Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Qupperneq 23
KYNNING
Búðin var í mörg ár á Skólavörðustíg en er í dag eingöngu á netinu,“
segir Eygló Árnadóttir eigandi
barnavöruverslunarinnar Lítil í
upphafi, sem sérhæfir sig í há-
gæða vörum fyrir litla fólkið.
Vefverslun er afar þægileg-
ur kostur fyrir nútímafólk sem
getur þá valið vörur í rólegheit-
um heima hjá sér og fengið þær
sendar heim, á vinnustaðinn
eða sótt sjálft á þeim tíma
sólarhringsins sem best hentar.
Auk þess er verðið yfirleitt
lægra þar sem minni yfir-
bygging og lægri rekstrarkostn-
aður fylgir vefnum en hefð-
bundnum verslunum. „Okkar
markmið er að bjóða vandaða
og fallega vöru á eins lágu verði
og við getum, og bjóðum upp á
evrópsk merki á borð við Sebra,
Done by deer og Djeco,“ segir
Eygló.
Frí heimsending um allt land
„Okkur þykir mikilvægt að bjóða
líka fría póstsendingu út á land
og í raun óréttlæti að fólk á
landsbyggðinni þurfi að greiða
hærra verð vegna búsetu
sinnar,“ segir Eygló en engin
sendingarkostnaður leggst ofan
á vöruverðið ef pantað er fyrir
3.000 kr. eða meira. Sá munur
er þó að á höfuðborgarsvæð-
inu eru vörurnar keyrðar heim
að dyrum en úti á landi eru þær
sendar á næstu póstafgreiðslu.
Bergstein-stígvélin – gæða-
stígvél í leikskólann og skólann
Nú gengur haustið í garð og
mest selda varan um þessar
mundir eru hin vönduðu Berg-
stein-stígvél sem eru kærkomin
á fætur yngstu borgaranna.
Þau eru handunnin úr nátt-
úrulegu gúmmíi og eru því
sérlega mjúk og lipur. Börnin
verða síður sveitt á fótunum en
í plaststígvélum. Þessi stílhreinu
og endingargóðu stígvél eru fá-
anleg í öllum regnbogans litum
svo allir krakkar ættu að finna
sinn uppáhalds. Stígvélin fást í
stærðum 20-35, og kosta frá
5.900 kr. sem er frábært verð
fyrir þessa hágæða vöru.
Haustmarkaður netverslana
Ávallt er hægt að hafa sam-
band við Lítil í upphafi í síma
868-2572, í netfangið litiliupp-
hafi@litiliupphafi.is eða í gegn-
um Facebook-síðu verslunar-
innar og fá að kíkja á lagerinn
í Hlíðunum, skoða vörur og til
dæmis máta Bergstein-stígvél.
Eins er sjálfsagt að banka upp
á með fleiri en eina stærð (eða
liti) hjá óvissum kaupendum
á höfuðborgarsvæðinu svo
barnið geti mátað og valið.
Um helgina verður haust-
markaður rúmlega 60 fjöl-
breyttra netverslana haldinn í
Víkingsheimilinu í Fossvogi og
verður opið bæði laugardag
og sunnudag frá kl. 11 til 16. Lítil
í upphafi verður þar með bás
og upplagt að koma við til að
skoða og máta stígvélin, en þau
verða á sértilboði á markaðn-
um ásamt fleiri vörum.
Sjá nánar netverslunina á
litiliupphafi.is.
LÍTIL Í UPPHAFI:
Hin frábæru Bergstein-stígvél
og haustmarkaður um helgina