Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Page 54
54 31. ágúst 2018FRÉTTIR
L
augardaginn 1. september
fer fram málþing, sem ber
yfirskriftina Allsgáð æska, í
Veröld, húsi Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur, þar sem
sérstaklega verður höfðað til for-
eldra barna og unglinga sem glímt
hafa við vímuefnaneyslu. Guð-
rún Ágústsdóttir og Sigrún Vatns-
dal Bjarnadóttir koma að mál-
þinginu og ræddu þær við DV um
þann vanda sem foreldrar barna í
neyslu standa frammi fyrir.
Foreldrar verða að ræða um
fíkniefni
Guðrún Ágústsdóttir starfar sem
ráðgjafi í Foreldrahúsi samtak-
anna Vímulausrar æsku og fæst
við snemmtæka íhlutun í tilfell-
um þar sem börn og unglingar
eru byrjaðir að nota fíkniefni. Hún
segir að málþingið sé haldið til að
efla umræðu um málaflokkinn og
benda á þau úrræði sem eru til
staðar, hjá ríki, sveitarfélögum og
frjálsum félagasamtökum.
Guðrún: „Við viljum styrkja for-
eldra almennt en ekki hræða þá,
og benda þeim á mikilvægi þess
að þeir fræðist um neyslu, hversu
auðvelt það er fyrir unglinga að
nálgast vímuefni, hvernig eigi að
bregðast við og fleira.“
Hún nefnir að þó að unglinga-
drykkja hafi dregist mjög mikið
saman á undanförnum áratug-
um þá hafi viðhorfið til fíkniefna
breyst hratt.
Guðrún: „Áður fyrr vöruðu for-
eldrar börn sín við áfengisneyslu
en nú þurfa þeir að taka önnur
vímuefni inn í þá umræðu. For-
eldrarnir eru mikilvægasti þáttur-
inn í lífi barns og þeir þurfa að
kynna sér þetta og vita hvert þeir
geta leitað.“
Eru fíkniefni orðin almennt
viðurkenndari meðal unglinga?
Guðrún: „Já, ég heyri það bæði
frá foreldrunum og unglingunum
sjálfum. Það hefur orðið viðhorfs-
breyting gagnvart vímuefnum, sér-
staklega svokallaðri partí-vímu-
efnaneyslu þar sem vímuefni eru
notuð kannski aðra hvora helgi.
Það þykir ekkert tiltökumál að
fara á djammið, drekka áfengi og
fá sér kókaín eða eitthvað svipað,
sérstaklega hjá eldri ungmennum
18 til 25 ára. Hjá yngri krökkum er
grasið orðið almennt viðurkennt.“
Sigrún Vatnsdal, fundarstjóri á
málþinginu, segir:
„Sumir byrja ekkert að prófa
fíkniefni fyrr en í framhaldsskóla,
taka rítalín í próflestrinum og
trappa sig svo niður á eftir.“
Hegðun breytist mikið
Hvaða merki geta foreldrar séð
sem sýna að unglingur sé byrjaður
að nota fíkniefni?
Sigrún: „Lykt til dæmis, eins og
af grasinu, en það er ekki lykt af
öllum fíkniefnum.“
Guðrún: „Foreldrar geta tekið
eftir breyttu hegðunarmynstri hjá
unglingum. Það er erfiðara þegar
þeir eru ekki að nota efnin reglu-
lega en um leið og það gerist koma
fram einkenni. Unglingarnir ein-
angra sig frá fjölskyldunni, eru
sjaldan heima, eiga erfiðara með
að vakna í skólann, skrópa, sinna
náminu og áhugamálum illa og
umgangast nýja vini. Síðan má
nefna að skapið getur breyst mik-
ið.“
Er þetta ekki lýsingin á venjuleg-
um unglingi?
Guðrún: „Ekki þegar öll þessi
einkenni koma saman og ung-
lingurinn fer að breytast mikið í
skapi. Auðvitað er skap unglinga
upp og niður en þetta er öðruvísi
og meira en það.“
Hvernig eiga foreldrar að bregð-
ast við?
Guðrún: „Ekki með því að
stökkva á unglinginn og ráðast á
hann. Það er nauðsynlegt að halda
góðu sambandi við hann og hlusta
en ekki ýta í burtu.“
Ástæðurnar fyrir því að ung-
lingar leita í fíkniefni eru margar
að mati Guðrúnar. Fíkniefni þykja
spennandi af því að þau eru ólög-
leg, unglingar sjá þeim hampað
í tónlistarmyndböndum og bíó-
myndum og þrýstingur frá vinum
skiptir einnig máli. Margir kljást
við kvíða eða aðra andlega kvilla
og unglingarnir kynna fíkniefni
fyrir hver öðrum sem lausn.
Guðrún: „Við höfum séð mikla
aukningu í notkun lyfseðilsskyldra
lyfja á undanförnum tveimur eða
þremur árum. Þau taka til dæmis
oxycontín-töflur eða parkódín for-
te, eða reykja þetta og kenna hvert
öðru að „lækna“ sig. Aðgengið að
efnunum er orðið mjög mikið með
tilkomu netsins. Áður fyrr þurfti
fólk að vera tengt og hafa svolítið
fyrir því að útvega sér efni, en núna
er ekki nauðsynlegt að þekkja
neinn. Unglingar sem kaupa sér
fíkniefni á netinu vita heldur ekk-
ert hvað þeir eru að fá og hvað
þeir eiga að gera. Þeir telja sér hins
vegar trú um að þeir hafi stjórn á
neyslunni og aðstæðunum.“
Neysla unglinga hefur áhrif á
foreldra lengi eftir að neyslu
lýkur
Guðrún og Sigrún segja að ekki
megi vanmeta áhrif neyslunnar
á foreldrana sjálfa og oft geta þeir
verið lengi að ná sér.
Sigrún: „Það er mikilvægt að
foreldrarnir leiti sér aðstoðar. Þeir
finna fyrir kvíða, áhyggjum, sekt-
arkennd, sorg og reiði, bæði út í
sjálfa sig og unglinginn. Þeir upp-
lifa sig hjálparlausa og finnst þeir
hafa brugðist sem foreldri.“
Hvaða úrræði eru í boði fyrir
þá?
Guðrún: „Til dæmis að fara í
foreldrahóp í Foreldrahúsi til að
styrkja hvort annað, tala við aðra
foreldra í sömu stöðu og tala um
þessar tilfinningar, sem þeir sem
ekki hafa lent í þessu, skilja ekki.
Foreldrar unglinga í neyslu mæta
oft miklum fordómum og skiln-
ingsleysi úti í samfélaginu, foreldr-
ar sem eru kannski búnir að reyna
öll úrræði. Foreldrarnir finna fyrir
stuðningi frá hvor öðrum og eiga
þá auðveldara með að takast á við
vandamál unglinganna.“
Hefur neysla unglings lang-
tímaáhrif á líðan foreldra?
Guðrún: „Já, ef ég ætti að giska
þá myndi ég segja að áhrifin vari í
tvö eða þrjú ár eftir að unglingur-
inn nær sér upp úr neyslunni. Þeir
finna fyrir stöðugri hræðslu um að
hann falli, oflesa öll merki og of-
vernda yngri systkini. Einnig eiga
þeir oft erfitt með svefn og vakna
upp við minnstu hljóð. Neysla
unglings hefur ekki aðeins áhrif á
foreldrana heldur systkini líka, sér-
staklega ef þau eru mjög ung.“ n
Málþingið fer fram klukkan
10 til 12, laugardaginn 1. septem-
ber. Guðrún mun flytja erindi fyr-
ir hönd Foreldrahúss Vímulausr-
ar æsku. Einnig tala fulltrúar frá
SÁÁ, IOGT á Íslandi, MST teymi
Barnaverndarstofu og Minningar-
sjóði Einars Darra. Opið verður
fyrir fyrirspurnir og umræður eft-
ir hvert erindi. Auk þess mun Saga
Nazari, sem sjálf átti við fíkni-
vanda að stríða, flytja tónlist.
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
„Neysla ung-
lings hefur
ekki aðeins áhrif á
foreldrana heldur
systkini líka, sér-
staklega ef þau
eru mjög ung.
Málþing fyrir foreldra unglinga í neyslu
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is