Fréttablaðið - 12.12.2018, Page 2
Veður
Sunnan strekkingur og væta með
köflum, en þurrt á Norður- og
Austurlandi. Hiti 7 til 14 stig,
hlýjast fyrir norðan. Úrkomulítið og
kólnandi veður. sjá síðu 20
Styrktu Hjálparstarf kirkjunnar
Grýla og sjö jólasveinar af þrettán héldu blaðamannafund á Rakarastofunni á
Dalbraut í gær þar sem þeir afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar rúmlega millj-
ónar króna styrk fyrir hönd Jólasveinaþjónustu Skyrgáms. Fréttablaðið/Eyþór
Gjöfin sem gleður,
mjúka gjöfin frá
Lín Design
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
alþingi Bára Halldórsdóttir, sem
tók upp samtal sex þingmanna á
barnum Klaustri í miðborg Reykja-
víkur í nóvember, var í gær boðuð í
skýrslutöku í Héraðsdómi Reykja-
víkur þann 17. desember næst-
komandi.
Dómstóllinn sendi bréfið að
beiðni Reimars Péturssonar, lög-
manns fjögurra þingmanna Mið-
flokksins sem heyrðist í á upp-
tökum Báru.
„Meðfylgjandi beiðni verður ekki
skilin öðruvísi en svo að dómsmál
kunni að verða höfðað á hendur
þér í kjölfar umbeðinnar gagna-
öflunar,“ segir í bréfinu. Undir það
ritar Lárentsínus Kristjánsson hér-
aðsdómari.
Bára birti mynd af bréfinu á
Facebook í gærkvöld. „Hefst þá
dansinn,“ ritaði Bára með færslunni.
Á upptökum Báru heyrast nokkrir
þingmenn fara ófögrum orðum um
kollega sína og aðra einstaklinga.
Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór
Ólason, þingmenn Miðflokksins,
fóru í leyfi eftir að málið komst í
hámæli.
Bára hefur afhent siðanefnd
Alþingis upptökurnar. Klausturs-
upptökurnar verða fyrsta málið sem
ratar á borð nefndarinnar. – bg
Bára kölluð
í skýrslutöku
Hefst þá
dansinn.
Bára Halldórsdóttir
Fleiri myndir af fundi jólasveinanna og Grýlu er að
finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er
í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+Plús
stjórnmál Inga Björk Bjarna-
dóttir, formaður framkvæmda-
stjórnar Samfylkingarinnar, segir
Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann
flokksins, hafa sagt sér ósatt um að
tilkynning hans hefði verið skrifuð
og send í fullu samráði við Báru
Huld Beck. Bára svaraði í gær rang-
færslum sem komu fram í tilkynn-
ingu sem Ágúst birti fyrir helgi, eftir
að trúnaðarnefnd Samfylkingar
áminnti hann fyrir að áreita Báru.
Inga Björk tekur afstöðu með
brotaþolanum. „Ég trúði því að
Ágúst Ólafur hefði sent út þessa
yfirlýsingu í samráði við þolanda
og það var það sem mér var sagt
þegar ég frétti af þessu rétt áður en
yfirlýsingin var send út. Auðvitað
hryggir það mig mjög að svo hafi
ekki verið,“ segir hún. „Auðvitað
brýtur Ágúst Ólafur mitt traust sem
formanns framkvæmdastjórnar,
þegar mér er sagt að tilkynningin
hafi verið send út í samráði við
þolanda.“
Margir hafa gagnrýnt þá stöðu að
Samfylkingin skuli rannsaka mál
sem varði hana sjálfa og hvort trún-
aðarnefndin sé hlutlaus. Inga Björk
bendir á að nefndin er samansett af
sérfræðingum og sé hlutlaus aðili.
Hins vegar verði verkferlar skoðaðir
nú í kjölfar þessa máls en hún segist
alltaf taka afstöðu með brotaþolum
í málum sem þessum. „Við erum að
koma út úr þessari Metoo-byltingu
og ég held að öll félagasamtök og
fyrirtæki viti ekki hvernig eigi að
takast á við svona mál. Við erum að
læra það sem samfélag,“ segir hún.
Logi Einarsson, formaður flokks-
ins, var upplýstur um málið af
Báru sjálfri. Auk þess liggja mála-
vextir fyrir í skýrslu nefndarinnar.
Ágúst gekkst við hegðan sinni fyrir
nefndinni, sem fólst í því að hafa
endurtekið, og í óþökk Báru reynt
að kyssa hana á vinnustað hennar.
Hann hafi niðurlægt hana með
móðgandi athugasemdum um útlit
hennar og vitsmuni.
„Ágúst er ágætis liðsfélagi minn og
við höfum átt gott samstarf. Það er
einmitt þess vegna sem það er mikil-
vægt að við höfum sett á laggirnar
trúnaðarnefnd til að taka á málum.
Þessi nefnd veitti Ágústi áminningu
sem er mjög alvarlegt. Ég held við
verðum að gefa honum ráðrúm til
þess, svo sjáum við til,“ segir Logi.
Ekki náðist í Ágúst Ólaf við
vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir
nokkra eftirleitan.
sveinn@frettabladid.is
Tilkynning Ágústs ekki
gerð í sátt við brotaþola
Ágúst Ólafur Ágústsson tjáði innsta valdakjarna í Samfylkingunni að tilkynn-
ingin væri send út með vitund og samþykki brotaþola síns. Annað kom á dag-
inn. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins telur hann hafa brotið á trausti.
inga björk bjarnadóttir og Ágúst ólafur Ágústsson. Fréttablaðið/Eyþór
bergþór ólason, einn af fjórum Mið-
flokksmönnum á upptökum báru.
Auðvitað brýtur
Ágúst Ólafur mitt
traust sem formanns fram-
kvæmdastjórnar.
Inga Björk Bjarnadóttir, formaður
framkvæmdastjórnar Samfylkingar
Frakkland Að minnsta kosti tvennt
var myrt og tíu særðust í skotárás í
frönsku borginni Strassborg í gær-
kvöldi. Lögregla sagði frá því að
hún hefði borið kennsl á meintan
árásarmann og að leit að honum
stæði yfir. Hann hafði ekki fundist
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
Innanríkisráðuneyti Frakklands
sagði að um alvarlega ógn við öryggi
íbúa væri að ræða. Fólk ætti því að
halda sig innandyra. Samkvæmt
BBC var árásin gerð á jólamarkaði
á Kleber-torgi í miðborginni og var
svæðinu lokað í kjölfarið. Þaðan á
árásarmaðurinn að hafa gengið upp
Grand’Rue, eina stærstu verslunar-
götu borgarinnar.
France 24 greindi frá því að
hryðjuverkavarnir Frakklands væru
að rannsaka árásina. Ekki liggur þó
fyrir hvort um hryðjuverk hafi verið
að ræða. – þea
Skotárás í
Strassborg
1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m i ð V i k u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-8
1
0
C
2
1
B
6
-7
F
D
0
2
1
B
6
-7
E
9
4
2
1
B
6
-7
D
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K