Fréttablaðið - 08.12.2018, Side 82

Fréttablaðið - 08.12.2018, Side 82
L jósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson hefur vakið athygli síðustu ár fyrir ljósmyndir sem fanga íslenska jaðarmenn-ingu. Þann 21. desem ber heldur hann fögnuð í Núllinu, sem er nýtt sýningarrými í Bankastræti 0 á móti Pönksafninu, og gefur út bók sem ljósmyndir úr lífi unglings- stráka prýða, Juvenile Bliss. Bókin verður gefin út af Grazie Press og að auki mun frönsk útgáfa, Classic Paris, selja bókina í Frakklandi og Bandaríkjunum. „Þetta eru strákar sem lifa ekki alveg eftir hefðbundnum gildum,“ segir Þórsteinn. Þetta er önnur ljós- myndabókin sem hann gefur út á árinu. Fyrri bók hans, Container Society, vakti verðskuldaða athygli. Í henni fjallaði hann um líf tveggja manna sem búa í gámum úti á Granda í Reykjavík: Úrræði Reykja- víkurborgar fyrir heimilislaust fólk sem stríðir við fíknivanda. Ljósmyndirnar í bókinni Juv enile Bliss eru teknar á löngu tímabili. Eða frá árinu 2006 til 2017. „Mynd- irnar gefa innsýn í daglegt líf tveggja kynslóða af unglingsstrákahópum í Reykjavík. Þær sýna ákveðna teg- und af hópum. Bretta- og graffst- ráka sem flokkast undir jaðarhópa. Það er mikil orka í gangi,“ segir Þór- steinn. Hann segir breyttan tíðaranda endurspeglast í myndunum en þó sé eitthvað óáþreifanlegt sem hald- ist eins. „Myndirnar eru ótrúlega mis- munandi enda teknar á löngum tíma, eða á 12 árum. Það var ótrú- lega erfitt að setja þetta verk saman vegna þess hversu mismunandi myndirnar eru. En það sem kemur svo skemmtilega á óvart er hversu mikil líkindi eru með þessum tveimur hópum. Það er sama orkan í gangi,“ segir Þórsteinn. Skráði líf sitt og vina sinna Myndirnar sem Þórsteinn tók fyrir rúmum áratug eru af vinum hans. En nýrri myndirnar eru af hóp stráka sem hann kynntist árið 2017. „Ég í raun skráði líf mitt og vina minna þegar við vorum unglingar. Ég var alltaf með myndavélina og stanslaust að taka myndir af því sem við vorum að gera. Seinni hópurinn var aðeins meira krefj- andi því þeir eru talsvert yngri en ég svo ég kem inn sem ljósmyndari í þann hóp. Ég þurfti að koma oft og stoppa stutt og já í raun fylgjast með í ákveðið langan tíma. En við tölum sama tungumálið svo þetta var allt mjög áreynslulaust og skemmti- legt,“ segir Þórsteinn. Myndirnar eru kraftmiklar. Það er svolítið pönk í þeim? „Já, það er mikið pönk í þessum myndum, þetta eru strákar sem lifa kannski ekki alveg eftir hefðbundn- um gildum og eiga kannski margir hverjir erfitt með nám og fá þá útrás og uppreisn í einhverju öðru,“ segir Þórsteinn. Hann segir vinnuferlið hafa stundum verið krefjandi. Á meðan hann skannaði inn gamlar myndir frá unglingsárum sínum helltust yfir hann gamlar tilfinningar. „Erfiðasta ferlið var í raun að fara yfir allt gamla efnið sem var í mis- góðu ástandi. Skanna inn gamlar filmur og fá fullt af gömlum til- finningum yfir mig. Það var mikil vinna að púsla þessu öllu saman í bókaform. Ferlið við að ljósmynda þetta er eins og kemur fram mjög langt svo það hefur verið alls konar Tókst á við fíknina og ferillinn fór á flug Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Þórsteinn segir breyttan tíðaranda endurspeglast í ljósmyndunum en þó sé eitthvað óáþreifanlegt sem haldist eins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÉG ER GREINDUR MEÐ ADHD OG LESBLINDU OG HEF ALLTAF ÁTT MJÖG ERFITT MEÐ BÓKLEGT NÁM. ÉG ÚTSKRIFAÐIST ÚR HLÍÐASKÓLA OG FÓR ÞAÐAN Í MENNTASKÓLANN VIÐ HAMRAHLÍÐ. Ljósmyndaranum Þórsteini Sigurðssyni tókst ekki að fóta sig í skólakerfinu. Hann flosnaði upp úr menntaskóla og hefur glímt við fíknivanda frá því hann var unglingur. Þórsteinn náði loks stjórn á vandanum eftir innlögn á fíknigeðdeild Landspítalans árið 2015. Hann fékk inn- göngu í Ljósmyndaskólann ári síðar og hefur vakið mikla athygli fyrir ljósmyndir sínar. í gangi en það var auðvitað meira krefjandi að mynda nýju kyn- slóðina,“ segir Þórsteinn sem segist þakklátur fyrir það traust sem ungt fólk sýndi honum. „Traust er alltaf regla númer eitt hjá mér. Án trausts, þá er ekkert til að byggja ofan á. Bara svona eins og í öllu öðru. Ég er líka almennt þakklátur því trausti sem fólk er að sýna mér því ég held að það sé ekkert sérlega þægilegt að láta mynda sig svona í bak og fyrir vitandi að myndin gæti endað í bók.“ Geri það sem hjartað segir mér Heldur þú að þú veljir myndefnið út frá þér? Hver þú ert og saga þín er? „Mér finnst mjög mikilvægt að verkefnin mín tengist mér á ein- hvern átt og allt sem ég hef gert hingað til hefur verið á einhvern hátt hluti af mér, minni fortíð eða minni upplifun af því sem er í gangi hverju sinni. Það þarf að vera ein- hver vinkill sem snertir mig tilfinn- ingalega svo að ég hafi hreinlega úthald og vilja til að leggja í alla vinnuna sem fer í að skapa svona seríur. Fyrir mig skiptir það öllu máli að ég hafi einhverja tengingu við viðfangsefnið, það gerir þetta á einhvern hátt miklu sannara fyrir vikið og ég held að það hjálpi líka mikið að þekkja til þegar kemur að lífsstíl og viðhorfi fólks,“ segir hann. Þórsteinn ætlaði sér aldrei að verða ljósmyndari og sá ekki mögu- leika sína þegar hann var unglingur. Honum gekk illa í skóla og segir sjálfsmyndina hafa verið brotna eftir að hafa reynt að þrauka í bók- legu námi. „Ég ætlaði mér aldrei að verða ljósmyndari þegar ég var barn en þegar óvenjulegir hlutir fóru að gerast í kringum mig, þá tók ég upp myndavél, það er ekkert flóknara en það. Svo hefur þetta bara fengið að dafna og þroskast á sinn hátt. Ég er ekkert að reyna að stjórna þessu hjá mér, ég vil bara hafa gaman af lífinu og gera það sem hjartað segir mér að gera. Ég var týpískur fótboltastrákur þegar ég var lítill og ætlaði alltaf 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R42 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 A F -E C 2 0 2 1 A F -E A E 4 2 1 A F -E 9 A 8 2 1 A F -E 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.