Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 96
Listaverk Bríet Aðalbjörg Agnarsdóttir er tíu ára og er í 5. X í Hlíðaskóla í Reykja-
vík.
Er haldin lúsíuhátíð þar? Nei, en
ég fer á Lúsíuhátíð hjá Sænska félag-
inu. Hún er í Seltjarnarneskirkju
13. desember. Ég átti heima í Sví-
þjóð og þar var alltaf haldin Lúsíu-
hátíð og það er gaman.
Hvar í Svíþjóð áttir þú heima og
hversu lengi? Ég átti heima í Guld-
heden í Gautaborg, við fluttum til
Svíþjóðar þegar ég var eins og hálfs
árs og við bjuggum þar í sjö ár.
Hvernig fannst þér að flytja heim
til Íslands? Það var ágætt en líka
erfitt. Það var erfitt að flytja frá
vinum mínum en gaman að eignast
nýja vini. Það er líka gaman að geta
heimsótt afa og ömmur oftar.
Hvers saknar þú mest frá Svíþjóð?
Ég sakna mest vina minna en líka
sænska skólans. Það var líka gaman
að geta farið í gönguferð í skóginum
og synt í sjónum og svo var veðrið
oft betra.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Mér finnst gaman að syngja, ég er
í kór í skólanum og líka í Lúsíu-
kórnum. Svo spila ég á altblokk-
flautu. Mér finnst líka mjög gaman
að teikna og lita og leika mér við
vini mína.
Hvert finnst þér vera fallegasta
jólalagið? Sænskt jólalag sem
heitir Gläns över sjö och strand
sem við syngjum á Lúsíuhátíðinni.
Af íslenskum jólalögum finnst mér
Nóttin var sú ágæt ein fallegast og
Þrettán dagar jóla skemmtilegast.
Það byrjar svona: Á jóladaginn
fyrsta hann Jónas færði mér …
Hvað er það flippaðasta sem þú
hefur gert á ævinni? Ég veit það
ekki en eitt af því skemmtilegasta
sem ég hef gert er að fara í tívolíið
Liseberg í Gautaborg og fara í fall-
turninn og kaffibollana.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Ég veit það ekki,
kannski listakona eða bakari.
Listakona
eða bakari
Bríet Aðalbjörg Agnarsdóttir hefur
kynnst Lúsíuhátíðum og ætlar að rifja
upp stemninguna á næstu dögum.
Hér er Bríet Aðalbjörg komin í lúsíukjólinn. fréttABlAðið/eyþór
Mér finnst gAMAn
Að syngjA, ég er
í kór í skóLAnuM og LíkA í
LúsíukórnuM. svo spiLA ég á
ALtBLokkfLAutu
Í Listasafni Árnesinga í Hvera-gerði og bókasafni staðarins er sýning á verkum barna. Hún
var sett upp í tilefni aldarafmælis
fullveldis Íslands 1. desember.
Þann dag var dagskráin í lista-
safninu öll í höndum barna og
ungmenna – fulltrúa framtíðar-
innar.
Það var í Grunnskólanum í
Hveragerði sem verkin urðu til,
eftir að nemendur og kennarar
höfðu varið nokkrum tíma í að
velta fyrir sér framtíðinni út frá
nútíð og fortíð. Í framhaldi af
því skiluðu nemendurnir hugsun-
um sínum frá sér í formi mynda
og texta.
Sýningin er opin á opnunar-
tíma safnanna og ókeypis er inn.
Fulltrúar framtíðarinnar
„Hér er sko alvöru
stafasúpa, Róbert,“ sagði
Lísaloppa. „Þetta er
orðarugl og við eigum
að nna orðin sem eru
falin í gátunni. En við
þurfum að passa okkur,“
bætti hún við íbyggin.
„Því orðin geta líka verið
skrifuð lóðrétt, nú eða
á ská.“ Róbert horfði á
orðaruglið drykklanga
stund. „Og hvaða orð
á ég að nna?“ spurði
hann vonleysislega og
bætti við: „Þetta er bara
hrærigrautur af stöfum.“
„Það eru falin níu
mannanöfn í gátunni,“
sagði Lísaloppa.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
330
R X A J É T Ð U I Ú H
N T Þ í Ú I Ó R Ó Ý Ð
N Æ Á U M D Á M A í R
I I M Ó R K Ý D A O Y
P U S V M Ð B D T S S
Ö N J A H H U K Ð É U
A I N L T S I R Ó Þ N
V N E Þ Ó V A U N A N
A S Ú G L S Y T K F A
Ú Ý N Ý Ó N B J A X R
S I G R Í Ð U R A M B
Getur þú
fundið níu
mannanöfn
í
orðaruglinu
?
?
?
?
Lausn á gátunni
Nöfnin er Anna, Unnar, Sigríður, Tómas, Rósa,
Kári, Una, Viktor og Urður.?
8 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r56 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
krakkar
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
F
-A
B
F
0
2
1
A
F
-A
A
B
4
2
1
A
F
-A
9
7
8
2
1
A
F
-A
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K