Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 57
5731. ágúst 2018 MENNING
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Mikið úrval af
stillanlegum
rúmum
Gerið gæða- og verðsamanbuð
Þekktustu dýr Íslandssögunnar – manst þú eftir þeim?
Hinn blíði Bongó
Söngkonan Elly Vilhjálms er allflestum Íslendingum kunnug vegna einstakrar söngraddar og bræðandi
persónuleika. Í ævisögu hennar greinir hún frá apa sem hún átti og náði að smygla til landsins. Apinn hlaut
nafnið Bongó og varð seinna meir mjög frægur í Blómaskála Mikkelsen í Hveragerði. Árið 1958 fór Elly með
vinkonu sinni til Spánar og þar ákvað hún að kaupa sér apa. Hermt er að Elly hafi ætlað að kaupa þann sem
væri gáfulegastur til augnanna. Þegar kom að því að flytja Bongó heim fór ekki mikið fyrir honum í hand-
tösku söngkonunnar. Bongó var búsettur hjá Elly í Vesturbænum í nokkra mánuði áður en ljóst var að hann
var ekki húsum hæfur. Árið 1978 hvarf hann á brott og er þá talið að hann hafi endað á uppboði hjá tollstjór-
anum í Reykjavík. Seinna meir lá leið hans í Eden í Hveragerði og varð þar allur, en frægðarsól Bongós settist
ekki þar í ljósi þess að hann var þá uppstoppaður og öllum til sýnis um árabil.
Ómetanlegt framlag
Kynbótahesturinn Orri var heygður í fæðingarstað sínum
Þúfu, þar sem segja má að hann hafi alla tíð átt lögheimili
og var hann þar alla tíð, fyrir utan fyrstu fimm ár ævi sinnar.
Óhætt er að segja að Orri frá Þúfu hafi vakið mikla lukku og
skilaði ómetanlegu framlagi til eigenda sinna og hrossarækt-
arinnar eins og hún leggur sig. Yfir 1.300 afkvæmi voru skráð
undan hestinum og skilaði hann 25 fylfullum hryssum inn í
veturinn áður en hann var felldur. Orri var þá orðinn 28 vetra
gamall en var hann allur árið 2014. Veturinn áður hafði hann
lent í slysi og tóku liðverkir í hálsinum á honum sinn toll.
Þrefaldur Íslandsmeistari
Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni, en af mörgum af-
kvæmum Orra frá Þúfu hefur stóðhesturinn Suðri frá
Holtsmúla náð hvað bestum árangri. Hann sló fyrst í
gegn á stóðhestasýningu í Ölfushöll, þá fjögurra vetra.
Hljóp þá um salinn án knapa og bræddi hjörtu margra.
Hann hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari í fjórgangi
hjá hinum reynda knapa Olil Amble, sem þjálfaði hann
um nokkurra ára skeið. Suðri heillaði dómara um allan
hnöttinn á heimsmeistaramótum. Suðri er með 237
skráð afkvæmi, þar af níu með fyrstu verðlaun og sex til
viðbótar með 7,80 í kynbótadómi og hærra.
Virkir í athugasemdum
Stóra Lúkasarmálið á rætur sínar að rekja til Bíladaga árið
2007. Þá týndist hundurinn Lúkas og fóru á kreik sögusagn-
ir um að hópur drengja hefði sett hann í íþróttatösku og
sparkað úr honum lífið. Málið vakti mikla at hygli og óhug
og var mikið skrifað um hið meinta hunds dráp á spjall-
og blogg síðum. Einn meintra gerenda var nafngreindur á
veraldarvefnum og bárust honum alvarlegar líflátshótanir
í kjölfarið. Sögusagnirnar reyndust allar rangar því Lúkas
skilaði sér síðar heill á húfi. Glymur hinna neikvæðu radda
hafði verið til einskis annars en að varpa ljósi á skapgerð
þeirra sem létu ljót orð falla.
Níðþungur og stórglæsilegur
Merkisnautið Guttormur var engin smásmíði og fangaði athygli
landsmanna með sláandi stærð sinni. Gripurinn vó heil 942 kíló á
seinni árum en bar þyngdina vel og þótti nokkuð geðgóður. Guttorm-
ur var orðinn þrettán vetra þegar ákveðið var að fella hann árið 2005
en aldurinn þykir nokkuð hár þegar um nautgrip er að ræða. Hann
var gigtveikur og stirður en seinni hluta ævi sinnar eyddi Guttormur
í Húsdýragarðinum þar sem hann var afar vinsæll meðal yngri kyn-
slóðarinnar sem hafði aldrei barið jafn stóran nautgrip augum.