Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Síða 20
20 FÓLK - VIÐTAL 31. ágúst 2018
þess flokks, hvorki í starfi né utan
starfs.
„Matsalurinn á Alþingi minnti
mjög á menntó, eins og klipptur
út úr unglingakvikmyndinni Mean
Girls. Samflokksmenn sátu saman
við borð og ef maður fór yfir á borð
annars flokks þá fékk maður ís
kalt augnaráð. Sumir sátu reyndar
alltaf einir, til dæmis Björn Bjarna
son, þáverandi dómsmálaráð
herra, sem sat alltaf einn við borð
í enda salarins og sneri baki í alla.“
Andie segist ekki alltaf hafa
verið sammála sínum eigin
flokksmönnum í málum sem
komu upp. Heilbrigðisráðherrann
Guðlaugur Þór Þórðarson bar
fram frumvarp sem meðal annars
fól í sér leyfi almennra verslana
til að selja nikótíntyggjó og Andie
fannst það góð hugmynd að auka
aðgengi að því, í ljósi þess að síga
rettur og annað tóbak væri selt í
verslunum. En flestir samflokks
menn háns lögðust gegn þessu,
annaðhvort vegna þess að til
lagan kom frá Sjálfstæðismönnum
eða vegna lýðheilsusjónarmiða.
Að fólk ætti ekki að skipta um
fíkn heldur hætta alfarið að neyta
nikótíns.
Undrandi yfir vegferð Vinstri
grænna
Kjörtímabilið sem Andie sat var
stutt því að eftir bankahrunið árið
2008 var boðað til kosninga. Andie
tók þátt í prófkjöri Vinstri grænna
en fékk slæma útkomu, aðeins
sjöunda sæti í Reykjavíkurkjör
dæmi suður, sem var langt frá því
að duga inn á þing. Hán segir það
þó hafa verið allt í lagi, því að hug
urinn hefði verið kominn annað.
„Ég var ekki virk í prófkjörsbar
áttunni heldur einbeitti mér að
því að vinna og hafa í mig og á því
að tíminn eftir hrunið var erfiður.
Pólitíska virknin þurfti að víkja fyrir
heimilisbókhaldinu. Ég var nánast
ósýnileg í starfi flokksins í heilt ár
fyrir kosningarnar árið 2009.“
Ertu enn þá í flokknum?
„Já, á pappírunum að minnsta
kosti. Tími minn á þingi var mjög
lærdómsríkur en stjórnmálaskoð
anir mínar hafa breyst mikið síðan
þá og ég er orðin róttækari. Ég trúi
ekki lengur á fulltrúalýðræðið og
lít á mig sem kommúnista. En að
skrá mig úr Vinstri grænum finnst
mér vera of mikil yfirlýsing og ég
á mjög marga vini sem eru starf
andi innan flokksins og líkar við þá
flesta,“ segir Andie og hlær.
Hvað finnst þér um þá ríkis-
stjórn sem nú situr?
„Hún er klúður,“ segir Andie og
dæsir. „Ég er ekki í innsta kjarn
anum en mér sýnist á öllu að full
trúum Vinstri grænna hafi þótt
það mikilvægara að komast til
valda en að fylgja grunngildum
flokksins. Við sjáum það líka í
skoðanakönnunum að flokk
urinn er að gjalda fyrir stjórn
arsamstarfið. Margir úr flokkn
um hamra á því að þeir muni ná
fram sumum stefnumálum sín
um og ég efast ekki um þeirra trú.
En við sjáum stefnuna verða und
ir, til dæmis í kjaramálum þar sem
almennt launafólk getur aðeins
fengið fjögurra prósenta launa
hækkun á meðan embættismenn
og forstjórar eru að skammta sér
ríflegar hækkanir. Þetta send
ir skilaboð. Það er einnig hægt
að tína fleira til eins og hvalveiði.
Vinstri græn hafa þá stefnu að
vera á móti hvalveiðum en þegja
þunnu hljóði þegar Kristján Lofts
son veiðir steypireyðar og kálf
fullar hvalkýr. Miklir skattafslættir
til ríkra og stuðningur við hernað
Atlantshafsbandalagsins í Sýrlandi
eru önnur mál sem mætti nefna.
Ég hef þekkt Katrínu Jakobsdóttur
forsætisráðherra lengi og veit að
hún er viljasterk kona með mikla
sannfæringu. En þegar ég sé þetta
gerast þá verð ég bæði undrandi
og leið. Er þetta þess virði til þess
eins að vera forsætisráðherra?“
Vill byltingu á stjórnkerfinu og
verkalýðsfélögunum
Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika
sem Andie telur upp þá telur hán
að stjórnin muni lifa þetta kjör
tímabil. Andie myndi þó vilja sjá
hreina vinstristjórn taka við og sér
jafnvel hinn nýja Sósíalistaflokk
leika þar stórt hlutverk.
„Sósíalistarnir tala beint til inn
flytjenda og tala fyrir málum sem
skipta almenning miklu máli, svo
sem að gera húsnæði að mann
réttindum og hækka laun þeirra
allra verst settu. En stóru vanda
málin verða ekki leyst með einni
og einni aðgerð. Hér þarf um
byltingu á stjórnkerfinu og nýja
stjórnarskrá.“
Andie er ánægð með að sjá
þann mikla áhuga og athygli
sem hefur verið á verkalýðs
mál undanfarin misseri og þær
hallarbyltingar sem orðið hafa í
stjórnum félaganna. En hán tel
ur hins vegar að vandi verkalýðs
hreyfingarinnar risti djúpt og ekki
nægilegt að skipta um stjórnir.
„Félögunum ætti ekki að vera
skipt eftir menntun eða störfum
heldur ættu heilu vinnustaðirnir
að vera undir sama hatti. Tökum
spítalana sem dæmi, þar höfum
við lækna, hjúkrunarfræðinga,
geislafræðinga, skúringafólk og
matreiðslufólk sem starfar allt í
heilbrigðisgeiranum en er samt
í hinum og þessum verkalýðsfé
lögum. Hagsmunir þeirra rekast
því á og samstaðan er engin. Þetta
er leið auðvaldsins til þess að fá
launafólk upp á móti hvert öðru.“
Útlendingastofnun lömuð
Útlendingamál og málefni hælis
leitenda hafa verið mikið í um
ræðunni hér á landi þó að deilurn
ar um málaflokkinn hafi ekki farið
jafn hátt og í nágrannalöndum
okkar vestra og eystra. Upp hafa
komið mál þar sem fólk hefur ver
ið sent úr landi, jafnvel með börn
og um miðjar nætur með lögreglu
valdi, sem hefur valdið töluverðri
úlfúð. Andie hefur skrifað um
þessi mál og hefur á þeim sterkar
skoðanir.
„Útlendingastofnun er lömuð
stofnun og ég tel að það þurfi ein
faldlega að loka henni. Þarna er
mannekla, fjárskortur og starfs
fólkið hefur ekki orku eða vilja til
að sinna þessum málum eins og
það ætti að vera að gera. Þarna inni
eru gerð ótal hroðvirknisleg
Gefur þetta
EXTRA
Frábært á
kjúklingin
S. 452 4272 - vilko@vilko.is - Húnabraut 33 - 540 Blönduósi
„Ég þurfti að safna
kjarki til að gera
þetta og bjóst við því
allra versta. Ég klæddi
mig í pilsið, sokkabux-
ur og kvenlegan topp og
arkaði niður í bæ … og
öllum var skítsama.