Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 6
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D Náttsloppur 2.490 kr St. 80-110 2.990 kr St. 116-152 Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 P R E N T U N .IS Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl. JÓLIN ERU HJÁ OKKUR... ......................................... www.bjornsbakari.is GRÆNLAND Nýtt ungdómsráð í Kujalleq á Grænlandi leggur til að sett verði á laggirnar sérstakt athvarf fyrir börn í öllum bæjum og byggðum Suður-Grænlands þar sem þau geti leitað skjóls þegar órói er á heimilum þeirra. Á vef grænlenska útvarpsins er haft eftir fulltrúa ráðsins að sum börn séu hjá foreldrunum þegar þeir detta í það á útborgunardög- um. Það komi niður á börnunum. Foreldrarnir reyni að gæta barna sinna en þeir séu ekki alltaf færir um það. – ibs Vilja athvarf fyrir börnin SAmféLAG Komur á sjúkrahúsið Vog hafa verið 2.141 það sem af er ári. Þar af hafa 1.637 lagst inn, einhverjir þeirra  oftar enn einu sinni. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu SÁÁ. Stór hluti þeirra sem þáðu meðferð á Vogi á árinu hafa áður verið þar í meðferð, en 600 nýir sjúklingar komu til meðferðar á árinu, frá öllum landshlutum. Í fréttinni kemur einnig fram að 60 prósent skjólstæðinga SÁÁ eru 39 ára og yngri og að þriðjungur skjól- stæðinga samtakanna eru konur.  Í fréttinni kemur einnig fram að 631 er á biðlista eftir meðferð á Vogi. – aá Meirihluti sjúklinga á Vogi undir fertugu Sjúkrahúsið Vogur er rekið af SÁÁ. Fréttablaðið/ErNir StjóRNSýSLA Rangárþing ytra ætlar að veita einkahlutafélagi styrk í formi vinnuframlags kynningar- og markaðsfulltrúa bæjarins allt árið 2019. Mun hann sinna vinnu við að auglýsa landsmót hestamanna sem á að halda á Rangárbökkum við Hellu árið 2020. Minnihlutinn undrast þennan styrk og segir hann fordæmisgefandi. „Þess ber að geta að mekka íslenska hestsins er nú bara í Rang- árvallasýslu. Hér eru flest og öflug- ustu ræktunarbúin og atvinnuhesta- mennirnir flestir búa hér. Þannig er það nú bara,“ segir Ágúst Sigurðs- son, sveitarstjóri Rangárþings ytra. Stjórn Rangárbakka ehf. óskaði eftir því við sveitarstjórnina að markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins myndi vinna fyrir einkahlutafélagið að kynningu landsmóts. Landsmótið verður haldið fyrstu helgina í júlí árið 2020. Tillagan, sem samþykkt var af byggðarráði Rangárþings ytra, er að verða við beiðninni og borga laun fulltrúans á meðan hann vinnur fyrir einkahlutafélagið. Skilgreint er að um 25 prósent starf sé að ræða. „Það kom erindi til byggðarráðs um málið. Tillagan var sú að verða við þessu og veita þeim styrk í formi vinnuframlags. Umræðan í byggðar- ráðinu var á þá leið að þetta væri þannig verkefni að það væri gott fyrir sveitarfélagið og hefði áhrif á marga bæjarbúa,“ segir Ágúst. Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, fulltrúi minnihluta í Rangárþingi ytra, segir málið alvarlegt. „Styrk- beiðandi er einkahlutafélag í eigu fyrirtækja, hestamannafélaga og sveitarfélaga. Tel ég það afar slæmt fordæmi að einkahlutafélög geti sótt um slíka styrki á forsendum sem þessum. Ef styrkbeiðni þessi verður samþykkt tel ég að sett verði fordæmi sem erfitt verður að vinda ofan af ef gæta á jafnræðis við önnur fyrirtæki sem gætu sótt um álíka styrki í framtíðinni. Ekki liggur heldur fyrir í gögnum hve umbeð- inn styrkur er hár í krónum talið,“ er haft eftir Margréti í fundargerð byggðarráðs. „Einkahlutafélagið er í eigu hesta- mannafélaga og sveitarfélaga að stærstum hluta og það er breytt form á landsmótum núna þar sem heimamenn halda mótin. Þetta er stærsti viðburður sem haldinn er á Íslandi og okkur þykir hann mjög mikilvægur,“ bætir Ágúst við. sveinn@frettabladid.is Landsmótið fær frítt vinnuafl allt næsta ár Sveitarstjóri Rangárþings ytra segir svæðið Mekka hestamennskunnar. Lands- mót hestamanna á Hellu 2020 hlaðið skuldum. Bæjarfélagið kemur til bjargar og veitir frían aðgang að kynningar- og markaðsfulltrúa bæjarins allt árið 2019. byggðarráð rangárþings ytra mat það sem svo að verkefnið væri gott fyrir sveitarfélagið. Fréttablaðið/aNtoN briNk Umræðan í byggðar- ráðinu var á þá leið að þetta væri þannig verk- efni að það væri gott fyrir sveitarfélagið Ágúst Sigurðs- son, sveitarstjóri Rangárþings ytra Foreldrar reyna að gæta barna sinna en eru margir hverjir ekki færir að sjá um börnin þegar þeir fá launin. 8 . D e S e m b e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A F -8 E 5 0 2 1 A F -8 D 1 4 2 1 A F -8 B D 8 2 1 A F -8 A 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.