminu að ég var ekki að fara að
nýta mér stúdentsprófið neitt. Ég
vissi alltaf að ég væri tónlistar-
maður,“ segir Karl. „Það voru örlög
mín að verða tónlistarmaður eins
og Egill Ólafsson söng.
Ég er gríðarlega þakklátur fyrir
að gera það sem ég elska að gera.
Ég er svo heppinn að ég geri svo
margt.“ Karl er í útsetningum,
vinnur sem undirleikari, tónlist-
arstjóri, hljóðfæraleikari í hljóm-
sveitum og upptökustjóri í hljóð-
verum.
„Ég get hlaupið í svo margt og
þá er auðvelt að vera tónlistar-
maður á Íslandi. En maður þarf
að hafa allar klær úti og elska það
sem maður gerir þannig að maður
sé ekki að kvarta yfir að vinna um
helgar.“
Næsta stóra verkefni hjá Karli,
eftir útgáfu plötunnar, er jólasýn-
ing Þjóðleikhússins, Einræðisherr-
ann eftir Chaplin, sem byrjar í lok
október. „Þetta er mjög spennandi
verkefni. Ég er hljóðfæraleikarinn
og spila Chaplin á píanó og sé um
alla hljóðeffekta líka. Ég sá sýn-
inguna í Kaupmannahöfn í vor og
var alveg hugfanginn. Siggi Sigur-
jóns er Chaplin og ég er spenntur
fyrir þessu verkefni.
Ég byrjaði í Rocky Horror í MH
og hef eiginlega ekki hætt síðan,
það koma nokkur ár sem maður er
ekki í leikhúsinu svo dettur maður
aftur inn. Það er alltaf lifandi tón-
list í söngleikjum og oft í barna-
leikritum líka en mér finnst verða
algengara að það sé lifandi tónlist í
leiksýningum.“
Þeir sem vilja styrkja útgáfu
vínylplötunnar geta farið á
karolinafund.com og fundið þar
verkefnið Mitt bláa hjarta. Þar er
í boði að kaupa sér eintak af plöt-
unni fyrirfram, hvort heldur sem
er í stafrænu niðurhali, á geisla-
plötu eða vínyl. Einnig er hægt
að kaupa nótnabókina og jafnvel
stofutónleika með höfundinum. n
Textabrot þriggja laga
„Ég sá fyrir mér nátthrafn á
leiðinni af kránni og fannst að
hann ætti skilið lítinn sálm.“
Vefðu mig örmum húmið blítt
Vefðu mig örmum húmið blítt
og verndaðu mig í nótt.
Á ferli eru skuggar og alls konar
fólk
svo mér verður ekki rótt.
Ljósin í bænum lýsa dauft
á döggvotar göturnar heim
en kannski væri ráð
að fara hvergi í bráð
og halla sér ofurhljótt.
Vefðu mig örmum húmið blítt
og verndaðu mig í nótt.
„Mér þykir þessi skemmtileg-
ur því hann nefnir nokkra staði í
Reykjavík og það kemur fyrir vikið
smá Jóns Múla og Jónasarbragð af
þessu. Þar fyrir utan stríðir hann
manni, segir í raun og veru ekkert
um hvað gerðist en tiltekur mjög
nákvæmlega hvar.“
Norðurmýrarmegin við
Klambratún
Norðurmýrarmegin við
Klambratún
mættust þau í fyrsta sinn hann
og hún.
Dáldið alveg ótrúlegt gerðist þá
sem ekki nokkur sá.
Er það ekki helber synd
að enginn hafi smellt af mynd
þennan bjarta dag upp við
Klambratún
við Rauðarárstíg gegnt Kjartans-
götu?
„Þetta er textinn úr titillaginu.
Mér datt í hug þar sem ég horfði
á Esjuna að fjarlægðin gerði líka
hjörtu mannanna blá því mað-
ur verður jú sorgmæddur þegar
maður er fjarri þeim sem maður
elskar. Þannig að fjallið og hjartað
sitja og fella tár saman, bæði blá!“
Mitt bláa hjarta
Fjarlægðin gerir fjöllin blá
og hjörtun sem henni deila.
Tíminn þótt eigi að græða sár
aldrei nær þau að heila.
Því þótt líði þúsund ár
sitja og saman fella tár
fjallið háa bratta
og mitt bláa hjarta. Gylfaflöt 6 - 8
ERUM FLUTT Í
GYLFAFLÖT 6 - 8
„Það voru
örlög mín
að verða tón
listarmaður
Karl Olgeirsson gefur
út Mitt bláa hjarta
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is