Fréttablaðið - 08.12.2018, Page 53
Icelandair er eitt stærsta fyrirtæki landsins og eftirsóttur vinnustaður í alþjóðlegum rekstri. Félagið flýgur til rúmlega fjörutíu
áfangastaða og hjá Icelandair Group samstæðunni starfa alls á fimmta þúsund manns í margvíslegum störfum. Icelandair leitar
nú að öflugum stjórnendum í tvær lykilstöður.
FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS
Icelandair Group leitar að öflugum og reyndum stjórnanda til
að stýra fjármálasviði félagsins.
Framkvæmdastjóri fjármála heyrir undir forstjóra og situr
í framkvæmdastjórn Icelandair Group.
Icelandair Group er skráð í Kauphöll Íslands með um 3.000 hluthafa.
Heildareignir nema tæplega 200 milljörðum króna og er markviss
fjármálastjórn lykilþáttur í starfsemi félagsins.
Starfssvið:
I Ábyrgð á stefnumiðaðri stjórnun fjármála
I Dagleg stjórnun og rekstur sviðsins
I Yfirumsjón með fjármögnun, lausafjár- og áhættustýringu félagsins
I Þróun, markmiðasetning og umbótastörf sem snúa að fjármálum
I Þátttaka í stefnumótun Icelandair og Icelandair Group
I Vinna með forstjóra og framkvæmdastjórn að því að framfylgja stefnu
og ná vaxtar- og rekstrarmarkmiðum
I Samskipti við fjárfesta
Hæfniskröfur:
I Meistarapróf á sviði fjármála, verkfræði eða viðskiptafræði,
eða sambærileg menntun
I Þekking og færni í stjórnun fjármála
I Rekstrar- og stjórnunarreynsla
I Frumkvæði, leiðtogafærni og stefnumótandi hugsun
I Reynsla af flugrekstri er kostur
I Þekking á rekstri skráðra félaga er kostur
Nánari upplýsingar veitir:
Elísabet Helgadóttir I framkvæmdastjóri mannauðs og menningar
elisabeth@icelandair.is
FORSTÖÐUMAÐUR MARKAÐSDEILDAR
Icelandair leitar að markaðsstjóra til að veita markaðsdeild
félagsins forstöðu.
Forstöðumaður markaðsdeildar er hluti af stjórnendateymi sölu- og
markaðssviðs og heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins.
Markaðssvæði Icelandair teygir arma sína vítt og breitt um Evrópu,
Norður-Ameríku og Asíu. Verkefni félagsins í markaðsmálum lúta að
því að höfða til ólíkra markhópa með sterkri ímynd félagsins.
Starfssvið:
I Þróun á markaðsstefnu Icelandair í samræmi við stefnu félagsins
I Ábyrgð á vörumerki Icelandair á alþjóðamarkaði
I Samræming markaðsaðgerða og sölustarfs
I Dagleg stjórnun og rekstur deildarinnar
I Mótun markaðsáætlana og innleiðing
I Ábyrgð á árlegum herferðum og samstarfssamningum
I Umsjón með markaðsrannsóknum
Hæfniskröfur:
I Háskólamenntun sem nýtist í starfi
I Reynsla og sýnilegur árangur í markaðsmálum
I Hæfni og reynsla af notkun allra miðla
I Reynsla af stjórnun
I Frumkvæði, leiðtogafærni og skapandi hugsun
I Reynsla af markaðssetningu á alþjóðlegum neytendamarkaði
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Már Sigurfinnsson I framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs I gms@icelandair.is
Kristján Pétur Sæmundsson I ráðningarstjóri I kristjanpetur@icelandair.is
STEFNIR ÞÚ HÁTT?
+ Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á vef Icelandair
www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 18. desember nk.
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
F
-F
6
0
0
2
1
A
F
-F
4
C
4
2
1
A
F
-F
3
8
8
2
1
A
F
-F
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K