Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Síða 54
54 31. ágúst 2018FRÉTTIR L augardaginn 1. september fer fram málþing, sem ber yfirskriftina Allsgáð æska, í Veröld, húsi Stofnunar Vig- dísar Finnbogadóttur, þar sem sérstaklega verður höfðað til for- eldra barna og unglinga sem glímt hafa við vímuefnaneyslu. Guð- rún Ágústsdóttir og Sigrún Vatns- dal Bjarnadóttir koma að mál- þinginu og ræddu þær við DV um þann vanda sem foreldrar barna í neyslu standa frammi fyrir. Foreldrar verða að ræða um fíkniefni Guðrún Ágústsdóttir starfar sem ráðgjafi í Foreldrahúsi samtak- anna Vímulausrar æsku og fæst við snemmtæka íhlutun í tilfell- um þar sem börn og unglingar eru byrjaðir að nota fíkniefni. Hún segir að málþingið sé haldið til að efla umræðu um málaflokkinn og benda á þau úrræði sem eru til staðar, hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum. Guðrún: „Við viljum styrkja for- eldra almennt en ekki hræða þá, og benda þeim á mikilvægi þess að þeir fræðist um neyslu, hversu auðvelt það er fyrir unglinga að nálgast vímuefni, hvernig eigi að bregðast við og fleira.“ Hún nefnir að þó að unglinga- drykkja hafi dregist mjög mikið saman á undanförnum áratug- um þá hafi viðhorfið til fíkniefna breyst hratt. Guðrún: „Áður fyrr vöruðu for- eldrar börn sín við áfengisneyslu en nú þurfa þeir að taka önnur vímuefni inn í þá umræðu. For- eldrarnir eru mikilvægasti þáttur- inn í lífi barns og þeir þurfa að kynna sér þetta og vita hvert þeir geta leitað.“ Eru fíkniefni orðin almennt viðurkenndari meðal unglinga? Guðrún: „Já, ég heyri það bæði frá foreldrunum og unglingunum sjálfum. Það hefur orðið viðhorfs- breyting gagnvart vímuefnum, sér- staklega svokallaðri partí-vímu- efnaneyslu þar sem vímuefni eru notuð kannski aðra hvora helgi. Það þykir ekkert tiltökumál að fara á djammið, drekka áfengi og fá sér kókaín eða eitthvað svipað, sérstaklega hjá eldri ungmennum 18 til 25 ára. Hjá yngri krökkum er grasið orðið almennt viðurkennt.“ Sigrún Vatnsdal, fundarstjóri á málþinginu, segir: „Sumir byrja ekkert að prófa fíkniefni fyrr en í framhaldsskóla, taka rítalín í próflestrinum og trappa sig svo niður á eftir.“ Hegðun breytist mikið Hvaða merki geta foreldrar séð sem sýna að unglingur sé byrjaður að nota fíkniefni? Sigrún: „Lykt til dæmis, eins og af grasinu, en það er ekki lykt af öllum fíkniefnum.“ Guðrún: „Foreldrar geta tekið eftir breyttu hegðunarmynstri hjá unglingum. Það er erfiðara þegar þeir eru ekki að nota efnin reglu- lega en um leið og það gerist koma fram einkenni. Unglingarnir ein- angra sig frá fjölskyldunni, eru sjaldan heima, eiga erfiðara með að vakna í skólann, skrópa, sinna náminu og áhugamálum illa og umgangast nýja vini. Síðan má nefna að skapið getur breyst mik- ið.“ Er þetta ekki lýsingin á venjuleg- um unglingi? Guðrún: „Ekki þegar öll þessi einkenni koma saman og ung- lingurinn fer að breytast mikið í skapi. Auðvitað er skap unglinga upp og niður en þetta er öðruvísi og meira en það.“ Hvernig eiga foreldrar að bregð- ast við? Guðrún: „Ekki með því að stökkva á unglinginn og ráðast á hann. Það er nauðsynlegt að halda góðu sambandi við hann og hlusta en ekki ýta í burtu.“ Ástæðurnar fyrir því að ung- lingar leita í fíkniefni eru margar að mati Guðrúnar. Fíkniefni þykja spennandi af því að þau eru ólög- leg, unglingar sjá þeim hampað í tónlistarmyndböndum og bíó- myndum og þrýstingur frá vinum skiptir einnig máli. Margir kljást við kvíða eða aðra andlega kvilla og unglingarnir kynna fíkniefni fyrir hver öðrum sem lausn. Guðrún: „Við höfum séð mikla aukningu í notkun lyfseðilsskyldra lyfja á undanförnum tveimur eða þremur árum. Þau taka til dæmis oxycontín-töflur eða parkódín for- te, eða reykja þetta og kenna hvert öðru að „lækna“ sig. Aðgengið að efnunum er orðið mjög mikið með tilkomu netsins. Áður fyrr þurfti fólk að vera tengt og hafa svolítið fyrir því að útvega sér efni, en núna er ekki nauðsynlegt að þekkja neinn. Unglingar sem kaupa sér fíkniefni á netinu vita heldur ekk- ert hvað þeir eru að fá og hvað þeir eiga að gera. Þeir telja sér hins vegar trú um að þeir hafi stjórn á neyslunni og aðstæðunum.“ Neysla unglinga hefur áhrif á foreldra lengi eftir að neyslu lýkur Guðrún og Sigrún segja að ekki megi vanmeta áhrif neyslunnar á foreldrana sjálfa og oft geta þeir verið lengi að ná sér. Sigrún: „Það er mikilvægt að foreldrarnir leiti sér aðstoðar. Þeir finna fyrir kvíða, áhyggjum, sekt- arkennd, sorg og reiði, bæði út í sjálfa sig og unglinginn. Þeir upp- lifa sig hjálparlausa og finnst þeir hafa brugðist sem foreldri.“ Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá? Guðrún: „Til dæmis að fara í foreldrahóp í Foreldrahúsi til að styrkja hvort annað, tala við aðra foreldra í sömu stöðu og tala um þessar tilfinningar, sem þeir sem ekki hafa lent í þessu, skilja ekki. Foreldrar unglinga í neyslu mæta oft miklum fordómum og skiln- ingsleysi úti í samfélaginu, foreldr- ar sem eru kannski búnir að reyna öll úrræði. Foreldrarnir finna fyrir stuðningi frá hvor öðrum og eiga þá auðveldara með að takast á við vandamál unglinganna.“ Hefur neysla unglings lang- tímaáhrif á líðan foreldra? Guðrún: „Já, ef ég ætti að giska þá myndi ég segja að áhrifin vari í tvö eða þrjú ár eftir að unglingur- inn nær sér upp úr neyslunni. Þeir finna fyrir stöðugri hræðslu um að hann falli, oflesa öll merki og of- vernda yngri systkini. Einnig eiga þeir oft erfitt með svefn og vakna upp við minnstu hljóð. Neysla unglings hefur ekki aðeins áhrif á foreldrana heldur systkini líka, sér- staklega ef þau eru mjög ung.“ n Málþingið fer fram klukkan 10 til 12, laugardaginn 1. septem- ber. Guðrún mun flytja erindi fyr- ir hönd Foreldrahúss Vímulausr- ar æsku. Einnig tala fulltrúar frá SÁÁ, IOGT á Íslandi, MST teymi Barnaverndarstofu og Minningar- sjóði Einars Darra. Opið verður fyrir fyrirspurnir og umræður eft- ir hvert erindi. Auk þess mun Saga Nazari, sem sjálf átti við fíkni- vanda að stríða, flytja tónlist. Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN „Neysla ung- lings hefur ekki aðeins áhrif á foreldrana heldur systkini líka, sér- staklega ef þau eru mjög ung. Málþing fyrir foreldra unglinga í neyslu Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.