Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 2
Veður
NA-læg átt á landinu, víða 5-13 m/s.
Dálítil él á víð og dreif og frost um
mest allt land, síst við S-ströndina.
sjá síðu 54
Frakki
29.990 kr.
Svellkaldur jólafílingur
Undir stjörnuljósum og sindrandi jólaseríunum renndu þessar skautadrottning-
ar sér á Nova-svellinu á Ingólfstorgi í gærkvöldi. Mörgum þykir þetta ómissandi
liður í aðdraganda jólanna og gefa miðbæjarlífinu lit. Fréttablaðið/Eyþór
RitstöRf „Ég er í fimmta og sjötta
sæti með mínar tvær bækur og hún
Ísabella mín var að gefa út sína
fyrstu bók enda aðeins 11 ára. Hún
er líka á topp 10 listanum,“ segir
Huginn Þór Grétarsson, ritstjóri
útgáfufélagsins Óðinsauga ásamt
því að vera rithöfundur sjálfur.
Bók Ísabellu, Slím, fjallar um
og birtir uppskriftir af slímum
sem hafa verið einstaklega vinsæl
meðal ungmenna að undanförnu.
Bókin læddist í tíunda sæti í flokki
fræði- og handbókalista barna og
ungmenna fyrir vikuna en bækur
Hugins, 13 þrautir jólasveinanna:
Óþekktarormar og Brandarar og
gátur 3 sitja sem fyrr segir í fimmta
og sjötta sæti.
Stórstjörnurnar Steindi, Vísinda-
Villi og Gummi Ben eru í fyrstu
þremur sætunum. Huginn hefur
skrifað barnabækur í rúman áratug
og segir að Ísabella, sem er einnig í
hand- og fótbolta, leiklist auk þess
að gefa út bók, hafi greinilega smit-
ast af sköpunarkraftinum sem fylgir
bókabransanum.
„Hennar bók er uppseld á lager.
Ég er í alveg meiriháttar vand-
ræðum og maður er að hugsa um
að setja hana í endurprentun,“ segir
hann stoltur af dóttur sinni. „Það er
rétt hægt að ímynda sér hvað maður
er stoltur af þeirri stuttu.“
„Vinkvennahópurinn er á fullu
í þessum slímbransa, skoða upp-
skriftir og fleira og ég held að hún
hafi byrjað að skrifa á blað einhverj-
ar uppskriftir. Áður var hún að spá í
að gera boozt-bók með uppskriftum
að góðum drykkjum.
Slímið er svo ofboðslega vinsælt
en hún er að fara með þetta aðeins
lengra en venjulegur neytandi og
hefur sökkt sér ofan í myndbönd
og fleira. Við byrjuðum að vinna
þetta saman og byrjuðum á eldhús-
borðinu.
Ég kom með í þetta ferðalag og
horfði á hana taka þetta skref fyrir
skref og hjálpaði henni að gera þetta
með skipulögðum hætti. Hugsa
hvernig væri hægt að byggja þetta
upp.
Ég stóð bara yfir henni meðan
hún tók sín skref. Það eru skýrar
leiðbeiningar sem eru í þessu og
mér finnst þetta vel upp sett hjá
henni.“ benediktboas@frettabladid.is
Feðgin á topplista með
barnabækur fyrir jólin
Feðginin Huginn Þór Grétarsson og Ísabella Sól planta sér á topp 10 lista fræði-
og handbókalista barna og ungmenna. Huginn segir stúlkuna efnilegan rithöf-
und sem hafi lært af föður sínum og sköpunargleðinni í bókabransanum.
Huginn með sína bók og Ísabella með slímbókina sem er uppseld af lag-
ernum og því er pabbinn að spá í að henda í endurprentun. Fréttablaðið/Eyþór
Viðskipti Samherji hefur óskað
eftir hluthafafundi í Högum. Stjórn
félagsins stefnir á að koma saman á
næstu dögum og boða formlega til
hluthafafundar.
Samherji er skráður fyrir 5,1 pró-
sents hlut í Högum. Þá hefur félagið
gert framvirka samninga um kaup
4,12 prósenta hlutar til viðbótar.
Samanlögð eign Samherja þegar til
nýtingar samninga kemur verður
því 9,22 prósent. Talið er að nýir
eigendur vilji skipta út stjórn Haga.
Sem stendur eiga félög í eigu
Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur,
Samherji og Kaupfélag
Skagfirðinga tæp 20 pró-
sent í Högum. Heimildir
herma að bæði Samherji
og Ingibjörg Stefanía ætli
að tefla fram stjórnar-
mönnum. – ósk
Átök í Högum
þorsteinn Már bald-
vinsson, Samherja.
Hennar bók er
uppseld á lager. Ég
er í alveg meiriháttar vand-
ræðum og maður er að hugsa
um setja hana í endurprent-
un.
Huginn Þór Grétarsson
sjáVARÚtVEGuR „Ég er hissa á
þessum dómi Hæstaréttar því
héraðsdómur var búinn að taka
mjög afdráttarlaust á málinu,“ segir
Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávar-
útvegsráðherra, en Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu að reglu-
gerð um úthlutun makrílkvóta frá
2010 stæðist ekki lög.
Þá var ríkið dæmt skaðabótaskylt
gagnvart Ísfélagi Vestmannaeyja og
Hugin þar sem félögin hefðu fengið
úthlutað minni kvóta en þeim bæri
samkvæmt lögum. „Að mínu mati
var ekki sú veiðireynsla fyrir hendi
sem réttlætti að örfá skip fengju
allan framtíðarmakríl í lögsögunni,“
segir Jón. – sar
Hissa á dómi
Myndir af jólastemmingu um allan heim er að finna
á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í
Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PlúS
ALÞiNGi Ágúst Ólafur Ágústsson
þingmaður Samfylkingarinnar
hefur ákveðið að fara í tveggja mán-
aða launalaust leyfi eftir að hafa
hlotið áminningu frá trúnaðarnefnd
flokksins. Hann greindi frá þessu á
Facebook-síðu sinni í gærkvöld.
Kona tilkynnti nefndinni um
óviðeigandi framkomu Ágústs
Ólafs gagnvart sér. Þau höfðu hist á
bar í sumar og farið saman á vinnu-
stað konunnar. Þar nálgaðist Ágúst
Ólafur konuna tvívegis óumbeðið
og vildi kyssa hana. Þegar konan
neitaði lét hann mjög særandi orð
falla í garð hennar.
Ágúst segist hafa hitt konuna
síðar og beðist innilegrar afsök-
unar og viðurkennir að hafa orðið
sér til skammar. Hann segist una
niðurstöðu trúnaðarnefndarinnar
og hyggst leita sér faglegrar aðstoðar
vegna framkomu sinnar. – sar
Ágúst Ólafur í
leyfi frá þinginu
Ágúst ólafur
Ágústsson
8 . d E s E m b E R 2 0 1 8 L A u G A R d A G u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-6
6
D
0
2
1
A
F
-6
5
9
4
2
1
A
F
-6
4
5
8
2
1
A
F
-6
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K