Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 46
Á sýningunni kallast túlkun íslenskra myndlistar-manna úr samtímanum á
við myndmál fyrri tíma og sýn
mismunandi kynslóða á hið marg-
slungna fyrirbæri Grýlu. Sýningar-
stjórinn Arnbjörg María Danielsen
segir hugmyndina hafa kviknað
þegar Grýlu sem náttúruvætt
bar á góma. „Gerður Pálmadóttir
kom með þá hugmynd að gera
Grýludag sem ætti að halda áður
en jólasveinarnir koma til byggða
og ég í rauninni bara greip þessa
hugmynd á lofti því ég hef alltaf
haft áhuga á þessari kvenmynd,
tröllskessunni ógurlegu sem
birtist í alls konar formum í okkar
sagnaminni og í samtímanum sem
samheiti fyrir alls konar óæski-
legar konur, hún er algjör grýla og
svo framvegis.“
Arnbjörg segir að svo virðist
sem Ásgrímur Jónsson hafi verið
sá fyrsti til að teikna Grýlu í upp-
hafi tuttugustu aldar og að nálgun
hans hafi strax slegið í gegn hjá
almenningi. „Þetta eru þær myndir
sem marka og sýna hvernig þessar
kynjaverur birtast okkur og mér
fannst áhugavert að spegla það
við nútímann,“ segir hún og bætir
við: „Grýla getur verið hefðbundin
goðsagnapersóna eins og hún
birtist okkur í þessum fígúratívu
teikningum, eins og hjá Ásgrími og
Brian Pilkington og aftan á Vísna-
bókinni, en mér fannst svo áhuga-
vert að velta fyrir mér hvað liggur
á bak við. Hún er náttúrulega
tröll, kvenvera með marga lesti og
óæskilega kosti en að sama skapi
er hún náttúruafl og mér fannst
áhugavert að víxla þessum hug-
myndum um þessa goðsagnaveru
og tengja hana við okkar frumgoð-
sagnaheim því allar þessar verur
eru hluti af okkar heiðnu trúar-
brögðum og náttúrutrúarbrögðum
og í dag er brýnt að snúa okkur
aftur að vættum sem tengja okkur
við náttúruna.“
Hún segir Grýlu sannarlega vera
listamönnum hugleikna og að hún
hafi þurft að velja úr hundruðum
mynda. „Sýningin er í anddyrinu
af því að Grýla er á jaðrinum svo
þetta er það fyrsta sem fólk sér
þegar það kemur inn í húsið,“
segir hún og bætir brosandi við:
„Kannski svolítið óhugnanlegt
en börn hafa nú bara gott af því
enda sá ég á hrekkjavökunni síðast
að ég þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af þeim.“
Hún segir gaman að fá ólíka sýn
listamannanna á þessa persónu
sem allir þekkja. „Sumir sjá hana
sem náttúruafl, aðrir sem mis-
skilda utangarðskonu, sem minnir
á lýsingu Egils Sæbjörnssonar á
utangarðsfólki í verkinu Tröll.
Gabríella Friðriksdóttir sér hana
sem fyrstu hugmyndina um sterka
konu síðan Gullveig kemur inn á
sviðið í Völuspá. Þá er líka mjög
skemmtileg samlíking hjá Stein-
grími Eyfjörð þar sem hann veltir
fyrir sér hinum algera ljótleika
Grýlu í samhengi við hina algeru
fegurð Venusar og í framhaldi af
því skoðar hann hugmyndir um
vestræna fegurðardýrkun. Anna
Rún Tryggvadóttir talar svo um
Grýlu sem áminningu um hið
ófyrirsjáanlega og stjórnlausa.
Þetta eru allt mjög skemmtilegar
pælingar.“
Arnbjörg vonast til þess að
Grýludagurinn verði að fasta á
jólaföstunni. „Ein hugmyndin sem
Gerður kom með var að kynna
Grýlu til sögunnar í nýju hlutverki
sem boðbera náttúrunnar, ófrýni-
legt tröll sem skipar fólki að taka
til og flokka rusl. Grýludagurinn
gæti til dæmis verið laugardaginn
áður en jólasveinarnir koma til
byggða 12. desember og þá verði
allir krakkar að vera duglegir að
taka til og flokka rusl því annars fá
þeir ekkert í skólinn.“
Sýningin Ég er Grýla verður opnuð í
Norræna húsinu á morgun, sunnu-
dag, klukkan 15 en allar nánari upp-
lýsingar má finna á vef Norræna
hússins, www.nordichouse.is.
Grýla
er birtingarmynd
náttúrunnar
Öldum saman hefur Grýla verið mesta áhrifakona
landsins og fengið fjölda barna til að hegða sér vel.
Henni verður fagnað í Norræna húsinu á sunnudaginn.
Arnbjörg María
Danielsen
sýningarstjóri
sýningarinnar
Ég er Grýla
í Norræna
húsinu. MYND/
ANTON BRINK
Jólasveinninn kemur í Lindex í Smáralind í dag og geta gestir og gangandi fengið mynd af
sér með sveinka. Hægt verður að
lita jólakort í föndurhorninu og
krakka-karíókí verður í boði með
þeim Þórunni Antoníu og Dóru
Júlíu. Einnig mun starfsfólk UNI-
CEF bjóða börnum og fullorðnum
upp á skemmtilega fræðslu og
sýna hvernig hjálpargögn keypt á
Íslandi geta nýst börnum í neyð.
UNICEF á Íslandi og Lindex hafa
verið samstarfsaðilar til fjölda ára.
Samstarfið hefur í heildina skilað
25 milljónum fyrir börn um allan
heim, meðal annars í gegnum sölu
á Sönnum gjöfum í öllum versl-
unum Lindex fyrir jólin.
Öll börn eiga rétt á menntun
Sannar gjafir eru hjálpargögn sem
bæta líf barna um allan heim. Í
verslunum Lindex eru hjálpargögn
á borð við hlý teppi, vatnshreinsi-
töflur, vítamínbætt jarðhnetu-
mauk og ormalyf til sölu sem falleg
jólakort. Íslensku jólasveinarnir
prýða kortin, en þeir stilltu sér allir
upp með sín uppáhaldshjálpar-
gögn og Brian Pilkington teiknaði
þá. UNICEF mun síðan sjá til þess
að koma hjálpargögnunum til
þeirra barna sem á þurfa að halda.
„Öll börn, stór og smá, eiga rétt
á að fara í skóla,“ sagði Stúfur sem
valdi námsgögn sem sín uppá-
haldshjálpargögn. Stúfur vonast
til að viðskiptavinir Lindex muni
hjálpa honum að útvega námsgögn
þannig að börn sem búa við erfiðar
aðstæður geti haldið áfram að læra.
„Það var mikil gleði og gaman
á UNICEF deginum í fyrra og við
vonumst til þess að fólk sem á leið
í Smáralind kíki við og fræðist
um það hvernig hægt er að hjálpa
börnum í neyð um jólin,“ segir
Ingibjörg Magnúsdóttir, verkefna-
stýra hjá UNICEF á Íslandi. „Okkur
þykir mjög vænt um þetta sam-
starf og erum viðskiptavinum og
starfsfólki Lindex ævinlega þákklát
fyrir að hjálpa okkur að útvega
hjálpargögn fyrir börn sem búa við
erfiðar aðstæður,“ segir Ingibjörg
enn fremur.
Viðskiptavinir Lindex hafa tekið
mjög vel í jólaátakið síðustu ár
og hafa yfir 6.000 Sannar gjafir
selst hjá Lindex frá upphafi sem
UNICEF hefur notað í þágu barna
þar sem þörfin er mest. Jafngildir
það um 1,5 milljónum skammta
af ormalyfjum eða 400 skólum í
kassa, til þess að börn sem búa í
flóttamannabúðum geti haldið
áfram námi.
Að auki hafa Lindex á Íslandi og
UNICEF starfað saman að öðrum
verkefnum í gegnum tíðina eins
og uppbyggingu menntastarfs í
Burkína Fasó, stuðningi við Dag
rauða nefsins, neyðarviðbrögðum
við náttúruhamförum og sérstök-
um barnafatalínum tileinkuðum
baráttu UNICEF fyrir bættum hag
barna í heiminum.
„Samstarf okkar við UNICEF
hefur verið mikilvægur þáttur
í samfélagsverkefnum sem við
látum okkur varða hjá Lindex og
erum sérlega stolt og ánægð að
þessi jól munum við í krafti okkar
frábæru viðskiptavina sækja fast
að 30 milljóna króna markinu í
baráttunni fyrir bættum hag barna
í heiminum,“ segir Lóa Dagbjört
Kristjánsdóttir, umboðsaðili
Lindex á Íslandi.
Jólakortin verða til sölu á
laugardaginn en einnig er hægt
að kaupa Sannar gjafir í vef-
verslun UNICEF og vefverslun
lindex.is.
Barnadagur UNICEF í Lindex
UNICEF dagurinn verður í verslun Lindex í Smáralind frá klukkan 13-16 í dag. Dagurinn
var í fyrsta sinn haldinn hátíðlegur í fyrra og heppnaðist frábærlega þannig að ákveðið
var að endurtaka leikinn í ár. Margt verður um að vera í versluninni.
UNICEF dagurinn verður í verslun Lindex í Smáralind frá kl 13-16 í dag.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-C
4
A
0
2
1
A
F
-C
3
6
4
2
1
A
F
-C
2
2
8
2
1
A
F
-C
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K