Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 104

Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 104
Sigtryggur Bjarni Baldvins-son opnar í dag, laugar-daginn 8. desember, sýn-ingu í Hverfisgalleríi. Sýningin ber heitið Útvarp Mýri/Litir Kvarans. Á sýn- ingunni eru ný olíumálverk, vatns- litamyndir og verk unnin með gvasslitum. Litir Kvarans Meðal verka á sýningunni eru tvær myndraðir, Fjórtán bláir Kvarans og Allir litir Kvarans og vísa titlarnir til tilurðar verkanna. „Þetta eru mynd- raðir sem ég geri úr litum sem mér áskotnuðust á sínum tíma í Mynd- listaskólanum í Reykjavík, en þeir höfðu dagað uppi í geymslum skól- ans og verið þar í ein 30 ár. Þetta eru gvasslitir, þekjulitir sem sá frábæri málari Karl Kvaran átti upphaflega,“ segir Sigtryggur. „Þessir litir vöktu athygli mína. Ástandið á þeim var þannig að þeir voru orðnir nær algjörlega steinrunnir, eins og upp- döguð tröll. Það var ekki dropi af vatni eftir í þeim. Mér rann blóðið til skyldunnar og ákvað að gera eins og Aladdin með lampann og hleypa anda litanna úr túbunum. Um er að ræða 50 liti sem ég hef á síðustu mánuðum og árum bisað við að leysa upp og koma þeim í það form að hægt sé að mála með þeim. Til þess hefur þurft bæði þolinmæði og nokkra útsjónarsemi. Sumir lit- anna eru að minnsta kosti 60 ára gamlir, því fyrirtækið, Newman’s, sem bjó þá til hætti litaframleiðslu sinni í Sohohverfinu í London árið 1959. Þessi verk eru um tímann, en líka vatnið, sem hefur verið megin- straumurinn í höfundarverki mínu á 30 ára ferli. Ég kem alltaf aftur að vatninu á einn eða annan hátt.“ Horfir á hvert einasta strá Aðalþema sýningarinnar er vatns- ósa mýrin. „Ég er mjög hændur að náttúrunni og olíumálverkin á sýningunni eru unnin upp úr nátt- úru Héðinsfjarðar á Tröllaskaga en þangað sæki ég kraft, ró og viðfangs- efni málverka minna. Á Möðruvöll- um í Héðinsfirði hefur ekki verið búið í hundrað ár og náttúran því lítt snortin af manninum. Þetta er staður sem ég fer mikið til, oft á dag í huganum og svo dvelst ég þar tals- vert á sumrin við náttúruskoðun, veiðar og í leit að viðfangsefnum fyrir verkin mín,“ segir Sigtryggur. Hvert olíumálverk á sýningunni var lengi í vinnslu. „Ég mála mýrar- gróður á þann hátt að ég bý til port- rett af hverju einasta strái, laufi og skugga. Ég er að horfa og sjá og uppgötva endalaust nýja hluti í ljós- mynd sem ég tók kannski fyrir einu og hálfu ári. Ég horfi á hvert einasta strá og velti fyrir mér á hvaða stigi hringrásar lífsins það er, eins og til dæmis hvort það sé farið að gefa eftir og þyngdaraflið sé farið að sigra og það færist undir vatnsyfirborðið til að verða að mold og næringu og nýju lífi. Vinna við svona verk tekur marga mánuði,“ segir Sigtryggur og bætir við: „Það er ekki að ástæðulausu að ég kalla sýninguna Útvarp Mýri. Ég held að ég geti sagt með nokkrum rétti að ég sé eins og fjölmiðlamaður að reyna að útvarpa því sem nátt- úran vill segja okkur. Mitt hlutverk er að setjast á rassinn í allri auð- mýkt í mýrinni og reyna að nema hvísl náttúrunnar og magna það upp og skýra það. Til þess nota ég þennan síunga, stórkostlega, 40.000 ára gamla miðil, málverkið. Þetta er mitt útvarp, ekki alveg bein útsend- ing en nálægt því.“ Eins og fjölmiðlamaður Mýri 6 er meðal olíumálverka á sýningunni. Vinna við verk eins og þetta tekur að sögn listamannins marga mánuði. Á sýningu Sigtryggs eru ný olíumálverk, vatnslitamyndir og verk unnin með gvasslitum. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýnir í Hverfisgalleríi. Þar koma litir Karls Kvarans nokkuð við sögu. Sýnir olíumálverk sem eru unnin upp úr náttúru Héðins- fjarðar. Bækur Haustaugu HHHH Hannes Pétursson Útgefandi: Opna Fjöldi síðna: 59 Sannarlega er það bókmenntavið- burður þegar Hannes Pétursson (f. 1931) kemur með ljóðabók, ekki síst eftir tólf ára hlé. Nýjasta verk hans, Haustaugu, er þess vegna „hvalreki öllum þeim sem unna ljóðlist og íslenskri tungu“ eins og segir rétti- lega aftan á bókarápu. Hannes er ástsælt og verðlaunað skáld sem frá árinu 1955 hefur gefið út fimmtán frumsamdar ljóðabæk- ur auk fræðibóka, smásagna, ferða- þátta og ljóðaþýðinga. Meðal viður- kenninga sem honum hafa hlotnast eru Íslensku bókmenntaverðlaunin sem hann hlaut fyrir ljóðabókina Eldhyl 1993. Ljóð Hannesar eru hógvær í fram- setningu, myndrík og laus í formi. Ekki verður sagt að þau séu óbundin, því stuðlasetning, vísir að innrími og hátt- bundin hrynjandi eru sjaldnast langt undan. Í þess- ari bók eins og jafnan áður talar ljóðmælandinn í trúnaði til lesanda síns, hóglega og hæglega. Opnar fyrir honum hug- skot sitt og brjóst, leiðir hann þar inn á lendur hug- renninga sinna, minninga og til- finninga. Eins og titill bókarinnar gefur til kynna er haust í lífi skáldsins. Ljóð- mælandinn lítur yfir farinn veg og fram á veg komandi kynslóða um leið og hann býr sig undir eigin ævi- lok. Hann blessar gengnar slóðir og þakkar lifuð ár – ekki laus við ugg um framtíð jarðar- barna. Hannes Péturs- son er þekktur fyrir að slá þjóð- legan tón í ljóða- gerð sinni. Hefðir, sagnir og menn- ingararfur vaka ein- att í ljóðmálinu og stundum má greina h e i m s p e k i l e g a n undirtón. Í þessari ljóðabók fer minna fyrir vísunum til þjóðmenningar en oft áður. Umhyggja fyrir menningunni, tungunni, landinu og náttúrunni leynir sér þó ekki. Í ljóðinu Spurnir, lagðar fyrir vindana, vill hann efla herhvöt fyrir tungumálið: Herjötnar tungunnar hvasseygir, langsýnir, vökulir. Sárt sakna ég þeirra. (10) Í mörgum ljóðanna er kallað eftir árvekni og alúð fyrir umhverfinu, og varað við tortímandi afleiðingum mannlegrar breytni og hroka. Þó er enginn prédikunartónn. Ljóðið Úr þulu næturgolunnar birtir geigvæn- lega framtíðarsýn. Þar andar nætur- golan skilaboðum sínum „gegnum opinn haustgluggann – og ég læt sem ég sofi“ (57) líkt og segja má um mannkyn allt. Þrátt fyrir beyg og feigðargrun er kyrrð í ljóðum þessarar bókar. Sátt, jafnvel vísir að raunsæislegri uppgjöf manns sem reynslan hefur sorfið: ... ég, hinn efagjarni sá sem ungur treysti alhugað dýrð ljómans yfir fjárhirðunum og leiðsögn stjörnunnar háu er nú alls kostar undir það búinn að mölflugur geri sér hreiður í helgum fyrirheitum. (58) Samtímis skynjar lesandinn glöggt – í ljóðum á borð við Stakar stundir hjá gröfum, Á þessum kyrru dægrum og Samfylgd – tregablandið þakklæti fyrir gjafir lífsins: Og vinarhugur er sem gras gróandi gras, döggvað undir ungum iljum. (34) Þrátt fyrir haust og húmtilfinn- ingu skáldsins, sem birtist í titli bókarinnar, er einhver sólbjört feg- urð í anda ljóðanna. Því þó að laufin falli og hágróskan sé á niðurleið eins og segir á einum stað þá ... ... situr einhvers staðar innra með mér lengst, lengst innra með mér söngfugl í björtum vorskógi ... (35) Ætli það sé ekki sá söngur sem lesandinn skynjar og ljóðin sjálf vorskógurinn þaðan sem ómurinn berst, þó að heiti bókarinnar beri fölva haustsins. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Niðurstaða: Bókin er yndisleg perla sem sannarlega er fengur fyrir unnendur íslenskra ljóða. Haustbirta í vorskógi Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is 8 . d e s e m B e r 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r64 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 A F -6 B C 0 2 1 A F -6 A 8 4 2 1 A F -6 9 4 8 2 1 A F -6 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.