Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Síða 23
KYNNING Búðin var í mörg ár á Skólavörðustíg en er í dag eingöngu á netinu,“ segir Eygló Árnadóttir eigandi barnavöruverslunarinnar Lítil í upphafi, sem sérhæfir sig í há- gæða vörum fyrir litla fólkið. Vefverslun er afar þægileg- ur kostur fyrir nútímafólk sem getur þá valið vörur í rólegheit- um heima hjá sér og fengið þær sendar heim, á vinnustaðinn eða sótt sjálft á þeim tíma sólarhringsins sem best hentar. Auk þess er verðið yfirleitt lægra þar sem minni yfir- bygging og lægri rekstrarkostn- aður fylgir vefnum en hefð- bundnum verslunum. „Okkar markmið er að bjóða vandaða og fallega vöru á eins lágu verði og við getum, og bjóðum upp á evrópsk merki á borð við Sebra, Done by deer og Djeco,“ segir Eygló. Frí heimsending um allt land „Okkur þykir mikilvægt að bjóða líka fría póstsendingu út á land og í raun óréttlæti að fólk á landsbyggðinni þurfi að greiða hærra verð vegna búsetu sinnar,“ segir Eygló en engin sendingarkostnaður leggst ofan á vöruverðið ef pantað er fyrir 3.000 kr. eða meira. Sá munur er þó að á höfuðborgarsvæð- inu eru vörurnar keyrðar heim að dyrum en úti á landi eru þær sendar á næstu póstafgreiðslu. Bergstein-stígvélin – gæða- stígvél í leikskólann og skólann Nú gengur haustið í garð og mest selda varan um þessar mundir eru hin vönduðu Berg- stein-stígvél sem eru kærkomin á fætur yngstu borgaranna. Þau eru handunnin úr nátt- úrulegu gúmmíi og eru því sérlega mjúk og lipur. Börnin verða síður sveitt á fótunum en í plaststígvélum. Þessi stílhreinu og endingargóðu stígvél eru fá- anleg í öllum regnbogans litum svo allir krakkar ættu að finna sinn uppáhalds. Stígvélin fást í stærðum 20-35, og kosta frá 5.900 kr. sem er frábært verð fyrir þessa hágæða vöru. Haustmarkaður netverslana Ávallt er hægt að hafa sam- band við Lítil í upphafi í síma 868-2572, í netfangið litiliupp- hafi@litiliupphafi.is eða í gegn- um Facebook-síðu verslunar- innar og fá að kíkja á lagerinn í Hlíðunum, skoða vörur og til dæmis máta Bergstein-stígvél. Eins er sjálfsagt að banka upp á með fleiri en eina stærð (eða liti) hjá óvissum kaupendum á höfuðborgarsvæðinu svo barnið geti mátað og valið. Um helgina verður haust- markaður rúmlega 60 fjöl- breyttra netverslana haldinn í Víkingsheimilinu í Fossvogi og verður opið bæði laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 16. Lítil í upphafi verður þar með bás og upplagt að koma við til að skoða og máta stígvélin, en þau verða á sértilboði á markaðn- um ásamt fleiri vörum. Sjá nánar netverslunina á litiliupphafi.is. LÍTIL Í UPPHAFI: Hin frábæru Bergstein-stígvél og haustmarkaður um helgina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.