Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 90
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Við vorum fyrsti karlakór landsins til að halda tón-leika á aðventunni. Það varð að hefð og síðustu 25 árin höfum við haldið þá í Hallgrímskirkju,“
segir Friðrik S. Kristinsson, stjórnandi
Karlakórs Reykjavíkur. Hann segir lögin
á efnisskránni að mestu tengjast aðvent-
unni og jólunum en inn á milli séu verk
með trúarlegum texta sem sungin eru í
kirkjum á hátíðatónleikum. „Við höfum
alltaf nýtt og nýtt efni fram að færa. Hún
er að syngja með okkur núna í fyrsta skipti
hún Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-
sópran. Lögin sem hún tekur eru tvær
Ave Maríur, önnur eftir Sigvalda Kalda-
lóns og hin eftir Gomez, sem kórinn
tekur undir í. Eitt verk er eftir Cezar
Frank og svo syngur hún Helga nótt og
Nóttin var sú ágæt ein. Tónleikagestir fá
textablöð og syngja með í einu lagi, Guðs
kristni í heimi. Fólki finnst gott að rétta úr
sér og taka þátt.“
Friðrik kynnir einnig með stolti hljóð-
færaleikarana sem koma fram, þeir
eru organistinn Lenka Mátéová, trompet-
leikararnir Eiríkur Örn Pálsson og Guð-
mundur Hafsteinsson og Eggert Pálsson
pákuleikari.
Sjálfur er Friðrik farsæll og sjóaður
stjórnandi. Hann byrjaði með kórinn
árið 1989 og á því þrjátíu ára starfs afmæli
á næsta ári. Hann segir þátttöku í kórnum
alltaf góða og aðsókn mikla á haustin hjá
mönnum sem vilja komast inn. „Þeir
þurfa að gangast undir próf og standast
það ekki alveg allir en yfirleitt gengur
vel því menn koma undirbúnir,“ segir
hann. „Ætli við séum ekki um 80 talsins
núna?“
Þrennir tónleikar verða nú um helgina. Í
dag klukkan 17 og á morgun, sunnu-
dag, klukkan 17 og 20. Friðrik segir ekki
bara aðventusöng kórsins árvissan heldur
sé það líka hefð hjá mörgum að hlusta á
hann. „Fólki finnst svo hátíðlegt að koma
í Hallgrímskirkju. Sumt af því er í miðbæn-
um að kíkja í búðir fyrir jólin og kemur svo
inn í kirkjuna og hlýðir á kórinn í einn og
hálfan tíma, fyllist hátíðleika og helgi og
fer út endurnært. Það er líka mikil hátíð
fyrir kórfélaga að taka þátt í þessu verkefni
í hákirkju Íslands.“ gun@frettabladid.is
Hátíðlegt í hákirkjunni
Karlakór Reykjavíkur viðheldur 25 ára hefð með því að efna til aðventutónleika í Hall-
grímskirkju. Söngur hans ómar þar síðdegis í dag og aftur á morgun, ásamt mezzósópran.
Karlakór Reykjavíkur á lokaæfingu fyrir aðventutónleikana og Sigríður Ósk í forgrunni. FRéttablaðið/EyþÓR ÁRnaSon
Anna Kristjana Helgadóttir hlaut í gær titilinn Ungskáld Akureyrar 2018 þegar úrslit í ritlistarsam-
keppninni Ungskáld 2018 voru tilkynnt
við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu.
Hún er sautján ára nemandi í Verk-
menntaskóla Akureyrar.
Alls bárust 82 verk í keppnina, tvö-
falt fleiri en í fyrra. Keppnin er hin eina
sinnar tegundar á landinu og er ætlað
að efla ritlistaráhuga og færni. Fólki á
aldrinum 16 til 25 ára á Eyþingssvæðinu
gafst kostur á að senda inn texta og eina
skilyrðið var að þeir væru á íslensku.
Þrjú bestu verkin, að áliti þriggja manna
dómnefndar, hlutu peningaverðlaun.
Þriðja besta verkið var valið Dagur á
veginum eftir Söndru Marín Kristínar-
dóttur og verðlaun fyrir það voru 20
þúsund en Anna Kristjana varð líka í
öðru sæti svo samtals halaði hún inn 80
þúsund, fimmtíu fyrir 1. verðlaunaljóðið
Án titils og þrjátíu fyrir örsöguna Tæki-
færin sem hafnaði í öðru sæti. Skyldu
úrslitin hafa komið henni á óvart? „Já,
eiginlega. Ég var reyndar í þriðja sæti á
síðasta ári svo ég vissi að ég ætti mögu-
leika. Núna sendi ég inn fimm verk, tvö
ljóð og þrjár örsögur.“
Spurð hvort andinn sé alltaf yfir
henni svarar Anna Kristjana því að hún
hafi verið að skrifa sögur og ljóð síðan í
6. bekk. „Þegar ég sest niður og byrja þá
kemur alltaf eitthvað.“
Stefnir þú að því að verða rithöf-
undur?
„Ég veit það nú ekki,“ segir hún yfir-
veguð. „En ég dunda mér af og til við að
skrifa mér til skemmtunar og hugsa að
ég haldi því eitthvað áfram.“
gun@frettabladid.is
Ungskáld Akureyrar 2018 valið
Kristín Árnadóttir, Hrönn björgvinsdóttir,
tinna Sif Kristínardóttir, anna Kristjana
Helgadóttir og þórarinn torfason. Kristín,
Hrönn og þórarinn voru í dómnefnd.
Án titils
Að skrifa er öruggara en að tala
Því penninn stamar ekki eins og
röddin gerir
Orð festast í hálsi en ekki á fingur-
gómum
Ég get ekki hrasað um hvít línu-
strikuð blöð
Eins og ég myndi gera með orðum
Ég þarf ekki að mana mig upp í að
skrifa
Þegar ég sit ein í myrkinu
En þegar ég stend ein, umkringd
fólki
Þá sjá mig allir, það sjá allir hvað
ég geri
Hvernig ég stend, hvernig ég tala,
hvernig ég er
Það sjá mig allir
Ég skrifa
Af því að skrift er einföld og örugg
Og enginn getur sagt til um
Hvort ég gráti eða hlæi
Þegar ég skrifa þessi orð
10.11.18
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
Guðmundur Guðbjörnsson
húsasmíðameistari,
Víðigrund 29,
Kópavogi,
lést á heimili sínu þann 4. desember.
Útför fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn
13. desember kl. 13.00.
Guðbjörn Guðmundsson Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir
Hrund Guðmundsdóttir Ólafur Erlingur Ólafsson
systkini og barnabörn.
8 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r50 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
F
-7
0
B
0
2
1
A
F
-6
F
7
4
2
1
A
F
-6
E
3
8
2
1
A
F
-6
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K